Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 ✝ Engilráð Birna Ólafsdóttir fæddist á Siglufirði 9. desember 1927. Hún lést á Hraun- búðum í Vest- mannaeyjum 3. nóv- ember 2021. Hún var dóttir hjónanna Ólafs Steingríms Ei- ríkssonar, ættaðs úr Ólafsfirði, f. 24.6. 1887, d. 16.12. 1985, og Friðrikku Björnsdóttur, ætt- aðri úr Flókadal í Fljótum, f. 14.9. 1900, d. 3.2. 1990. Systkini Birnu eru Kristín, f. 22.7. 1925, d. 24.10. 1992. Sigríður Magnea, f. 27.10. 1929. Haflína Ásta, f. 8.8. 1932. Eiríkur, f. 4.1. 1936, d. 30.4. 1996. Eygló Björg, f. 22.6. 1939. Anna Marsibil, f. 15.4. 1943, og Ólafur Reynir, f. 6.8. 1945. Bidda giftist Baldri Krist- inssyni 25.12. 1950. Baldur féll frá 25.1. 2004. Þeim varð ekki barna Baldurs en byggðu sér hús að Brekkugötu 13 og voru þar stærstan hluta af sinni sambúð. Bidda ólst upp í stórum systk- inahópi á Hlíðarvegi 16 á Siglu- firði. Það hefur verið þröngt stundum á Hlíðarveginum með þennan stóra hóp. Snemma var hún farin að vinna og sjá fyrir sér og létta undir með fjölskyldunni. Síld á sumrin og til gegninga í fjárhúsið með foreldrum sínum á vetrum. Einnig voru henni minn- isstæð sumrin í heyskap með hríf- una að vopni. Bidda var ekki langskólagengin en vissi sínu viti og stóð fast á sinni meiningu. Bidda kynntist Baldri í Eyjum. Hún hafði farið þangað í heim- sókn til Stínu systur sinnar sem þá hafði stofnað heimili þar ásamt manni sínum Gauja á Hvoli. Bidda var mest heimavinnandi hús- móðir. Þegar yfir lauk hafði Bidda bú- ið í meira en 70 ár í Eyjum. Þau hjónin voru dugleg að ferðast. Fóru nánast á hverju sumri á Siglufjörð. Svo kom að því að þau fóru utan. Bæði til Benidorm og Kanarí. Bidda verður jarðsungin frá Landakirkju 11. nóvember 2021 klukkan 13. auðið en áttu nú samt fjölmörg börn. Uppeldisbörn þeirra eru: 1) Júlía Berg- mannsdóttir, f. 10.6. 1963, d. 25.1.2006, hún var gift Jóhanni Frey Ragnarssyni, f. 13.8. 1965. Börn þeirra eru: Berg- lind, f. 27.3. 1986, í sambúð með Arnóri Péturssyni og þau eiga dæturnar Júlíu og Heklu og soninn Nóel. Ragnar Þór, f. 5.10. 1988. Hann er í sambúð með Bjarteyju Kjartansdóttur og eiga þau soninn Líam og dótturina París. 2) Sigurður Smári Benón- ýsson, f. 14.11. 1972, eiginkona hans er Sigríður Lára Andr- ésdóttir, f. 29.10. 1977. Börn þeirra eru Frans, Andrés Marel og Birna Dís. Baldur og Bidda bjuggu fyrst á Herjólfsgötu ásamt fjölskyldu Elsku Bidda mín, nú er biðin á enda, þú ert loks búin að hitta hann Baldur þinn á ný. Ég kynntist Baldri og Biddu þegar ég fór að venja komur mín- ar í kjallarann á Brekkugötunni og það leið ekki langur tími þar til þau hjónin fundu út að það var aukagestur í kjallaranum. Áður en ég vissi af þá var ég orðin tíð- ur gestur á efri hæðinni. Bidda var alltaf svo myndarleg í eld- húsinu og alltaf var hún með heitan mat í hádeginu, Bidda sá alltaf til þess að enginn færi svangur frá henni. Biddu og Baldur þótti okkur afskaplega vænt um og var það mikið áfall þegar hann Baldur féll frá. Bidda hélt áfram að búa í blokkinni, sem er svo nálægt skólanum sem krakkarnir okkar sóttu. Frans og Andrés fóru alla daga í hádegismat til ömmu Biddu, hún var yfirleitt búin að elda eitthvað sem hafði verið á óskalistanum þá vikuna. Alltaf fylgdu einhver sætindi með, drengjunum til mikillar ánægju. Þegar ég fór með Biddu í bæj- arferð þá snerust öll innkaup um hvað krakkana langaði í, hún var alltaf að hugsa um þau. Bidda