Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 58

Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 7 rétta jólaseðill FRÁ KL. 17 Aðeins framreitt fyrir allt borðið. Austurstræti 16 Sími 551 0011APOTEK KITCHEN+BAR FORRÉTTIR ÍSLENSKT LANDSLAG Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur rjómaostur, graslauks-mayo, ediksnjór GRAFINN LAX Fennelkrem, dill-mæjó, hindber, hrogn og rúgbrauð DÁDÝRA TATAKI Pikklaður rauðlaukur, enoki sveppir, “crispy” jarðskokkar, trufflu & yuzu- mayo PÖNNUSTEIKT RISAHÖRPUSKEL Jólatré, grænertupurée, beurre noisette AÐALRÉTTIR ANDABRINGA Sellerípurée, epli, pikklað fennel og kirsuberjasósa GRILLUÐ NAUTALUND Steiktar gulrætur með pistasíum, jarðskokka- og hvítsúkkulaðipurée, jólabjórs-hollandaise EFTIRRÉTTUR JÓLAKÚLA Saltkaramellu- hvítsúkkulaðimús, epla- og engiferfylling, kryddkex 9.900 kr. Borðapantanir á apotek.is JÓLIN Á APOTEKINU Kökur 230 g smjör við stofuhita, jafnvel mýkra 110 g sykur 200 g púðursykur 2 egg (best við stofuhita) 2 tsk. vanilludropar 375 g hveiti 1 tsk. matarsódi 1 tsk. fínt borðsalt 360 g dökkir súkkulaðidropar eða smátt skorið dökkt súkkulaði Krem 250 g mjúkt smjör 400 g flórsykur 1 tsk. vanilludropar 3 msk. rjómi Kökur Hitið ofninn á 175 °C blástur. Þeytið vel saman allan sykur og smjör þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið næst við vanilludropum og einu eggi í einu og hafið hrærivélina í gangi á meðan. Takið aðra skál og sigtið í hana hveiti, matarsóda og salt og leggið til hliðar. Leyfið deiginu í hrærivélarskálinni að þeytast vel saman þar til það er orðið fallega loftkennt og ljóst (gott að þeyta eins og í 5-6 mínútur). Bætið þá hveitinu út í meðan vélin er enn í gangi í 2-3 skömmtum og hrærið allan tímann þar til orðið fallega klístrað deig. Bætið að lokum við súkkulaðidropum og hrærið ann- aðhvort á lægsta í hrærivél eða með sleif þar til súkku- laðið er nægilega blandað við deigið (passa að hræra ekki of mikið ef gert er í hrærivél, þá brotnar súkkulaðið). Mótið næst kúlur úr deiginu með ísskeið eða 2-3 msk. af deigi, hver kúla á að vera á stærð við borðtenniskúlu eða golfkúlu. Raðið níu kúlum á bökunarplötu með bökunarpappa og þrýstið þumalputta niður í miðja kúluna svo það komi dæld. Bakið svo hverja plötu í 12-15 mínútur. Ég bakaði mín- ar í 12 mín. en þær eru eins og smá hráar nýkomnar úr ofninum, en þannig eiga þær að vera til að fá mjúka miðju. Ef ykkur finnst þær ekki nógu flatar þegar þær koma úr ofninum má þrýsta á þær með spaða og kremja þær aðeins niður. Látið standa á heitri bökunarplötunni í eins og 10 mín- útur áður en þið færið yfir á grind og látið kólna þar al- veg áður en kremið er sett á. Krem Þeytið smjörið mjög vel og lengi þar til það er orðið loftkennt, mjúkt og ljóst (alveg í góðar 15 mínútur á háum hraða). Sigtið næst flórsykur út í smjörið og bætið við van- illudropum og rjóma og stillið fyrst á lítinn kraft svo flór- sykur fari ekki um allt. Hækkið svo upp í mjög mikinn hraða og þeytið í aðrar 15 mínútur svo kremið verði fallega mjúkt, loftkennt og ljóst. Þegar kökurnar hafa alveg kólnað setjið þá kremið í sprautupoka með stjörnustút og sprautið á eina köku og lokið svo með annarri ofan á. Það má líka smyrja kreminu á ef þið viljið sleppa við að sprauta því. Smákökur með vanillu- kremi og mjúkri miðju María Gomez á Paz.is leikur hér á als oddi en hún veit fátt skemmtilegra en að fullkomna uppskriftir sem hún hef- ur dálæti á. Þessar kökur sá hún á kaffihúsi nýverið og ákvað að baka sína eigin útgáfu af þeim. Ljósmynd/María Gomez Sparikrem María segir að það megi alveg sleppa krem- inu, kökurnar einar og sér séu algjört sælgæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.