Morgunblaðið - 11.11.2021, Síða 51

Morgunblaðið - 11.11.2021, Síða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 ✝ Jón Frímann Sigvaldason bifreiðasmiður fæddist að Prest- húsum á Kjalarnesi þann 8. febrúar 1929. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi þann 30. októ- ber 2021. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir, f. 12.5. 1895, d. 30.7. 1979, og Sigvaldi Þorkelsson bóndi á Kjalarnesi, f. 5.9. 1897, d. 17.7. 1978. Jón átti tvö alsystkini og einn hálfbróður, Þau eru Guð- bjartur Hólm Guðbjartsson, bóndi í Króki á Kjalarnesi, f. 5.12. 1917, d. 8.11. 1989, Guðjón Hólm, f. 10.9. 1920, d. 3.7. 2001. Sigurbjörg húsmóðir, f. 11.11. 1926, d. 14.10. 2009. Eiginkona Jóns var Mary A. Sigurjóns- dóttir hjúkrunarkona, f. 20.3. 1930, d. 3.8. 2009, þau gengu í einkunn sem tekin hefur verið. Að námi loknu 1949-1952 rak hann þjónustuverkstæði að Reynihlíð í Mývatnssveit á sumrin en vann á veturna hjá Agli. Árin 1955-1956 Var Jón í hagnýtu starfsnámi í Svíþjóð. Árin 1958-1972 vann Jón sem framleiðslustjóri hjá Hansa hurðum. Árin 1972-1973 vann hann hjá BB húsgögnum í Hafn- arfirði. Það sem eftir var af starfsævinni starfaði Jón heima í bílskúrnum við bílasmíðina og lengi við þróun á plastviðgerð- um. Hann var frumkvöðull í plastviðgerðum á farartækjum á Íslandi og í samstarfi við Teknologisk institutt í Ósló. Hjónin Jón og Marý hófu bú- skap sinn að Laufásvegi 20 í Reykjavík árið 1952. Eftir að hafa ættleitt dóttur sína í byrjun árs 1962 byggðu þau sér ein- býlishús í Garðabæ og fluttu í það 16. nóvember 1963 þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Útför Jóns fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag, 11. nóvember 2021, kl. 13. hjónaband 11.7. 1953. Kjördóttir þeirra er Ragnheið- ur Edda, f. 1.7. 1961, maki Guð- mundur Þór Krist- jánsson pípulagn- ingameistari, f. 23.9. 1956, börn þeirra eru Líney Rut, f. 17.11. 1986, og Jón Grétar, f. 24.12. 1989. Lang- afabörnin eru tvö, Alex Tumi, f. 1.1. 2015, og Hektor Nói, f. 13.9. 2018. Fyrir hjónaband eignaðist Jón Sirúnu Lind, f. 20.9. 1950, og var hún ættleidd við fæðingu. Jón fluttist frá Presthúsum 1932 að Útkoti á Kjalarnesi þar sem hann bjó til 14 ára aldurs og fluttist þá til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni og hóf störf hjá Trésmiðjunni Akri. Hóf nám í bifreiðasmíði 16 ára gamall hjá Agli Vilhjálmssyni og útskrif- aðist 13. mars 1949 með hæstu Við hjónin kveðjum nú pabba og tengdaföður, hann fæddist árið 1929 og átti langa og við- burðaríka ævi og allt þar til í mars 2020 þegar hann greindist með krabbamein var hann mjög heilsuhraustur, svo fór að draga af honum í vor og hann veiktist af lungnabólgu þann 30. septem- ber og lést á líknardeildinni þann 30. október. Pabbi var sterkur karakter og stefnufastur og átti það til að taka sum mál aðeins of alvarlega að mínu mati og þegar hann beit eitthvað í sig var honum ekki hnikað. En hjálpsamur og bón- góður var hann og ef vantaði lausnir á einhverju í sambandi við smíðar eða annað þá settist hann niður og hugsaði, kom svo daginn eftir með lausnina og jafnvel útfært skapalón sem hann hafði verið fram á nótt að pæla í. Eftir að Gummi kom í fjölskylduna fór hann að aðstoða pabba við ýmsa hluti eins og að byggja garðstofuna við húsið og hinar ýmsu pípulagnir í gegnum árin og ýmislegt annað smálegt. Alltaf var hann afar þakklátur fyrir þá aðstoð. Gumma varð oft á orði hvað sá gamli var