var alltaf svo ljúf og yndisleg og þeg- ar við eignuðumst okkar síðasta barn og það var stúlka þá vorum við ekki lengi að ákveða að hún skyldi heita í höfuðið á Biddu og skírðum við hana Birnu Dís. Börnin okkar litu alltaf á Biddu sem ömmu sina og eiga þau dásamlegar minningar með henni og eiga þau eftir að sakna hennar mikið, þau voru alltaf til í að koma með okkur og kíkja á hana á Hraunbúðum og verður það hálfskrítið að eiga ekki leng- ur leið þangað til að heimsækja ljúfu og yndislegu Biddu. Ég veit að tíminn þinn var kom- inn, elsku Bidda, og þú varst tilbú- in að hitta hann Baldur þinn. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku Bidda, hvíldu í friði. Systkinum og öðrum aðstandend- um votta ég mína dýpstu samúð. Sigríður Lára Andrésdóttir. Í dag kveðjum við hana Biddu okkar. Hún var stóra systir mín sem ég gat alltaf leitað til. Það var ekki hægt að tala um Biddu öðruvísi en að tala um Baldur, því þau voru allt- af saman. Þau voru alltaf tilbúin að hjálpa okkur, við áttum öll heima á Brekkugötunni í Eyjum. Það var stutt fyrir krakkana að hlaupa til þeirra enda sóttust þeir mikið eftir því að vera hjá þeim. Svo kom gosið, þau fóru aftur heim en við ákváðum að setjast að í Keflavík en hún Júlía okkar var ekki ánægð með það, fór alltaf til Biddu og Baldurs úti í Eyj- um strax á vorin þegar skólinn var búinn. Seinna flutti hún alveg til þeirra, þau voru eins og foreldrar hennar, gerðu allt fyrir hana og börnin hennar urðu að afa- og ömmubörnum þeirra, sjálf áttu þau ekki börn. En öll börn í ættinni voru alltaf velkomin til þeirra. Árið 1988 keyptum við okkur saman sum- arbústað í Grímsnesi og þar var nú oft gaman og margar skemmtilegar sögur sagðar, það var mikið hlegið en nú er Bidda farin til Baldurs síns og Júlíu okkar. Blessuð sé minning hennar. Eygló, Bergmann, Finn- ur, Friðrik og Þórunn. Minningarnar sem ég á af Biddu eru bara fallegar og æðis- legar. Að vera hjá Biddu og Baldri var alltaf skemmtilegt og það var alltaf tekið vel á móti manni. Það sem ég man frá gosinu er að við fjölskyldan stóðum á tröppunum hjá þeim á Brekkugötu 13 og horfðum á eldtaumana skjótast upp í loftið. Ég var stundum svolít- ill fiktari og fékk ég oft að heyra það frá þeim Biddu og Baldri þeg- ar ég kveikti í háaloftinu hjá þeim í einni heimsókninni. Manni þótti gaman að fikta með eld og í þetta sinn fékk háaloftið hjá þeim aðeins að finna fyrir því. Ég man líka hvað það var gaman að fara á rúnt- inn á Saabinum hjá þeim og liggja í afturglugganum og þótti það bara nokkuð eðlilegt á þessum árum. Það yrði kallað algjört kæruleysi og glapræði í dag. Eitt sumarið var ég á Sigló hjá ömmu og afa á Hlíð- arvegi 16 eins og tíðkaðist hjá mér og fór með Biddu og Baldri heim til Keflavíkur í bíl. Á þessum árum voru nánast allir þjóðvegir malar- vegir og á miðri leið lenti bíllinn hjá Biddu og Baldri í grjótkasti og brotnaði framrúðan í þúsund mola. Nú voru góð ráð dýr og var stopp- að á næstu bensínstöð og keypt plastrúða. Hún var ekki glæsileg og man ég vel að Bidda var vel vaf- in af teppum í framsætinu og Bald- ur keyrði með hausinn út um gluggann bílstjóramegin. Allt fór nú vel og komumst við á leiðar- enda. Ég man líka að heima hjá þeim hjónum spilaði ég minn fyrsta tölvuleik, einhverra hluta vegna áttu þau Atari-leikjatölvu og var Tennis fyrsti tölvuleikurinn sem var spilaður. Þau hjónin voru einstök og var oft sem þau t.d. lánuðu