Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
VW - MULTIVAN – RN. 340614.
Nýskráður 9/2017, ekinn 86 þ.km., dísel,
ljósgrár, sjálfskiptur, 7 gírar, bluetooth, fjarstýrðar
samlæsingar, rafdrifnir hliðarspeglar, þjófavörn.
Verð 4.890.000 kr.
HYUNDAI - I20
RN. 340608. Nýskráður 5/2018, ekinn 136 þ.km.,
bensín, ljósgrár, beinskiptur, hiti í framsætum,
fjarstýrðar samlæsingar, aðgerðarhnappar í stýri.
Verð 1.250.000 kr.
TOYOTA - LAND CRUISER 150 SERIES RN. 331619.
Nýskr. 10/2017, ekinn 76 þ.km., dísel, ljósgrár,
sjálfskiptur, 6 gírar, GPS, bakkmyndavél, brekku-
bremsa, hraðastillir, dráttarkrókur, bluetooth,
kastarar, hiti í stýri. Verð 9.490.000 kr.
TOYOTA - RAV4 VX HYBRID RN. 331553
Nýskráður 9/2019, ekinn 26 þ.km., bensíns/
rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hiti í framrúðu, skyn-
væddur hraðastillir, bakkmyndavél, bluetooth.
Verð 6.990.000 kr.
L
á ekki alltaf í loftinu að úr
því að Hundur í óskilum
var hættur að vera
„bara“ hljómsveit og orð-
inn einhvers konar kabarett-tvíeyki
(kabadúett?) og hirðtrúðar Borgar-
leikhússins að þeir myndu fyrr eða
síðar taka Brennu-Njáls sögu til
meðferðar? Og er það ekki til
marks um stöðu sögunnar í
íslenskri menningu að það líði ekki
nema fimm ár milli sviðsetninga á
henni? Sem að auki reynast gletti-
lega líkar í afstöðu sinni til efnisins.
Í umsögn minni um uppfærslu
Þorleifs Arnarssonar minnist ég
reyndar á að eitt atriðið þar sé eins
og beint upp úr handbók Hundsins.
Þeirrar sýningar er líka getið
snemma í Njálu á hundavaði, talað
um „Sirkus-Njálu“. Sú lýsing gæti
auðvitað alveg eins átt við núna.
En veldur hver á heldur. Þeir
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur
Hjartarson hafa átt tilkall til þessa
efnis síðan þeir fönguðu fyrst at-
hygli hins breiða almennings með
túlkun sinni á Gunnarshólma
Jónasar. Strax þar mátti sjá þá
illskilgreinanlegu eiginleika sem
gera list þeirra svona ómótstæði-
lega. Það er engin leið að rekja í
sundur eða greina prósentuhlut-
föllin milli háðs og harms, alvöru
og gríns, fimi og flippaðs kæruleys-
is. Hvar endar ástin og virðingin og
vægðarlaus kaldhæðnin tekur við?
Alls staðar og hvergi. Þetta er
hristur og hrærður kokteill og upp-
skriftina veit enginn nema þeir
kumpánar, og nú líka Ágústa
Skúladóttir leikstjóri og samverka-
kona þeirra eftir að þau gerðu
Nýja svið Borgarleikhússins að
goðorði sínu.
Ef við reynum samt að efna-
greina hanastélið þá verða fyrir
okkur þrjú „eyru“: tóneyra, brag-
eyra og gríneyra.
Tónlistin er vitaskuld rótin og
kjarninn í list Hundsins. Það er
stundum erfitt að greina færnina,
öryggið og „músíkalítetið“ í gegn-
um pönkaða nálgunina í spila-
mennskunni og þrautirnar sem
þeir félagar leggja fyrir sjálfa sig
með hljóðfæravali og tilrauna-
mennsku á því sviði. Þeir hafa aldr-
ei gengið eins langt í þessum
efnum og hér, þar sem stór hluti
hljóðfæranna hefur runnið saman
við leikmuni og -mynd Þórunnar
Maríu Jónsdóttur. Þórunn María á
líka heiðurinn af einkar snjöllum og
glæsilegum búningum og gervum
ásamt Elínu S. Gísladóttur. Þessi
samruni og samspil við upptekinn
undirleik veldur því að stundum er
teflt á tæpasta vað með að allt
gangi smurt. Fyrst og fremst
myndi þetta aldrei virka ef ekki
kæmu til frábærir „undirliggjandi“
hæfileikar og næmi þeirra félag-
anna.