hand- laginn og fróður um alla hluti. Ég minnist þess þegar hann vann í bílskúrnum og vantaði einhver verkfæri þá var ekki hlaupið út í búð eftir þeim eða þau jafnvel ekki til, heldur voru þau bara búin til. Slík var nægjusemin með alla hluti. Vinnutíminn var ekkert 8-4 á þeim árum, það var farið út fyrir 7 á morgnana og unnið til mið- nættis með stuttum matarhléum og tilheyrandi hlustun á fréttir. Svo þegar ég var stelpuskott voru farnar laugardagsferðir á bensínstöðina hjá Dóra, þá fékk ég að fara með og fékk Conga- súkkulaði og Spur-flösku og á meðan ég sat á stól eða kók- kassa að maula súkkulaði spjöll- uðu karlarnir og tóku í nefið. Svo oftast á laugardögum var farin ferð á Bergþórugötuna til ömmu þar sem fjölskyldan hitt- ist í kaffi. Þetta var heilmikið ferðalag úr Garðahreppi á þeim tíma. Eftir að við Gummi eignuð- umst börnin komu pabbi og mamma oft og „stálu“ þeim og þá var gjarnan farið í bíltúr austur fyrir fjall og oftar en ekki endaði það með að þau gistu hjá ömmu og afa og við foreldrarnir fengum kærkomið frí. Elsku pabbi og tengdapabbi hvíldu í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir og tengdasonur, Ragnheiður Edda og Guðmundur Þór. Þá er hann farinn í sína hinstu ferð. Jón Sigvaldason föðurbróðir minn var fæddur á Kjalarnesi árið 1929, einn af fjórum systkinum. Þó lífið hafi verið erfitt á Kjalarnesi á þess- um árum eins og Jón sagði okk- ur eitt sinn þá hafði hann sterk- ar taugar til heimaslóðanna, fór þangað oft, þekkti hverja þúfu og kunni sögur af fólki um alla sveit. Ég var svo heppinn að kynnast frænda mínum alveg upp á nýtt fyrir nokkrum árum þegar hann féllst á að fara með mig á æskuslóðir þeirra systk- ina. Hann bætti um betur og kynnti mig fyrir öðrum frænda sem ég hafði ekkert vitað af, Sigurjóni Vilhjálmssyni. Saman fórum við í ferð upp á nes, tók- um hús á Óla frænda á Sjáv- arhólum sem fór með okkur vítt og breitt um nesið. Seinna bætt- um við um betur, leigðum rútu og buðum öllum „leggnum“ í ferð um Kjalarnes og Kjós. Ferðirnar urðu tvær því seinna fórum við, sami hópur, á heima- slóð Sigurjóns á Suðurnesin. Sjálfur var Jón víðförull, heimsótti fjölda landa og fjar- lægar heimsálfur. Hann kynnti sér ávallt vel menningu og hætti heimamanna, mundi allt sem fyrir augu hans hafði borið til síðasta dags og sagði skemmti- lega frá. Minni Jóns var í raun ótrúlegt. Að segja að hann hafi verið stálminnugur dugar varla til. Innrætingin í æsku var „gerðu rétt, þol ei órétt og að standa á sínu“, sagði Jón okkur fyrir nokkrum dögum. Eftir þessu lifði Jón og raunar systk- inin öll. Jón var hreinlyndur, frændrækinn og réttsýnn. Hann hafði skoðanir á öllu og var óhræddur að fylgja sínum málum eftir. Hann tók að sér óumbeðinn að tala fyrir málum sem hann brann fyrir eða taldi að haft væri rangt við. Oft nutu margir góðs af baráttu hans. Hann sökkti sér í efnið, fylgdi málum fast eftir og sló aldrei af. Til marks um skapgerð Jóns og systkina hans er frásögn af ferð móður hans á fund fræðslustjóra umdæmisins, sem þá var Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti Íslands. En sú heimsókn var afdrifarík og breytti skólagöngu fjölda ung- menna á Kjalarnesi til hins betra eins og sagnir eru um. Upp hafði komið mál í skólan- um sem sú gamla gat engan veginn sætt sig við og ákvað því að grípa til sinna ráða. Hún skellti sér í peysufötin og fór til Reykjavíkur og náði að knýja fram þær úrbætur sem þurfti. Jón upplifði margt á sinni ævi, þ. á m. hernám Breta í Hvalfirði og siglingu HMS Ho- od út Hvalfjörðinn í sína hinstu för. Hann mundi nákvæmlega hvar hann stóð í hlaðinu í Út- koti þegar skipið sigldi út fjörð- inn. Þegar braggamálið komst í hámæli í Reykjavík sagði Jón mér: „Það tók Bretana tvær vikur, tveir saman, að reisa hvern bragga.