Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 30
30 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir í
umbúðum
Pakkaskraut
Pappír
Skreytingarefni
Pokar
Borðar
Teyjur
Bönd
Kort
Sellófan
Kynntu þér úrval
á vefverslun
www.danco.is
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Sjávarpláss eins og Vestmannaeyjar
hafa gengið í gegnum miklar breyt-
ingar á liðnum árum og áratugum.
Þróunin er færri og stærri skip og
ný tækni í fiskvinnslu og á fleiri
sviðum kallar á minni og hagkvæm-
ari hús. Eftir stóðu hús án hlutverks
og hafa Eyjamenn breytt gömlum
fiskvinnsluhúsum í íbúðir, þróun-
arsetur og söfn með glæsilegum ár-
angri.
Fleiri sjá tækifærin og á þessu ári
hafa hjón úr Reykjavík bætt um
betur. Þau reka fyrirtækið West-
man Islands Luxury Villas og hafa
breytt gamla Pósthúsinu í glæsilegt
íbúðahótel og Básum, gömlu veið-
arfærahúsi í tvær lúxusíbúðir. Þau
láta ekki þar staðar numið. Hafa
þegar reist fjögur glæsileg hús með
einstöku útsýni yfir eyjar og sund
og fest sér níu lóðir til viðbótar. Allt
ætlað ferðamönnum þar sem þau sjá
mikla möguleika.
Allt byrjaði þetta með því að hjón-
in Margrét Skúladóttir Sigurz og
Kristján Gunnar Ríkharðsson,
fylgdu börnunum fjórum á fótbolta-
mót til Eyja þar sem erfitt var að fá
gistingu. Lausn fyrir fjölskylduna
finna þau sumarið 2014 þegar Krist-
ján keypti hús að Búhamri 1 og þau
hjónin gerðu það upp 2018 „Við
gerðum það nánast fokhelt og end-
urbyggðum og þar með vorum við
komin með fastan samastað í Vest-
mannaeyjum,“ segja þau. Við sömu
götu voru átta skipulagðar sjáv-
arlóðir með einstöku útsýni til vest-
urs. Með Surtsey í suðri og Eini-
drang yst í vestri og Smáeyjar í
forgrunni. „Við heilluðumst af stór-
kostlegu útsýninu og byrjuðum á að
festa okkur þessar átta lóðir. Nú eru
fjögur hús nánast tilbúin og þau er-
um við að leigja út,“ segir Margrét.
Sér tækifæri í öllu
En af hverju Vestmannaeyjar?
„Ég sé hér endalaus tækifæri,“ seg-
ir Kristján. „Hann sér tækifæri í
öllu,“ skýtur Margrét inn í. „Ég er
alltaf bjartsýnn og jákvæður og
finnst gaman að sjá árangur. Bara
það að taka húsið Bása, sem átt
hafði betri daga í gegn að utan og
innan skiptir máli fyrir bæinn og
gaman að taka þátt í því. Básar eru
við innganginn til Vestmannaeyja og
með því fyrsta sem ferðamenn sjá
þegar þeir koma með Herjólfi,“ seg-
ir Kristján sem hefur fengið jákvæð
viðbrögð bæði frá bæjarbúum og
bæjaryfirvöldum fyrir framtakið.
Má nefna að þau fengu umhverf-
isverfisverðlaun Vestmannaeyja-
bæjar og Rotary 2020 fyrir vel
heppnaðar breytingar á Búhamri 1.
Þeir sem eiga börn í fótbolta vita
að sumarið er endalaus elting-
arleikur við fótboltamót þar sem
Vestmannaeyjar eru toppurinn með
TM-mótið fyrir stelpur og Orkumót-
ið fyrir strákana. Margrét og Krist-
ján eiga tvær stelpur og tvo stráka,
voru öll í fótbolta, strákarnir þó
hættir og kom hvert þeirra tvisvar á
mót í Eyjum. Alltaf gaman en vand-
ræði með gistingu. „Einu sinni feng-
um við húsið hjá Dagmar systur og
hin skiptin leigðum við hús. Það
sama heyrum við um golfarana sem
vilja eiga hér huggulegt kvöld eftir
hring á vellinum. Fara út að borða
um kvöldið og heim daginn eftir.
Það strandar á gistingu og því er
farið heim með síðustu ferð Herj-
ólfs. Húsin okkar við Búhamarinn
voru í upphafi einkum hugsuð fyrir
golfara enda völlurinn, sem er einn
sá glæsilegasti á landinu, í göngu-
færi.“
„Hvorugt okkar spilar golf en við
höfðum heyrt af fólki sem var að
koma hingað saman í hóp og leigði
sér nokkur hótelherbergi og stemn-
ingin á kvöldin flosnaði svolítið upp.
Hver að fara inn á sitt herbergi og
ekki aðstaða til að eiga saman nota-
lega stund um kvöldið. Hér erum við
með hús og íbúðirnar á Básum þar
sem allir geta verið saman og haft
það huggulegt í stórum og vel bún-
um stofum. Farið í pottinn og grill-
að,“ segir Kristján.