manni hús- ið sitt t.d. yfir eitt stykki þjóðhátíð. Þau voru líka henni Júlíu systir minni alveg ómetanleg en hún ólst nánast upp hjá þeim eftir að hafa flutt til Eyja á unglingsárum sín- um. Þau hjónin keyptu svo á seinni árum bústað með mömmu og pabba í Grímsnesinu og var mjög gaman að eyða tíma með þeim og hjálpa til við bústaðinn. Bidda var alltaf dugleg að prjóna og öll börn- in okkar Boggu fengu að njóta þess með fallegum peysum sem hún prjónaði. Bidda, Baldur og Júlía eru núna sameinuð og vil ég trúa því að það hafi verið miklir fagnaðarfundir. Blessuð sé minning hennar Biddu. Friðrik (Rikki). Elsku Bidda mín, þá er ævin lið- in og síðasta ferðalagið fyrir hönd- um. Þar bíður draumaprinsinn með opinn faðminn. Þegar sest er niður og hugsað til baka kemur bros þitt fyrst upp í hugann sem og ánægjulegar minn- ingar með ykkur Baldri. Ég verð ævinlega þakklátur þegar ég hugsa um hvað þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu á liðnum árum, þá sérstaklega börnin sem eiga eftir að sakna þín mikið. Bidda hafði einstakt lag á börn- um, hún ýtti á einhvern ósýnilegan takka á þeim öllum frá fyrstu kynn- um og öll urðum við börnin hennar Biddu. Minningar eru margar og allar ánægjulegar, koma ykkar Baldurs á Hlíðarveg 16 á Siglufirði í gamla daga, sambúðin á Brekku- götunni sem gat ekki verið betri, ferðalögin í Brekkukot þar sem allt- af var gott að koma, samveran í Foldahrauninu síðustu árin eftir að Baldur féll frá var ómetanleg þar sem sögustundirnar frá Sigló gáfu okkur báðum hlýju í hjartað. Frá fyrstu minningu til þeirrar síðustu er ég þakklátur Biddu fyrir þær stundir sem við áttum saman og fyrir þá hlýju sem þú ávallt veittir mér. Við sem þekktum Biddu erum svo stolt af henni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Sigurður Smári og fjölskylda. Nóg er til í minningabankanum þegar við minnumst Biddu. Ég man fyrst eftir Biddu og Baldri á æskuárum mínum á Sigló. Þau komu á hverju sumri í heimsókn til ömmu og afa á Hlíðarveginn. Við bræður vorum spenntir að fá þau í heimsókn. Þeim fylgdu gjafir. Baldur tuskaðist við okkur guttana. Ég var í sveit á Úlfsstöðum á ár- unum 1968-1977 hjá Siggu systur Biddu og Magnúsi. Bidda og Bald- ur komu hvert sumar á Úlfsstaði í heyskap. Þau Úlfsstaðahjón sáu um orlofshús á Einarsstöðum. Þvotturinn þaðan var mikill. Bidda og Sigga sáu um hann. Magnús, Baldur, Höddi á Hvoli og ég um heyskapinn. Baldur var völundur til allra viðgerða á vélakostinum á Úlfsstöðum. Ekki veitti af því Magnús var ekki vélaviðgerðar- maður. Bidda og Sigga systir henn- ar sáu um þvottinn af Einarsstöð- um. Þegar Bidda var komin slapp ég við að brjóta saman með Siggu. Alla mína lífstíð hafa Bidda og Baldur haft mikil áhrif á mig og mína. Þegar við fjölskyldan ákváðum að flytja til Eyja frá Siglufirði 1989 bjó ég fyrstu mán- uðina hjá þeim á Brekkugötunni þar til fjölskyldan kom til Eyja. Þetta þótti þeim ekki tiltökumál. Vön að hafa einhvern úr fjölskyld- unni undir sínum verndarvæng. Baldur fann pláss fyrir mig á sjó með hjálp Hödda á Hvoli. Það er merkilegt með systkinin frá Hlíð- arvegi 16. Það var nóg, þegar þau hittust að horfa á hvort annað, þá sprungu þau úr hlátri. Einhver ósýnileg taug var á milli þeirra allra. Á Þjóðhátíð 1980 voru nokkur þeirra saman. Þar á meðal Eygló, Beddi, mamma, Siggi Benni og við pjakkarnir. Á sunnudeginum var hryggur í matinn og allir hjálpuð- ust að á