Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. SINGLESDAY 30% AFSLÁTTUR af öllummeðferðum, gjafabréfum og húðvörum. Nýttu tilboðið á hudfegrun.is eða hringdu. TILBOÐIÐ GILDIR AÐEINS Í DAG 11. 11. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Hugmyndin kom til Braga þegar hann var að gefa út sína fyrstu skáld- sögu, Austur, skáldsögu í 33 köflum, árið 2019. „Ég hafði unnið að henni í þrjú ár og haft hugmyndina í koll- inum talsvert lengur. Þar fyrir utan hafði mig dreymt um að skrifa skáld- sögu síðan ég var barn. Þannig að þarna var komið mómentið, loksins. Bók sem ég hafði mikla trú á, vissi að fólk myndi hafa gaman af, en hún var eiginlega andvana fædd. Fyrir mannleg mistök fór vitlaust skjal í prent og var bók- in því innkölluð. Það þýddi að hún komst ekki í hendur gagnrýn- enda fyrr en of seint til þess að eiga séns í flóðinu. Þrátt fyrir það fékk hún mjög já- kvæða dóma eftir jól, en lestin var farin,“ segir Bragi í viðtali við mbl.is. Austur fékk reyndar uppreisn æru í faraldrinum og nú er verið að vinna kvikmyndahandrit upp úr henni. „En það er ekki punkturinn. Punkturinn er sá að þessi jól var Arnaldur, einu sinni sem oftar, mest seldi höfundur landsins, eins og hann er á hverju ári. Hann á mjög dygga lesendur og þjónar þeim vel, enda vinsælasti höf- undur undanfarinna tveggja áratuga. Ég fór að grínast með það við vini mína að næsta skáldsaga mín myndi byrja þannig að Arnaldur Indriðason fyndist látinn í kjallaraíbúð í Norð- urmýri, og yrði krimmi. Ég gæti ekki lengur þjónað listagyðjunni, ég yrði að fara að selja einhverjar bækur. Þetta spaug vatt svo talsvert upp á sig,“ segir Bragi. Seinna var hann á sjó með pabba sínum, nýbúinn að fá ritlaun, og ræddu þeir feðgar hvaða hugmyndir hann hefði að skáldsög- um. „Ég var með þrjár, eina hugmynd sem ég hafði fengið úthlutað fyrir, aðra sem ég átti talsvert góða smá- sögu til að byggja á og svo þessa óljósu pælingu um sögu sem hefst á líkfundi Arnalds. Pabbi sagði að það væri sú bók sem hann hefði mestan áhuga á að lesa. Þar með var það ákveðið. Þetta er heiðarlega svarið við því hvers vegna ég skrifaði þessa bók,“ segir Bragi. Arnaldur sem persóna ekki aðalmálið Einhverjum gæti þótt titillinn stuðandi og jafnvel eitthvað skrítið við að Bragi skyldi skrifa um morðið á einum ástsælasta glæpasagnahöf- undi þjóðarinnar. Bragi segir að Arn- aldur skipti í raun engu máli í þessu samhengi, það sé bara goðsögnin, sem er söluhæsti og vinsælasti höf- undur landsins síðustu tuttugu ár. „Ástæða þess að morðinginn valdi Arnald er vegna þess hversu vel hon- um hefur gengið. Ef Elísabet Jökuls- dóttir hefði verið vinsælasti höfundur síðustu 20 ára þá hefði morðinginn drepið hana og bókin héti „Elísabet Jökulsdóttir deyr“. Ef Jón Kalman hefði verið mest seldur héti bókin „Jón Kalman deyr“. Persóna Arnalds er algjört aukaatriði,“ segir Bragi sem lagði sig fram við að sýna Arnald á sem bestan hátt í bókinni og bætir við að hann hafi alls ekki átt skilið að vera í drepinn í bókinni, ekki frekar en í raunveruleikanum. „Mér finnst í rauninni mjög sér- stakt að enginn annar höfundur hafi tekið upp á því að gera Arnald að við- fangsefni í sögu eftir sig, því hann al- gjörlega trónir yfir okkur öllum. Hann er mælistikan sem allir rithöf- undar landsins miða sig við. Hann býr í hausnum á okkur og borgar þar enga leigu. Var ekki bara tímaspurs- mál hvenær hann rataði þaðan og á síður skáldverks?“ „Þegar ég skrifa sögur er ég bara í dúkkuleik“ Í bókinni koma fleiri þjóðþekktir Íslendingar en Arnaldur fyrir. Spurður hvernig það sé að skrifa um raunverulegt lifandi fólk, hvort það sé hægt að gera því góð skil og hvernig tilfinningin sé að vita að þetta sama fólk muni lesa bókina, vís- „Arnaldur á ekki skilið að vera drepinn“ Rithöfundurinn Bragi Páll Sigurðarson gaf nýverið út sína aðra skáldsögu, bókina Arnaldur Indriðason deyr. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar hún um morðið á Arnaldi Indriðasyni og fléttast þar fjöldi persóna úr raunveru- leikanum inn í frásögn Braga. Bragi fékkst við ýmislegt á meðan hann skrifaði bókina, hann var að gera upp íbúð, á tvö börn og þar að auki var hann að klára skipstjórnarnám. Morgunblaðið/Eggert Rithöfundur Bragi Páll Sigurð- arson sendi frá sér sína aðra skáldsögu nú fyrir jólin. 5 SJÁ SÍÐU 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.