“ Jón var gæfumaður í einka- lífi, giftur Mary Sigurjónsdótt- ur sem lést árið 2009. Þau voru ákaflega samrýmd hjón svo að- dáun vakti. Saman ræktuðu þau garðinn sinn í Faxatúni í Garðabæ sem var bæjarprýði enda garðurinn margverðlaun- aður af bæjaryfirvöldum. Að leiðarlokum langar mig til að þakka frænda mínum fyr- ir samfylgdina, ekki síst síð- ustu árin, sögurnar, ferðirnar okkar og fyrir að sjá til þess að ég hitti föðurafa minn í þetta eina skipti á heimili hans og Maryar í Garðabænum um jólin árið 1970. Guð blessi minningu Jóns Sigvaldasonar. Stefán S. Guðjónsson. Við andlát Nonna frænda, föðurbróður míns, hrannast upp minningarnar, hann var yngstur systkinanna og kveður síðastur. Hann sagði mér að hann hefði séð mig strax á fyrsta degi, ljóst er að með hon- um fer sá sem hafði þekkt mig lengst og ég sagði gjarnan í bernsku þegar leikfang skemmdist hjá mér Nonni frændi getur lagað þetta, og oftar en ekki var svo enda var hann lærður bifreiðasmiður og mjög laghentur. Hann gerði ekki alltaf það sem var venjulegt, hann og Mary fóru til Svíþjóðar rétt fyrir 1960 og voru þar í nokkur ár, áður en þau komu heim fóru þau í mikið ferðalag um alla Evrópu sem var mjög óvenju- legt á þeim árum, tóku mikið af svokölluðum skuggamyndum (slides) og vörpuðu þeim upp á vegg okkur hinum til skemmt- unar. Seinna áttu þau eftir að fara mjög víða. Minningar mínar frá starfs- ferli Nonna eru þær helstar að hann vann hjá Hansa h/f á Laugavegi við að búa til Hansa- hurðir, léttar plastklæddar rennihurðir er héngu í braut, síðar gerði hann upp allmarga tjónabíla í bílskúrnum í Faxat- úninu og sóttust menn eftir að kaupa bílana af honum enda þekktur að vandvirkni og ná- kvæmni. Þegar hann byggði bílskúr- inn hafði hann gryfju í honum, steypti lykkjur í hliðarnar og þá gat hann fest bílana og gráðumælt þá. Seinustu árin á vinnumark- aði var hann frumkvöðull í við- gerðum á plasthlutum bíla og vann við það í bílskúrnum, fag- mennskan var þar í fyrirrúmi eins og alltaf. Hann sýndi mér hvernig hann fann út hvaða efni áttu við í viðgerðina hverju sinni því plast var ekki bara Jón Fr. Sigvaldason plast, nákvæmur og vandvirkur var hann eins og alltaf. Á síðasta ári ók hann einn norður í land og fór víða enda var hann við ótrúlega góða heilsu lengst af, sjálfstæður og bjó einn. Við Inga vottum Raggí og fjölskyldu samúð okkar og minningin um góðan föðurbróð- ur lifir. Jóhann G. Guðjónsson. Í dag verður til moldar borinn Jón Fr. Sigvaldason, kær vinur um áratugaskeið. Jón var hörkuduglegur og hugmynda- ríkur. Hann var traustur og viljasterkur og stóð við orð sín. Hann ætlaðist til hins sama af öðrum. Jón var trúaður og vann mikið sjálfboðaliðastarf með bræðrafélagi kirkjunnar í Garðabæ m.a. við byggingu Ví- dalínskirkju og safnaðarheimilis þar. Jón var óhræddur við að berj- ast fyrir því sem hann taldi rétt. Hann lagði mikinn tíma og fjár- muni í málaferli við Steypustöð- ina vegna gallaðrar steypu en flestir töldu þessi málaferli von- laus. En að lokum lagði Jón Steypustöðina. Þegar hitaveita kom í Garðabæ voru settir heml- ar í öll hús í Garðabæ, en