Lagavalið er síðan óborganlega
snjallt. Bæði þegar það liggur beint
við („Fire“, „Hot Stuff“, „Hey
Joe“) og þegar þeir koma áhorf-
endum algerlega í opna skjöldu
(„Paradise by the Dashboard
Light“, „Bei Männern welche
Liebe fühlen“ úr Töfraflautunni). Í
síðari hlutanum, þegar bæði sagan
og sýningin gliðna smá, skjóta þeir
inn „hitturum“ úr sinni gömlu
efnisskrá, stundum á pínu hæpnum
forsendum, en allir standa þeir
fyrir sínu sem skemmtiefni og því
ástæðulaust að kvarta yfir því.
Allt er þetta vel þekkt og kunn-
uglegt. Sú hlið mála sem kannski
munar mest um og hefur vaxið að
mikilvægi undanfarið er einstakur
tónn og vaxandi vald Hjörleifs á
bundnu máli. Þar eru einfaldlega
fáir sem standa honum á sporði við
að kjarna hugsun og halda jafn-
vægi milli einfaldleika og óvæntra
leiða í rími, stuðlum og „pönsi“,
sem alltaf gleður. Til dæmis í eftir-
málanum við Gunnarshólma, sem
er „… út um allt á kortum / svo
enginn veit hvaða hólma Jónas ort-
’um“.
Um gríntóninn höfum við þegar
sagt flest sem segja þarf. Þó verð-
ur að nefna það hve vel þeir fara
með hið vandmeðfarna vopn að
setja persónur og atburði sögunnar
í nútímasamhengi. Það er ódýr
brella sem auðveldlega getur orðið
hvimleið en Eiríkur og Hjörleifur
hitta nákvæmlega á rétta tóninn til
að gera þetta nánast alltaf
skemmtilegt. Að kalla Njál „kyn-
segin stjörnulögfræðing“, lýsa
skyndibrúðkaupi Þorgerðar og
Þráins í brúðkaupsveislu móður
hennar í anda Séð og heyrt og
segja kristnitökukaflann vera „eins
og sérblað frá Samtökum í sjávar-
útvegi inni í miðopnu Moggans“.
Allt laukrétt, og fyndið eins og það
kemur út úr þeim félögunum.
Textinn er almennt skemmtilega
skrifaður, með sterkum spuna-
einkennum sem þýðir að það slær
áhorfandann ekkert út af laginu
þótt stundum hljómi eins og menn
reki í vörðurnar, sem gerðist öðru
hverju í þessa þrjá tíma sem sýn-
ingin tekur. Er hún þó hreint ekk-
ert of löng, heldur flýgur stundin
hratt í þessum frábæra félagsskap
frá snjöllum upphafssöngnum til
lokasöngsins í brúðkaupi Kára og
Hildigunnar, sem er tvímælalaust
einn hápunktanna.
Persónusköpun og leikur er ekki
í öndvegi í þessu frásagnarleikhúsi,
en týpusmíðin tekst stundum mjög
vel, sérstaklega í hinni „passive-
agressive“ Bergþóru Eiríks og
slepjulegum og dálítið varhuga-
verðum bónda hennar hjá Hjörleifi.
Sviðsstjórinn Chris Astridge á
nokkrar innkomur og er fumleysið
uppmálað. Ljósa- og myndbrellu-
meistarinn Ingi Beck er líka í nánu
sambandi við leikarana og fer vel á
með þeim.