Brekkugötunni. Bidda réttir Eygló ferkantaðan pott. Þú gerir sósuna. Eygló horfir fyrst á pottinn svo á Biddu. Spyr svo; hvernig geri ég kringlótta sósu í ferköntuðum potti? Við Bogga vor- um í miklum tengslum við Biddu og Baldur eftir að við fluttum til Eyja. Börnin okkar nutu góðs af og köll- uðu þau ömmu og afa. Fjölmargar bæjarferðir með Biddu eftir að Baldur féll frá. Árið 2013 fórum við með Biddu í bústaðinn hennar í Grímsnesinu. Vorum eina helgi. Það var skemmtilegt. Fórum um allt eins og hún og Baldur höfðu gert á árum áður. Laugarvatn, Reykholt, Gullfoss og Geysi, Flúðir og víðar. Bidda sagði eftir á að þetta væri eins og í gamla daga. það má ekki gleyma öllum ömmu- börnunum hennar. Þó að þeim Baldri yrði ekki barna auðið áttu þau sæg af þeim. Allir í minni fjöl- skyldu kalla hana ömmu Biddu og margir fleiri. Hún sagði oft að hún ætti fleiri börn og ömmubörn en margir aðrir. Elsku Bidda mín, við eigum öll eftir að sakna þín og allra heimsóknanna til þín. Þær verða ekki fleiri um sinn. Við Bogga erum betri manneskjur að hafa fengið að njóta nærveru þinnar. Stundum hvessti en alltaf stutt í sættir. það er sagt í okkar fjölskyldu; þetta er bölvuð Fljótaþrjóskan. Þú áttir nú smá af henni. Við Bogga og fjöl- skyldan kveðjum nú kæra frænku, vinkonu og ömmu hinstu kveðju. Við lofum að kveikja ljós hjá ykkur Baldri þegar við erum í Eyjum. Hvíl í friði. Valmundur Valmunds- son og fjölskylda. Elsku Bidda. Nú er kallið komið og loksins færðu að fara til hans Baldurs þíns. Mig langar að þakka fyrir vinskap- inn gegnum tíðina. Við vorum góð- ar vinkonur síðan 1989 þegar fjöl- skyldan mín flutti til Eyja. Börnin mín og síðar barnabörn fengu að njóta samverunnar við þig. Ómet- anleg reynsla fyrir þau út í lífið. Við áttum stundum harðar sennur en alltaf lögðum við vopnin til hliðar þegar af okkur rann bræðin. En hitt er allt miklu minnisstæðara, gæðastundirnar okkar. Allir bíltúr- arnir, innkaupaferðirnar, ferðirnar upp á land og svo allar læknaheim- sóknirnar. Ekki alltaf skemmtileg- ar en þú treystir mér alltaf til að vera með þér og vera trúnaðarvin- kona þín. Fyrir það er ég þakklát. Við náðum vel saman alla tíð og mér fannst þú vera mér eins og góð amma frekar en móðursystir mannsins míns. Þú stóðst alltaf föst á þinni meiningu svo eftir var tekið. Fjölskyldan þín kallaði þetta Fljótaþrjóskuna. Mér fannst gott að þú hafðir skoðanir þó við værum ekki alltaf sammála. Okkur létti mjög þegar þú fékkst til að fara á Hraunbúðir um árið. Auðvitað vild- ir þú vera heima í Foldahrauninu í þinni íbúð. En þú varst orðin völt á fótunum þrátt fyrir Fljótaþrjósk- una. Þegar elli kerling sótti meira að þér fór minnið að daprast en allt- af var jafn gaman að koma í heim- sókn. Fá súkkulaðimola eða harð- fisk og rifja upp gamlar minningar. Þegar við komum síðast í heimsókn þekktir þú okkur með nafni. Það er okkur Valla ómetanlegt. Elsku Bidda, kæra vinkona og svo miklu meira. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Þín Björg (Bogga). Engilráð Birna Ólafsdóttir Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Hjartkær móðir mín og tengdamóðir, GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR, Grandavegi 47, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 30. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. nóvember klukkan 15. Guðbjörg Magnúsdóttir Árni Jakob Larsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.