Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 32
32 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Umræðan skilar samfélaginu meiri
og betri skilningi á röskun sem þús-
undir Íslendinga þurfa að fást við.
Þekkingin er meiri og fordómar
minni,“ segir Hrannar Björn Arn-
arsson, framkvæmdastjóri ADHD-
samtakanna. Venju samkvæmt var í
októbermánuði sl. staðið fyrir
fræðsluviðburðum, fundum, kynn-
ingum og fleiru slíku þar sem kast-
ljósinu var beint að athyglisbresti og
ofvirkni; því sem í daglegu tali er
nefnt ADHD. Þetta er taugaþroska-
röskun sem kemur yfirleitt fram
fyrir sjö ára aldur barna og getur
haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám
og félagslega stöðu.
Truflun í boðefnakerfi
Rannsóknir sýna að 5-10% barna
og unglinga glíma við röskun þessa;
þrír drengir á móti hverri einni
stúlku. Þó er talið að stúlkur í þess-
ari stöðu séu fleiri en áður var talið
en þær komi síður til greiningar. Or-
sakir ADHD eru oftast líffræðileg-
ar, það er truflun í boðefnakerfi
heila á þeim stöðvum sem stýra
hegðun. Fleira getur komið til, en
hve mikil röskunin er á líf fólks er
einstaklingsbundið. Ræðst meðal
annars af samspili við umhverfi og
samfélag.
Verkefnin í þágu skjólstæðinga
ADHD-samtakanna eru fjölmörg,
ekki síst í þágu fullorðinna. Þar
nefnir Hrannar mál eldri borgara
með ADHD; fólks sem hugsanlega
hefur aldrei fengið þá aðstoð sem
dugar. Satt að segja geri heilbrigð-
iskerfið ekki ráð fyrir því að fólk
sem farið er að eldast sé með þessa
röskun, enda þótt hún hafi hugsan-
lega litað allt lífshlaup viðkomandi.
„Á margan hátt er Ísland til fyrir-
myndar hvað varðar þjónustu við
fólk með athyglisbrest og ofvirkni
þótt gera megi enn betur,“ segir
Hrannar. „Í greiningum hefur fókus
sérfræðinga beinst að ofvirkni í
hreyfingu, en meðal kvenna kemur
ADHD helst fram sem ofvirkni í
hugsunum. Konur lenda því oft í erf-
iðri stöðu, til dæmis kulnun, hugs-
anlega komnar í krefjandi nám og
störf.“
Talið er að á Íslandi séu í dag um
20 þúsund manns með ADHD eða
tengdar raskanir. Þar af eru börnin
6.000 til 7.000. Samkvæmt viðmiðum
má ætla að um helmingur þeirra
vaxi frá einkennum sínum en öðrum
mæta áskoranir. Allur gangur er á
því hvernig börnum þessum farnast,
til dæmis í tómstundastarfi, en í ár
var sjónum beint að íþróttaiðkun
þeirra með málþinginu Orkuboltar
og íþróttir.
Greining er langt ferli
Um börnin gildir að ferli þeirra til
greiningar hefst gjarnan með at-
beina grunnskólans. Þá er börnun-
um oft vísað fyrst til helsugæslunn-
ar og síðan í frekari þjónustu,
samkvæmt ferli sem getur tekið 3-4
ár. Gjarnan hefur greining verið
gerð hjá Landspítalanum, en nú
standa yfir þær breytingar að aðeins
málum fullorðinna og flóknari tilvik-
um verður sinnt á sjúkrahúsinu.
Öðru verður sinnt af heilugæslunni.
Sjálfstætt starfandi geðlæknar og
sálfræðingar sinna meðferð, en
langur biðlisti er eftir þjónustu
þeirra.
„Mörg þeirra barna sem eru með
ADHD rekast röskunar sinnar
vegna á ýmsar hindranir samfélags-
ins. Vegna þessa meðal annars eru
kirkjugarðar, fangelsi og margir
fleiri staðir fullir af fólki með þessar
raskanir, sem þó getur bókstaflega
orðið bjargvættir heimsins bjóðist
því stuðningur við hæfi. Þar koma
lyfin sterk inn og gera fjölda fólks
mögulegt að taka virkan og vand-
ræðalítinn þátt í samfélaginu. Marg-
ir sem hafa fengið greiningu og lyf
hafa sagst að því fengnu geta nú tek-
ist á við við framtíðina og skilji for-
tíðina,“ segir Hrannar og að síðustu:
Skilningur er mikilvægur
„Annars hefur margt þróast til
betri vegar fyrir okkar fólk. Breyt-
ingin í grunnskólunum er mikil, þar
sem nú er í ríkari mæli lögð áhersla
á einstaklingsmiðað nám. Að skapa
þessum krökkum tækifæri í íþrótt-
um er líka mjög mikilvægt – og á
síðustu árum hafa rafíþróttirnar
komið þar sterkar inn. Mikilvægast-
ur er þó skilningur samfélagsins og
þar eru góðir hlutir að gerast.“
Þekking verður meiri
og fordómarnir minni
- ADHD-samtökin með vitundarvakningu - Röskun litar líf
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Velferð Á margan hátt er Ísland til fyrirmyndar hvað varðar þjónustu við
fólk með athyglisbrest og ofvirkni, segir Hrannar Björn Arnarsson.
