Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN
ER KOMIN Í BÍÓ
GEMMA
CHAN
RICHARD
MADDEN
KUMAIL
NANJIANI
LIA
McHUGH
BRIAN TYREE
HENRY
LAUREN
RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
N
ýja barna- og fjölskyldu-
myndin Birta, eftir
Braga Þór Hinriksson,
var frumsýnd 4. nóv-
ember á Alþjóðlegri Barnakvikmyn-
dahátíð í Bíó Paradís. Kvikmyndin
segir sögu ellefu ára stúlku, Birtu
(Kristín Erla Pétursdóttir), sem
vegna aðstæðna neyðist til að
þroskast fyrr en aðrir jafnaldrar
hennar. Birta er eldri systir og því í
ábyrgðarhlutverki gagnvart litlu
systur sinni Kötu (Margrét Júlía
Reynisdóttir) þegar móðir þeirra
(Salka Sól Eyfeld) er ekki heima
vegna vinnu sem virðist vera flest
kvöld.
Kvöld eitt heyrir Birta fyrir
slysni í símtali móður sinnar við vin-
konu að hún hafi ekki efni á að
halda jólin þetta ár og vanti í það
minnsta hundrað þúsund krónur til
þess að það verði möguleiki. Birta
tekur þessar áhyggjur móður sinn-
ar grafalvarlega og tekur málin í
sínar hendur. Hefst þá ævintýri
Birtu og Kötu við að bjarga jólunum
með hjálp ófárra úr blokkinni.
Leikstjórinn Bragi Þór Hinriks-
son er reyndur á sviði barna- og
fjölskyldumynda og leikstýrði meðal
annars vinsælu kvikmyndaseríunni
Algjör Sveppi. Í þeim ævintýra-
myndum eru draugar, grænir
galdralyklar og ninjur á vélhjólum
raunveruleikinn. Birta er hins vegar
af öðrum toga en hún er bæði nær
raunveruleikanum og höfundum
kvikmyndarinnar og því ekki ein-
ungis mynd um fjölskyldu heldur
stendur fjölskylda á bak við mynd-
ina. Bragi Þór og Helga Arnar-
dóttir, handritshöfundur myndar-
innar, eru sambýlisfólk. Að auki
leikur dóttir Helgu og stjúpdóttir
Braga Þórs, Margrét Júlía, eitt af
aðalhlutverkunum og móðir Helgu,
Margrét Ákadóttir, annað lykilhlut-
verk í myndinni. Fjallar því sagan
ekki einungis um þrjár mæðgur
heldur koma einnig þrjár mæðgur
að myndinni. Mér finnst ástæða til
að nefna þessi tengsl af því að þetta
er mjög í takt við kvikmyndina sem
er heimilisleg og notaleg. Yfir henni
ríkir ákveðinn „kvenlegur“ blær og
tekst þeim Braga og Helgu vel að
fanga hin flóknu tengsl mæðgna.
Augljóst markmið myndarinnar
er að ná til allra í fjölskyldunni;
barnsins, unglingsins og foreldr-
anna eða eldri áhorfenda. Viðfangs-
efnið er þungt og segir sögu konu í
hefðbundinni kvennastétt, sem
stritar fyrir lág laun til að þess að
standast kröfur samfélagsins sem
gerðar eru til mæðra. Það viðfangs-
efni er í raun drifkraftur myndar-
innar en Bragi Þór beinir tökuvél-
inni að systrunum sem prófa ýmsar
leiðir til þess að safna peningum
með því að safna dósum til dæmis,
selja smákökur eða fisk. Þannig
tekst Braga Þór að beina ungum
áhorfendum frá hinu fyrrnefnda
þunga viðfangsefni og í staðinn
fylgjast þeir spenntir með nýjum
uppátækjum Birtu og hverja hún
velur úr blokkinni með sér í ævin-
týrið. Eldri áhorfendur gera sér
grein fyrir þeim þrautum sem móð-
irin stendur frammi fyrir og skilja
áhyggjur hennar af lágum launum
hjúkrunarfræðinga, margir kinka
kannski kolli í dimmum sal kvik-
myndahússins. Ef til vill ásaka sum-
ir áhorfendur hana um að leggja of
mikla ábyrgð á herðar eldri dóttur
sinnar á meðan aðrir sjá sig sjálfa í
henni. Sumir unglingar leyfa sér
kannski ekki að njóta myndarinnar
til fullnustu en glotta ef til vill þegar
þeir sjá Herra Hnetusmjör (Árni
Páll Árnason) í hlutverki handbolta-
þjálfarans.
