Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 69
ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Við sjáum æ fleiri dæmi þess að fólk um fertugt sé í atvinnu- mennsku í ýmsum íþróttum. Á síðustu dögum hafa verið sagðar fréttir af knattspyrnufólkinu Zlatan Ibrahimovic, sem lenti í því að verða fertugur, og Carli Lloyd, sem ákvað að láta gott heita 39 ára gömul. Alexander Petersson er lygi- lega vel á sig kominn í erfiðri deild í handboltanum en hann er 41 árs. Stórliðið Los Angeles Lakers vekur athygli fyrir að tefla fram nokkrum leikmönnum á milli 35 og 40 ára í körfubolt- anum í vetur. Líklega er fram- ganga Toms Bradys í ameríska fótboltanum merkilegust. Hann leiddi lið til sigurs í NFL í byrjun árs eins og frægt varð og var þá á 44. aldursári. Viðmiðin í huga fólks um hversu lengi sé hægt að vera í fremstu röð hafa breyst mikið á tiltölulega skömmum tíma. Nú horfir íþróttafólkið ekki svo mik- ið í kennitöluna þegar það veltir fyrir sér starfslokum. Lætur þau frekar ráðast af því hvort lík- aminn þoli álagið, hvort frammi- staðan sé enn góð og hvort áhuginn sé enn fyrir hendi. Í allnokkrum greinum er auk þess hægt að ná framúrskarandi árangri eftir fertugt. Í ólympíu- greinum eins og skotfimi er meiri yfirvegun og ró gulls ígildi. Svipað má segja um pílukastið. Kylfingar geta slegið vel fram eftir aldri. Jafnvel slegið í gegn. Á dögunum ræddi samstarfs- maður minn við mig um Ronnie O’Sullivan, sexfaldan heims- meistara í snóker. Sá er 45 ára og varð síðast heimsmeistari í fyrra. Þ.e.a.s O’Sullivan. Við ræddum ýmis forvitnileg atriði eins og sjónina, og tilfinningu í fingrum, hjá íþróttafólki sem nálgast fimmtugt. En erfitt er fyrir mig, ungan manninn, að leggja mat á slíkt. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is KÖRFUBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í körfu- knattleik hefur leik í undankeppni EM 2023 þegar liðið sækir Rúmeníu heim í dag. Eftir þann leik mætir ís- lenska liðið Ungverjalandi á Ásvöll- um næstkomandi sunnudag. Bene- dikt Guðmundsson landsliðsþjálfari segir verkefnið fram undan leggjast afskaplega vel í liðið. „Bara rosalega vel, mér líst rosa- lega vel á hópinn. Auðvitað vantar stóra pósta en ég held að við séum með ofboðslega spennandi og skemmtilegan hóp í höndunum. Margar ungar stelpur sem við vilj- um gefa reynslu og leggja inn í bankann. Þetta eru stelpur sem eru ofboðslega duglegar og vinnusamar, það er alltaf gaman að vinna með svoleiðis leikmönnum,“ sagði Bene- dikt í samtali við Morgunblaðið. Spurður um möguleika Íslands í leikjunum tveimur sagði hann: „Við erum eins og vanalega að keppa við stærri þjóðir og við leikmenn sem eru að spila á hærra stigi en við er- um kannski að gera heima. En við teljum okkur alla vega geta keppt við þessi lið. Ég er eitthvað aðeins farinn að hugsa um Ungverjana en einbeiti mér aðallega að Rúmen- unum núna. Við teljum okkur eiga möguleika gegn Rúmenum. Ég hef bullandi trú á því að þessar stelpur geti gert góða hluti gegn þeim.“ Spennandi framtíðarstelpur Áðurnefndir stórir póstar sem Benedikt nefnir eru þær Helena Sverrisdóttir og Hildur Björg Kjart- ansdóttir, sem báðar eru frá vegna meiðsla. „Það þarf ekkert að fjölyrða um hversu góðir leikmenn þær eru. Þetta eru tveir bestu leikmennirnir sem við eigum og Helena er bara besti leikmaður sem við eigum frá upphafi. Mikilvægi þessara leik- manna hefur sýnt sig margoft en við teljum okkur hafa náð að setja sam- an öflugt lið engu að síður. Auðvitað söknum við þessara leik- manna, alveg gríðarlega, en þeir eru bara í meiðslum núna og það þýðir ekkert að væla og skæla yfir því. Við ætlum alls ekki að gera það og setj- um bara aukna ábyrgð á þær sem við höfum. Við erum með meðalaldur upp á 22 ár núna og vitum að þetta lið verður ekki gott bara í einum glugga en við erum spennt fyrir þessum framtíðarstelpum sem eru að fara að keppa á morgun [í dag],“ sagði hann. Markmiðin skýr Hefur Benedikt áhyggjur af reynsluleysi í hópnum? „Nei ég lít ekki á það sem áhyggjur, ég er gríð- arlega spenntur að sjá hvernig þær koma inn í þetta því að ég hef bara það mikla trú á þeim. Þetta eru stelpur sem þurfa bara smá reynslu á þessu alþjóðlega sviði og þá held ég að framtíðin sé björt hjá íslenska landsliðinu. En auðvitað er ég ekkert að ætl- ast til þess að þær spili eins og reynsluboltar á morgun [í dag]. Kannski er ég kominn lengra en ég á að vera kominn því að maður er að hugsa til næstu ára. Ekki horfa bara í daginn í dag heldur að taka inn stelpur sem við teljum að eigi fram- tíðina fyrir sér í landsliðinu næsta áratuginn eða svo.