Margrét segir þetta eigi ekki bara
við golfarana. „Það vilja allir geta
slappað af og öll hönnun húsanna
miðast við það.“
Útkoman glæsileg
„Maður hefur heyrt á fólki að það
vanti það sem kalla má lúxus þar
sem fólk vill hafa rúmt um sig og
geta notið þess að vera saman eða út
af fyrir sig. Sérstaklega núna vegna
Covid þegar fólk er ekki mikið að
fara utan. Eyðir meira innanlands
sem er hið besta mál. Þessari þörf
erum við að mæta,“ segir Kristján.
Pósthúsið, eitt af stærri húsum í
miðbæ Vestmannaeyja var í nið-
urníðslu þegar þau keyptu það á síð-
asta ári. Framkvæmdir hófust svo í
febrúar sl. og í dag er Nýja Póst-
húsið tilbúið, líka Básar og fjögur
hús. Básar og Pósthúsið hafa gengið
í endurnýjun lífdaga í nýju hlut-
verki, sannkölluð bæjarprýði. „Allt
gekk þetta vel og hingað erum við
komin,“ segir Margrét.
Og útkoman er glæsileg, húsin,
Básar og Nýja Pósthúsið standast
allar kröfur þægindi og innréttingar
allar mjög glæsilegar en um leið
smekklegar og bjóða alla velkomna.
Í allt eru þetta rúmlega 100 gisti-
rými og munar um minna þegar
kemur að stóru íþróttamótunum
sem haldin eru í Vestmannaeyjum
að ógleymdri Þjóðhátíðinni þegar
15.000 til 17.000 mæta til Eyja.
Margrét viðurkennir að þessi
hugmynd hafi orðið töluvert stærri
en lagt var upp með. „Þetta byrjaði
með húsunum, næst komu Básar og
svo bættist Pósthúsið einhvern veg-
inn við líka.“ „Og Gamli spítalinn,“
bætir Kristján við. Gamli spítalinn
stendur austan við Pósthúsið og á
sér merka sögu. Var upphaflega
spítali fyrir franska sjómenn í upp-
hafi síðustu aldar.
Góð fjárfesting en ekki hætt
Kristján segir að fjárfestingin sé
góð en þau eru ekki hætt. Um nokk-
urt skeið hefur verið í undirbúningi
bygging 1.400 fm baðlóns með full-
kominni aðstöðu á Nýja hrauninu
ofan við Skansinn og gengt höfninni.
Það fellur inn í hraunkantinn ofan
við innsiglinguna þaðan sem horft er
á Eyjafjallajökul, Heimaklett, Mið-
klett og Ystaklett að ógleymdri inn-
siglingunni sem er örugglega sú
stórkostlegasta á landinu og þótt
víðar væri leitað, höfnina og stóran
hluta af bænum. Gestir geta líka
gengið út í pott sem er frammi á
brúnni sem Kristján er viss um að
verði einstök upplifun. Þegar öll
leyfi liggja fyrir verður hafist
handa.
Margrét segir að augu þeirra fyr-
ir Vestmannaeyjum sem ferða-
mannastað hafi opnast við nánari
kynni. Nefnir veitingastaðina Gott,
Slippinn, Tangann og Einsa kalda.
Ribsafari bjóði upp á frábærar ferð-
ir í kringum Eyjar þar sem náttúr-
an, landslagið og lífið í sjónum
heillar og Eyjatours með magnaðar
ferðir um eyjuna. Gönguleiðir marg-
ar sem sjá má á www.vestmannaeyj-
ar.is.
„Hingað geta komið göngu-,
hlaupa-, hjóla- og golfhópar og Vest-
mannaeyjar eru nógu afskekktar til
að vera virkilega í fríi. Það er eins
og maður sé kominn til útlanda. Svo
öll þessi söfn, Eldheimar sem stand-
ast samanburð við það besta sem
sést í útlöndum og mjaldrarnir sem
heilla alla.“
Ljósmynd/Gunnar Svanberg
Búhamar Borðstofan í einu húsanna við Búhamar. Með þetta útsýni þarf ekki listaverk á veggi.
Ljósmynd/Gunnar Svanberg
Básar Ekkert til sparað í Básum og út um gluggana blasir Heimaklettur við, innsiglingin og höfnin.
Mörg tækifæri í ferðaþjónustu í Eyjum
- Margrét Skúladóttir Sigurz og Kristján Gunnar Ríkharðsson bjóða upp á lúxusgistingu í nýjum
húsum og húsum sem hafa gengið í endurnýjun lífdaga - Baðlón við Skansinn næsta verkefni
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Gestgjafar Margrét og Kristján héldu fjölmennt reisugildi í Básum á laug-
ardaginn, einu af húsunum sem þau hafa gefið nýtt líf.