Frammistaða ungu leikkvenn-
anna, Kristínar Erlu Pétursdóttur í
hlutverki Birtu og Margrétar Júlíu
Reynisdóttur í hlutverki Kötu, er
það sem stendur upp úr. Báðar hafa
hlotið verðlaun fyrir leik sinn, Krist-
ín Erla vann Diamant-verðlaunin á
Schlingel-barnamyndahátíðinni og
Margrét Júlía var valin besta unga
leikkonan á barnakvikmyndahátíð-
inni KIKIFe í Þýskalandi. Það kem-
ur ekki á óvart; Birta er vel heppn-
uð og notaleg kvikmynd sem dregur
upp hugljúfa mynd af samskiptum
mæðgna og velvild barna.
Þetta er mynd sem hittir í hjarta-
stað og ættu íslenskar fjölskyldur
ekki að láta hana fram hjá sér fara.
Hugljúf „Birta er vel heppnuð og notaleg kvikmynd sem dregur upp hugljúfa mynd af samskiptum mæðgna og vel-
vild barna. Þetta er mynd sem hittir í hjartastað og ættu íslenskar fjölskyldur ekki að láta hana fram hjá sér fara.“
Birta bjargar jólunum
Bíó Paradís, Smárabíó, Borgar-
bíó, Háskólabíó og Laugarásbíó
Birta bbbbn
Leikstjórn: Bragi Þór Hinriksson. Hand-
rit: Helga Arnardóttir. Aðalleikarar:
Salka Sól Eyfeld, Kristín Erla Péturs-
dóttir og Margrét Júlía Reynisdóttir.
Ísland, 2021. 85 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
„Til heiðurs Bill-
ie Holiday“ er
yfirskrift
þrennra tónleika
í röðinni Jazz í
hádeginu en þeir
verða í Borgar-
bókasafninu í
Grófinni í dag,
fimmtudag, kl.
12.15, Gerðu-
bergi á morgun,
föstudag, kl. 12.15, og í Borgar-
bókasafni í Spönginni á laugardag
kl. 13.15.
Á tónleikunum kemur fram
djasssöngkonan unga Rebekka
Blöndal sem hefur vakið athygli
fyrir túlkun sína á lögum kvengoð-
sagna djasssögunnar, að þessu sinni
lögum Billie Holiday.
Með Rebekku spila þeir Andrés
Þór á gítar og Leifur Gunnarsson á
kontrabassa. Listræn stjórnun tón-
leikaraðarinnar er í höndum Leifs
en markmiðið með tónleikaröðinni
er að færa djassinn út í hverfi borg-
arinnar. Ókeypis er á tónleikana og
allir velkomnir.
Rebekka syngur
lög Billie Holiday
Rebekka
Blöndal
Í Söngskóla Sig-
urðar Demetz
hefur verið tek-
inn í notkun nýr
tónleikasalur, á
2. hæð í Ármúla
44. Af því tilefni
verður í kvöld,
fimmtudags-
kvöld, kl. 20 efnt
til sérstakra tón-
leika fyrir félaga
í Vinafélagi skólans. Vinafélagið
var stofnað haustið 2015 og í til-
kynningunni segir að það hafi verið
skólanum mikil stoð í erfiðleikum
síðustu ára.
Á tónleikunum koma fram bæði
kennarar og nemendur, meðal ann-
ars söngvararnir Diddú, Auður
Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, Þór Breiðfjörð og Egill
Árni Pálsson, ásamt píanóleik-
urunum Lilju Eggertsdóttur, Ant-
oniu Hevesi og Aladar Racz. Að-
gangur er ókeypis fyrir félaga og
hægt verður að ganga í vinafélagið
á staðnum.
Auður
Gunnarsdóttir
Tónleikar fyrir
vinafélag skólans