“ Að lokum sagði hann markmiðin fyrir komandi undankeppni skýr. „Markmiðin eru að ná í einhverja sigra, það er alveg klárt. Það er eitt- hvað sem við ætlum okkur, það tókst ekki í síðustu undankeppni þannig að það er klárlega aðalmarkmiðið í þessari undankeppni.“ Ljósmynd/FIBA Reynsla Sara Rún Hinriksdóttir er á meðal reynslumestu leikmannanna í ungum leikmannahópi íslenska kvennalandsliðsins í körfuknattleik. Hef bullandi trú á stelpunum - Undankeppni EM hefst í dag - Stórir póstar fjarverandi - Stefna á sigra var um tíma 12:6 og 17:10,“ skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. HK og Víkingur stigalaus Nýliðar HK og Víkings úr Reykjavík eru enn án stiga í neðstu tveimur sætum deildarinnar eftir töp á heimavöllum sínum í gær- kvöldi. HK laut í lægra haldi, 23:28, gegn Selfossi, og Víkingur steinlá, 20:31, fyrir Haukum. Haukar fóru með sigrinum á topp deildarinnar, að minnsta kosti um sinn. _ Leik Vals og FH var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöld en um hann er hægt að lesa á mbl.is/sport/handbolti. Grótta skellti Stjörnunni - Fyrsti sigur Seltirninga - Langþráður sigur KA-manna - Nýliðarnir án stiga Morgunblaðið/Unnur Karen Barátta Igor Mrsulja, leikmaður Gróttu, og Gunnar Steinn Jónsson hjá Stjörnunni í harðri baráttu í gærkvöldi. HANDBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Grótta gerði sér lítið fyrir og vann frækinn 34:32 endurkomusigur gegn Stjörnunni, sem var á toppi Olísdeildarinnar í handknattleik karla áður en liðin mættust á Sel- tjarnarnesi í deildinni í gærkvöldi. Um var að ræða fyrsta sigur Gróttu á tímabilinu. Í fyrri hálfleik var Stjarnan sterkari aðilinn og náði mest sex marka forystu, 6:12, í honum. Eftir að hafa verið 15:18 undir í hálfleik jafnaði Grótta metin snemma í síð- ari hálfleik, náði mest fjögurra marka forystu nokkrum sinnum í þeim síðari og stóðst svo áhlaup Stjörnunnar undir lok leiksins. KA vann þá langþráðan 37:33 sigur gegn Fram þegar liðin mætt- ust á Akureyri í deildinni í gær- kvöldi. Fyrir leikinn hafði KA tap- að fjórum leikjum í röð og Fram var án markvarðar síns, Lárusar Helga Ólafssonar, og munaði um minna. „Eftir jafnræði í byrjun leiks, þar sem ungir markverðir liðanna fóru á kostum, sigu KA-menn fram úr og náðu góðu forskoti. Staðan Óskar Örn Hauksson, fyrirliði karlaliðs KR í knattspyrnu, er með lausan samning eftir að keppn- istímabilinu lauk í haust. KR hefur boðið Óskari nýjan samning sam- kvæmt Fótbolta.net en þar er einn- ig fullyrt að Stjarnan hafi einnig lagt samning fyrir Óskar. Er sá samningur sagður fela í sér tilboð um hærri launagreiðslur. Óskar Örn er 37 ára gamall Njarðvíkingur og sló í gegn í efstu deild með Grindavík. Hann hefur leikið með KR-ingum undanfarin fimmtán tímabil. Stjarnan hefur áhuga á Óskari Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Reyndur Óskar Örn er leikjahæstur KR-inga á Íslandsmótinu. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr Keili í Hafnarfirði, lék vel á Evr- ópumótaröðinni í golfi í gær en þá hófst síðara mótið sem haldið er í Sádi-Arabíu. Guðrún lék þar einnig í síðustu viku en þá komst hún ekki í gegn- um niðurskurð keppenda. Guðrún Brá lék á 70 höggum í gær og var á tveimur undir pari vallarins. Guðrún Brá er jöfn ásamt fleir- um í 28. sæti. Mótið er óvenjulegt að því leytinu til að meðfram ein- staklingskeppninni er einnig keppt í liðakeppni. kris@mbl.is Góður hringur hjá Guðrúnu Brá Ljósmynd/GSÍ 70 Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á tveimur höggum undir pari í gær. Meistaradeild kvenna C-RIÐILL: Barcelona – Hoffenheim.......................... 4:0 HB Köge – Arsenal .................................. 1:5 Staðan: Barcelona 9, Arsenal 6, Hoffen- heim 3, HB Köge 0. D-RIÐILL: Lyon – Bayern München ...................... (2:1) - Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í barneignarfríi. - Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru báðar á vara- mannabekk Bayern. Benfica – Häcken .................................. (0:1) - Cloe Lacasse var í byrjunarliði Benfica. - Diljá Ýr Zomers var á varamannabekk Häcken. _ Leikjunum í D-riðli var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Noregur B-deild: Sogndal – Stjördals-Blink ...................... 1:1 - Emil Pálsson lék ekki með Sogndal vegna veikinda. 4.$--3795.$ Evrópubikarinn Virtus Bologna – Valencia ..................96:97 - Martin Hermannsson skoraði 11 stig fyrir Valencia og gaf 5 stoðsendingar. Evrópubikar FIBA Zaragoza – Gilboa Galil.......................78:80 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig, tók 5 fráköst og varði 2 skot fyrir Zaragoza. Spánn B-deild: Gipuzkoa – Huesca.............................. 95:68 - Ægir Már Steinarsson skoraði 3 stig og gaf 4 stoðsendingar fyrir Gipuzkoa. 4"5'*2)0-#
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.