Urður Njarðvík, prófessor við Há-
skóla Íslands, fékk á dögunum
Hvatningarverðlaun ADHD samtak-
anna, þau fyrstu sem veitt eru. Á
undanförnum árum hefur Unnur oft
flutt fyrirlestra á vettvangi samtak-
anna. Verið áfram um að fræða fag-
fólk og almenning um ADHD og
auka þannig skilning á þeim áskor-
unum sem börn í þessari stöðu
þurfa að mæta. Má þar nefna of-
þyngd, kvíða og þunglyndi.
Í erindum sínum hefur Urður
meðal annars vakið athygli á því hve
kvíði meðal drengja með ADHD er
algengur. Kvíðinn og mótþrói hald-
ast fylgjast svo oft að. Til að bregð-
ast við segir fagfólk að refsing sé
röng leið. Mótþrói helst oft í hendur
við kvíða. Fremur á að hughreysta
börnin, hvetja og hjálpa.
Unnur hefur einnig rannsakað
áhrif samkomubanns í heimsfaraldri
á líðan barna með athyglisbest og
ofvirkni. Tilfinningavandi, kvíði og
depurðareinkenni barna með þessa
röskun jukust marktækt í kófinu,
sem svo er kallað, en það hefur haft
smitandi áhrif á foreldra barnanna
og fjölskyldur. Munu þau eftir erfiða
ADHD tengist öðrum geðrænum
vanda og hegðun. Benda á atriði
sem leita ber eftir þegar greiningar
eru gerðar og finna bestu stuðn-
ings- og meðferðarleiðir,“ segir í
rökstuðningi með verðlaununum
góðu.
tíma því þurfa á verulegri aðstoð að
halda á næstu misserum.
Urður Njarðvík á að baki langan
feril sem sálfræðingur. „Allt rann-
sóknarstarf Urðar á sviði ADHD
beinist að því að bæta hag barna og
fólks með ADHD. Leiða í ljós hvernig
Finna bestu leiðirnar til stuðnings og meðferðar
URÐUR NJARÐVÍK FÉKK FYRSTU HVATNINGARVERÐLAUNIN
Heiður Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, og Urður Njarðvík pró-
fessor sem fékk verðlaunin fyrir störf sín og margvíslegar rannsóknir á síðustu árum.
Guðríður Aadnegard, námsráðgjafi
og umsjónarkennari við Grunnskól-
ann í Hveragerði, fékk hvatningar-
verðlaun sl. þriðjudag, á degi gegn
einelti við athöfn í Rimaskóla. Guðni
Th. Jóhannesson forseti Íslands og
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, afhentu
verðlaunin.
Fagráð gegn einelti hjá Mennta-
málastofnun valdi Guðríði úr inn-
sendum tilnefningum. Þar segir m.a.
um Guðríði að hún hafi undanfarna
áratugi unnið ómetanlegt starf í ein-
eltismálum og hún sé góð fyrirmynd
fyrir aðra kennara í samskipta-
málum nemenda.
„Hún hefur í gegnum tíðina sér-
staklega látið sig málefni nemenda
varða og nálgast þau af mikilli hlýju
og virðingu. Guðríður hefur einnig
látið til sín taka á vettvangi íþrótta
þar sem hún hefur starfað í broddi
fylkingar hjá HSK, UMFÍ og ÍSÍ.
Þar hefur hún sem fyrr ávallt haft
hag iðkenda að leiðarljósi og lagt
ríka áherslu á góð samskipti innan
vallar sem utan,“ segir m.a. í tilnefn-
ingunni.
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, for-
maður Heimilis og skóla, og Sigrún
Garcia Thorarensen, formaður fag-
ráðs gegn einelti, ávörpuðu sam-
komuna auk forseta og ráðherra.
Nemendur Rimaskóla settu einnig
skemmtilegan svip á dagskrána.
Ljósmynd/Heimili og skóli
Hvatning Guðríður Aadnegaard
fékk hvatningarverðlaunin í ár.
Fékk hvatning-
arverðlaun á
degi eineltis
- Guðríður Aadnegaard er náms-
ráðgjafi og kennari í Hveragerði
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífimínu
Ég lifði af