Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
7 rétta jólaseðill
FRÁ KL. 17
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
Austurstræti 16 Sími 551 0011APOTEK KITCHEN+BAR
FORRÉTTIR
ÍSLENSKT LANDSLAG
Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur rjómaostur,
graslauks-mayo, ediksnjór
GRAFINN LAX
Fennelkrem, dill-mæjó, hindber, hrogn og rúgbrauð
DÁDÝRA TATAKI
Pikklaður rauðlaukur, enoki sveppir, “crispy”
jarðskokkar, trufflu & yuzu- mayo
PÖNNUSTEIKT RISAHÖRPUSKEL
Jólatré, grænertupurée, beurre noisette
AÐALRÉTTIR
ANDABRINGA
Sellerípurée, epli, pikklað fennel og kirsuberjasósa
GRILLUÐ NAUTALUND
Steiktar gulrætur með pistasíum, jarðskokka- og
hvítsúkkulaðipurée, jólabjórs-hollandaise
EFTIRRÉTTUR
JÓLAKÚLA
Saltkaramellu- hvítsúkkulaðimús, epla- og
engiferfylling, kryddkex
9.900 kr.
Borðapantanir á apotek.is
JÓLIN Á
APOTEKINU
Kökur
230 g smjör við stofuhita, jafnvel mýkra
110 g sykur
200 g púðursykur
2 egg (best við stofuhita)
2 tsk. vanilludropar
375 g hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. fínt borðsalt
360 g dökkir súkkulaðidropar eða smátt skorið dökkt
súkkulaði
Krem
250 g mjúkt smjör
400 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
3 msk. rjómi
Kökur
Hitið ofninn á 175 °C blástur.
Þeytið vel saman allan sykur og smjör þar til það er
orðið létt og ljóst.
Bætið næst við vanilludropum og einu eggi í einu og
hafið hrærivélina í gangi á meðan.
Takið aðra skál og sigtið í hana hveiti, matarsóda og
salt og leggið til hliðar.
Leyfið deiginu í hrærivélarskálinni að þeytast vel
saman þar til það er orðið fallega loftkennt og ljóst (gott
að þeyta eins og í 5-6 mínútur).
Bætið þá hveitinu út í meðan vélin er enn í gangi í 2-3
skömmtum og hrærið allan tímann þar til orðið fallega
klístrað deig.
Bætið að lokum við súkkulaðidropum og hrærið ann-
aðhvort á lægsta í hrærivél eða með sleif þar til súkku-
laðið er nægilega blandað við deigið (passa að hræra ekki
of mikið ef gert er í hrærivél, þá brotnar súkkulaðið).
Mótið næst kúlur úr deiginu með ísskeið eða 2-3 msk.
af deigi, hver kúla á að vera á stærð við borðtenniskúlu
eða golfkúlu.
Raðið níu kúlum á bökunarplötu með bökunarpappa
og þrýstið þumalputta niður í miðja kúluna svo það komi
dæld.
Bakið svo hverja plötu í 12-15 mínútur. Ég bakaði mín-
ar í 12 mín. en þær eru eins og smá hráar nýkomnar úr
ofninum, en þannig eiga þær að vera til að fá mjúka
miðju.
Ef ykkur finnst þær ekki nógu flatar þegar þær koma
úr ofninum má þrýsta á þær með spaða og kremja þær
aðeins niður.
Látið standa á heitri bökunarplötunni í eins og 10 mín-
útur áður en þið færið yfir á grind og látið kólna þar al-
veg áður en kremið er sett á.
Krem
Þeytið smjörið mjög vel og lengi þar til það er orðið
loftkennt, mjúkt og ljóst (alveg í góðar 15 mínútur á
háum hraða).
Sigtið næst flórsykur út í smjörið og bætið við van-
illudropum og rjóma og stillið fyrst á lítinn kraft svo flór-
sykur fari ekki um allt.
Hækkið svo upp í mjög mikinn hraða og þeytið í aðrar
15 mínútur svo kremið verði fallega mjúkt, loftkennt og
ljóst.
Þegar kökurnar hafa alveg kólnað setjið þá kremið í
sprautupoka með stjörnustút og sprautið á eina köku og
lokið svo með annarri ofan á. Það má líka smyrja kreminu
á ef þið viljið sleppa við að sprauta því.
Smákökur með vanillu-
kremi og mjúkri miðju
María Gomez á Paz.is leikur hér á als
oddi en hún veit fátt skemmtilegra en
að fullkomna uppskriftir sem hún hef-
ur dálæti á. Þessar kökur sá hún á
kaffihúsi nýverið og ákvað að baka
sína eigin útgáfu af þeim.
Ljósmynd/María Gomez
Sparikrem María segir að það megi alveg sleppa krem-
inu, kökurnar einar og sér séu algjört sælgæti.