Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 38
í Vigo á Spáni, 1990, og bar áður nöfnin Rán HF, Otto Wathne NS og Ginnöy. Skipið var selt til Rússlands í sumar. Nesfiskur er meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins með tæplega 11 þúsund þorsk- ígildistonn samkvæmt yfirliti á heimasíðu Fiskistofu. Fyrirtækið er í 15. sæti yfir úthlutaðar afla- heimildir. Fyrirtækið hefur leigt til sín talsvert af heimildum og keypt fisk á markaði eftir þörfum vinnslunnar. Nesfiskur rekur fiskvinnslu í Garði og á tveimur stöðum í Sand- gerði, Ný-Fisk og Fiskverkun Ás- bergs. Afurðirnar eru ýmist seldar frystar, ferskar eða saltaðar. Þá á Nesfiskur rækjuvinnsluna Meleyri á Hvammstanga og hafa togskipin Berglín og Sóley Sigurjóns sótt á rækjumið úti fyrir Norðurlandi frá mars og fram í september síð- ustu ár. Alls starfa yfir 300 manns hjá Nesfiski og að sögn Bergþórs hafa margir starfsmennirnir verið lengi hjá fyrirtækinu. Nesfiskur er um- svifamikill í atvinnulífi Suð- urnesjabæjar, en svo heitir sveit- arfélagið eftir sameiningu Garðs og Sandgerðis. Þar búa um 3.700 manns. Nú er miðað við að nýr Baldvin verði afhentur Nesfiski á Spáni 20. nóvember og hann komi til Ís- lands viku síðar, en svona stórt skip getur ekki lagst að bryggju í Garði. Skipstjórar verða þeir Arn- ar Óskarsson og Þorsteinn Eyj- ólfsson. 26 manns verða í áhöfn hverju sinni, en tvær áhafnir verða á skipinu, alls 52 manns. Skipið er tæplega 66 metra langt og 16 metrar á breidd. Aðal- vél er frá Wartsila og skipið er búið fullkomnum tækjum, hvort sem um er að ræða brú, vélarrúm, millidekk eða frystilest. Sparneytið skip og mikil sjálfvirkni Bergþór segir mestu breyting- una vera hversu sparneytið og umhverfisvænt nýja skipið verði og lögð sé áhersla á bætta aðstöðu fyrir mannskapinn og betri með- ferð afla. Mikil sjálfvirkni sé í nýja skip- inu, sem fækki handtökum. Hann nefnir sérstaklega flokkun, pökk- un og vöruhótel í frystilest, sem er á tveimur hæðum, samtals 1.600 rúmmetrar. Þjarkar beina frosnum afurðum að sjálfvirkum pökkunarbúnaði, sem fara sjálf- virkt í kössum í hillur á lager. Þegar kassarnir eru orðnir það margir að þeir passi á bretti sér brettastaflari um að færa þá sjálf- virkt á brettin. Við löndun eru brettin tilbúin og tegundarflokkuð til útflutnings. Mörg skipanöfnin tengjast fjölskyldunni Auk frystitogarans nýja á Nes- fiskur átta önnur skip og gerir út á troll, dragnót og línu. Þau eru Sóley Sigurjóns GK 200, Berglín GK 300, Pálína Þórunn GK-49, Sigurfari GK 138, Siggi Bjarna GK 5, Benni Sæm GK 26, Bergur Vigfús GK 43, Dóri GK 42, Mar- grét GK 33 og Beta. Bergur og Beta hafa undanfarið verið bundin við bryggju og ekki verið gerð út. Bergþór segir ekki ljóst hvort og þá hvaða breytingar verði á út- gerðinni með tilkomu nýja skips- ins. Saga fjölskyldu eigendanna speglast í nöfnum skipanna. Berg- þór framkvæmdastjóri er sonur Baldvins Njálssonar og Þor- bjargar Bergsdóttur, en þau stofn- uðu Nesfisk fyrir 35 árum ásamt fjölskyldu sinni. Nýja skipið ber nafn Baldvins. Pálína Þórunn og Bergur Vigfús bera nöfn foreldra Þorbjargar. Margrét var systir Þorbjargar og nafnið á Dóra kem- ur líka úr hennar ætt. Sóley Sigurjóns er tengdamóðir Málfríðar, systur Bergþórs, og móðir Ingibergs Þorgeirssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra tækni- og þjónustusviðs Nefisks. Berglín er móðir Bergs Þórs Egg- ertssonar aðstoðarframkvæmda- stjóra og framkvæmdastjóra út- gerðarsviðs. Benni Sæm var langafi Bergþórs í föðurætt. Siggi Bjarna var bróðir langömmu Bergþórs og bar fyrsti bátur Nes- fisks nafnið Sigurður Bjarnason, sem var síðan stytt. Sigurfaranafnið er komið frá Vestmannaeyjum, en Nesfiskur keypti bát þaðan með þessu nafni og var það notað áfram þegar hann var endurnýjaður. Sömu sögu er að segja um Betu. Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason Í brúnni Mikið rými er í brú nýja skipsins þaðan sem sést til allra átta. Skipið er búið fullkomnum tækjum hvort sem um er að ræða í brú, vélarrúmi, millidekki, frystilest eða annars staðar. Sparneytið skip Magnús Þór Bjarnason í skrúfuhringnum en skrúfan er fimm metrar. Morgunblaðið/Eggert Þegar veður leyfir má reikna með að nokkur skip hefji loðnuveiðar norður af Vestfjörðum. Fram undan í vetur er stærsta loðnuvertíð í tæplega 20 ár með kvóta upp á um 630 þúsund tonn til uppsjávarskipanna. Undanfarið hafa skipin verið á síld og kolmunna og gengið vel. Þannig mokuðu þau upp 103 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld í september og október. Alls er aflinn 113 þúsund tonn í ár og hefur nánast allur feng- ist á Austfjarðamiðum, innan lög- sögu. Þá hafa skipin sótt í íslenska sumargotssíld vestur af landinu und- anfarið. Af kolmunna er búið að veiða 178 þúsund tonn í ár og hafa 32 þúsund fengist í íslenskri lögsögu. Það er talsvert meira en veiðst hefur í lög- sögunni síðustu ár. aij@mbl.is Loðnuveiðar hefjast senn Gert klárt Loðnunótin hífð um borð. 38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2021 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA st’ al og Stál og stansar Afurðaverð á markaði 10. nóv. 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 520,18 Þorskur, slægður 478,99 Ýsa, óslægð 422,41 Ýsa, slægð 413,35 Ufsi, óslægður 202,98 Ufsi, slægður 227,95 Gullkarfi 256,49 Blálanga, slægð 294,22 Langa, óslægð 257,38 Langa, slægð 296,92 Keila, óslægð 93,40 Keila, slægð 16,70 Steinbítur, slægður 594,22 Skötuselur, slægður 815,52 Skarkoli, slægður 480,47 Þykkvalúra, slægð 786,73 Langlúra, óslægð 11,00 Langlúra, slægð 242,75 Skrápflúra, óslægð 11,00 Skrápflúra, slægð 11,00 Bleikja, flök 3.176,00 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Hlýri, óslægður 361,36 Hlýri, slægður 639,45 Kinnfiskur/þorskur 1.199,00 Lúða, slægð 548,85 Lýsa, slægð 81,31 Sandhverfa, slægð 1.386,00 Stórkjafta, slægð 12,17 Undirmálsýsa, óslægð 180,90 Undirmálsýsa, slægð 189,00 Undirmálsþorskur, óslægður 264,93 Undirmálsþorskur, slægður 282,24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.