ekki mælar. Jón vildi fá mæli og að- eins borga fyrir það vatn sem hann notaði. Hitaveitan og bæj- aryfirvöld neituðu. Jón safnaði gögnum og rúmlega tveimur ár- um seinna voru komnir mælar í öll hús í Garðabæ. Jón var alltaf sveitastrákur og hafði mikinn áhuga á dýrum og gróðri. Þau Mary eyddu ómældum tíma við vinnu í garð- inum í Faxatúninu með góðum árangri. Garðurinn var a.m.k. tvisvar verðlaunaður af bænum fyrir fegurð og snyrtimennsku. Jón og Mary kona hans voru samrýnd hjón. Þau ferðuðust mikið saman bæði innanlands og erlendis og komu til yfir 70 landa. Það var gaman að hlusta á ferðasögur hjá Jóni því hann var góður sögumaður og minnið ótrúlega gott. Fráfall Maryar var Jóni mikið áfall. Hann fór oft að leiði hennar og talaði við hana um það sem honum lá á hjarta. Hann gladdist innilega við til- hugsunina um endurfundi þeirra hinum megin. Jón var heiðursfélagi í Nor- ræna félaginu í Garðabæ og tók virkan þátt í störfum þess. Jón var góður ljósmyndari og tók myndir fyrir félagið, sérstak- lega á vinabæjamótum hjá nor- rænu vinabæjunum. Jón var alltaf tilbúinn að leggja sitt af mörkum. Hann náði góðu sam- bandi við fólk og þá sérstaklega nágrannana, sem reyndust hon- um vel þegar á þurfti að halda. Hann var ótrúlega úrræðagóð- ur. T.d. fékk hann falleg dagatöl hjá Eimskipafélaginu sem við pökkuðum síðan inn og sendum norrænafélagsvinum á Norður- löndunum með jólakveðju. Ekki má gleyma fuglunum. Þegar Jón keyrði inn í Faxatún- ið flykktust fuglar inn í garðinn hjá honum því fuglunum hafði hann gefið í áratugi og hafði sér- staka frystikistu undir fitu og mat handa þeim í bílskúrnum. Jón varð 92 ára og lifði lífinu til fullnustu nánast alveg til síð- asta dags. Jóns verður saknað bæði af mönnum og málleysingj- um. Við vottum ættingjum hans og vinum innilega samúð. Hilmar og Hugrún. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR framhaldsskólakennari, sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund 3. nóvember, verður jarðsungin mánudaginn 15. nóvember klukkan 13 í Neskirkju. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Margrét Birna Skúladóttir Árni Tómasson Erla Björg Skúladóttir Bradley James Boyer Jón Barðason Sigríður Einarsdóttir Skúli Björn Jónsson Barði Már Jónsson Lára Jóhanna Jónsdóttir Berglind Þóra Árnadóttir Björn Steinar Árnason Guðný Anna Árnadóttir Savanna Eyrún Boyer og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, GUÐMUNDUR PÉTURSSON, Gulaþingi 34, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi 2. nóvember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. nóvember klukkan 13. F.h. nánustu ættingja og vina, Jóna E. Jónsdóttir Hjartkær eiginkona mín, ÞÓRA DAVÍÐSDÓTTIR, Suðurlandsbraut 60, sem lést 27. október, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 15. nóvember klukkan 15. Minnt skal á þakkarskuld við hjúkrunarheimilið Mörk. Ólafur Pálmason Ástkær systir mín og frænka okkar, ÁSA G. SÆMUNDSDÓTTIR, sem lést 3. nóvember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. nóvember klukkan 13. Haraldur Sæmundsson og systkinabörn hinnar látnu Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HILDUR FRIÐJÓNSDÓTTIR, Langholtsvegi 86, Reykjavík, lést 6. nóvember. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 19. nóvember klukkan 11. Kristín Guðrún Jóhannsd. Jóhann Steinar Guðmunds. Fjóla Íris Stefánsdóttir og ömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.