Njála á hundavaði er mikil og
góð skemmtiveisla hjá þeim
Ágústu, Eiríki og Hjörleifi. Þessi
mikla saga liggur vel við grínhöggi
frá sjónarhóli nútímans, en hún er
líka spegill fyrir okkur til að skop-
ast að eigin glóruleysi. Það er erfitt
að ímynda sér annað en Hundinum
muni dveljast þarna nokkur miss-
eri við að kæta mann og annan.
Af taðskegglingum og eggjanarfíflum
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Skemmtiveisla „Njála á hundavaði er mikil og góð skemmtiveisla hjá þeim Ágústu, Eiríki og Hjörleifi.“
Borgarleikhúsið
Njála á hundavaði bbbbm
Höfundur: Óþekktur. Leikgerð: Hjörleif-
ur Hjartarson. Leikstjórn: Ágústa Skúla-
dóttir. Tónlist: Hundur í óskilum. Leik-
mynd og búningar: Þórunn María
Jónsdóttir. Lýsing og myndbönd: Ingi
Bekk. Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson.
Leikgervi: Þórunn María Jónsdóttir og
Elín S. Gísladóttir. Leikarar: Eiríkur
Stephensen og Hjörleifur Hjartarson.
Frumsýning á Nýja sviði Borgarleik-
hússins föstudaginn 5. nóvember 2021.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, hefur útbúið veglega
alþjóðlega kvikmyndadagskrá með
kennsluefni sem býðst öllum leik-
og grunnskólanemum landsins út
janúar á næsta ári og er skólunum
að kostnaðarlausu, að því er fram
kemur í tilkynningu. Segir þar að
tilgangurinn sé að efla kvikmynda-
menningu og kvikmyndalæsi barna
og unglinga og sýna fram á hvernig
unnt sé að nota kvikmyndamiðilinn
markvisst í kennslu.
Dagskráin er sniðin að börnum
og unglingum á aldrinum 4-16 ára
og verður hún send í alla skóla
landsins. „Aðstandendur RIFF
vilja hvetja kennara til að sýna
stuttmyndirnar og nota í kennslu-
stundum en benda jafnframt á að
unnt er að horfa á myndirnar
heima í stofu í gegnum riff.is gegn
vægu gjaldi,“ segir í tilkynningu og
að dagskráin samanstandi af alls
kyns stuttmyndum og þeim fylgi
kennsluefni sem kennarar geti nýtt
sem umræðugrundvöll í tengslum
við myndirnar.
30 stuttmyndir frá 20 löndum
Alls eru þetta 30 stuttmyndir frá
yfir 20 löndum og flestar evr-
ópskar. Fjalla þær um málefni líð-
andi stundar og eru efnistök sniðin
að hverjum aldurshópi fyrir sig.
Haft er eftir stjórnanda RIFF,
Hrönn Marinósdóttur, að fjallað sé
um samfélagsleg málefni eins og
umhverfið, jafnrétti, einelti, sam-
kynhneigð, ást og einmanaleika.
„Markmið okkar hjá RIFF er að
efla kvikmyndalæsi, að hvetja,
örva, skapa umræður, vekja við-
brögð og fá yngri áhorfendur til að
hugsa á annan hátt um mikilvæg
málefni í gegnum þennan sterka
miðil sem kvikmyndin er,“ segir
Hrönn.
Á dagskránni eru fimm stutt-
myndaflokkar sem hæfa hverjum
aldursflokki fyrir sig og í hverjum
flokki eru fimm til níu myndir.
Dagskráin verður aðgengileg í
skólastarfi til 31. janúar 2022 og
fylgir hverjum stuttmyndaflokki
stuðningsefni fyrir kennara sem
hægt er að nýta til kennslu.
Námsefnið er byggt á hópavinnu,
umræðum, íhugun og gagnrýnni
hugsun og segir í tilkynningu frá
RIFF að margar stuttmyndanna
henti vel sem viðbótarkennsluefni
við námsgreinar sem þegar séu
kenndar í leik- og grunnskólum.
Aðlögun Úr portúgölsku stutt-
myndinni Adaptação, eða Aðlögun.
Vilja efla kvikmyndamenningu og -læsi barna og unglinga