Morgunblaðið - 11.11.2021, Síða 72

Morgunblaðið - 11.11.2021, Síða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is VW - MULTIVAN – RN. 340614. Nýskráður 9/2017, ekinn 86 þ.km., dísel, ljósgrár, sjálfskiptur, 7 gírar, bluetooth, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnir hliðarspeglar, þjófavörn. Verð 4.890.000 kr. HYUNDAI - I20 RN. 340608. Nýskráður 5/2018, ekinn 136 þ.km., bensín, ljósgrár, beinskiptur, hiti í framsætum, fjarstýrðar samlæsingar, aðgerðarhnappar í stýri. Verð 1.250.000 kr. TOYOTA - LAND CRUISER 150 SERIES RN. 331619. Nýskr. 10/2017, ekinn 76 þ.km., dísel, ljósgrár, sjálfskiptur, 6 gírar, GPS, bakkmyndavél, brekku- bremsa, hraðastillir, dráttarkrókur, bluetooth, kastarar, hiti í stýri. Verð 9.490.000 kr. TOYOTA - RAV4 VX HYBRID RN. 331553 Nýskráður 9/2019, ekinn 26 þ.km., bensíns/ rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hiti í framrúðu, skyn- væddur hraðastillir, bakkmyndavél, bluetooth. Verð 6.990.000 kr. L á ekki alltaf í loftinu að úr því að Hundur í óskilum var hættur að vera „bara“ hljómsveit og orð- inn einhvers konar kabarett-tvíeyki (kabadúett?) og hirðtrúðar Borgar- leikhússins að þeir myndu fyrr eða síðar taka Brennu-Njáls sögu til meðferðar? Og er það ekki til marks um stöðu sögunnar í íslenskri menningu að það líði ekki nema fimm ár milli sviðsetninga á henni? Sem að auki reynast gletti- lega líkar í afstöðu sinni til efnisins. Í umsögn minni um uppfærslu Þorleifs Arnarssonar minnist ég reyndar á að eitt atriðið þar sé eins og beint upp úr handbók Hundsins. Þeirrar sýningar er líka getið snemma í Njálu á hundavaði, talað um „Sirkus-Njálu“. Sú lýsing gæti auðvitað alveg eins átt við núna. En veldur hver á heldur. Þeir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson hafa átt tilkall til þessa efnis síðan þeir fönguðu fyrst at- hygli hins breiða almennings með túlkun sinni á Gunnarshólma Jónasar. Strax þar mátti sjá þá illskilgreinanlegu eiginleika sem gera list þeirra svona ómótstæði- lega. Það er engin leið að rekja í sundur eða greina prósentuhlut- föllin milli háðs og harms, alvöru og gríns, fimi og flippaðs kæruleys- is. Hvar endar ástin og virðingin og vægðarlaus kaldhæðnin tekur við? Alls staðar og hvergi. Þetta er hristur og hrærður kokteill og upp- skriftina veit enginn nema þeir kumpánar, og nú líka Ágústa Skúladóttir leikstjóri og samverka- kona þeirra eftir að þau gerðu Nýja svið Borgarleikhússins að goðorði sínu. Ef við reynum samt að efna- greina hanastélið þá verða fyrir okkur þrjú „eyru“: tóneyra, brag- eyra og gríneyra. Tónlistin er vitaskuld rótin og kjarninn í list Hundsins. Það er stundum erfitt að greina færnina, öryggið og „músíkalítetið“ í gegn- um pönkaða nálgunina í spila- mennskunni og þrautirnar sem þeir félagar leggja fyrir sjálfa sig með hljóðfæravali og tilrauna- mennsku á því sviði. Þeir hafa aldr- ei gengið eins langt í þessum efnum og hér, þar sem stór hluti hljóðfæranna hefur runnið saman við leikmuni og -mynd Þórunnar Maríu Jónsdóttur. Þórunn María á líka heiðurinn af einkar snjöllum og glæsilegum búningum og gervum ásamt Elínu S. Gísladóttur. Þessi samruni og samspil við upptekinn undirleik veldur því að stundum er teflt á tæpasta vað með að allt gangi smurt. Fyrst og fremst myndi þetta aldrei virka ef ekki kæmu til frábærir „undirliggjandi“ hæfileikar og næmi þeirra félag- anna. Lagavalið er síðan óborganlega snjallt. Bæði þegar það liggur beint við („Fire“, „Hot Stuff“, „Hey Joe“) og þegar þeir koma áhorf- endum algerlega í opna skjöldu („Paradise by the Dashboard Light“, „Bei Männern welche Liebe fühlen“ úr Töfraflautunni). Í síðari hlutanum, þegar bæði sagan og sýningin gliðna smá, skjóta þeir inn „hitturum“ úr sinni gömlu efnisskrá, stundum á pínu hæpnum forsendum, en allir standa þeir fyrir sínu sem skemmtiefni og því ástæðulaust að kvarta yfir því. Allt er þetta vel þekkt og kunn- uglegt. Sú hlið mála sem kannski munar mest um og hefur vaxið að mikilvægi undanfarið er einstakur tónn og vaxandi vald Hjörleifs á bundnu máli. Þar eru einfaldlega fáir sem standa honum á sporði við að kjarna hugsun og halda jafn- vægi milli einfaldleika og óvæntra leiða í rími, stuðlum og „pönsi“, sem alltaf gleður. Til dæmis í eftir- málanum við Gunnarshólma, sem er „… út um allt á kortum / svo enginn veit hvaða hólma Jónas ort- ’um“. Um gríntóninn höfum við þegar sagt flest sem segja þarf. Þó verð- ur að nefna það hve vel þeir fara með hið vandmeðfarna vopn að setja persónur og atburði sögunnar í nútímasamhengi. Það er ódýr brella sem auðveldlega getur orðið hvimleið en Eiríkur og Hjörleifur hitta nákvæmlega á rétta tóninn til að gera þetta nánast alltaf skemmtilegt. Að kalla Njál „kyn- segin stjörnulögfræðing“, lýsa skyndibrúðkaupi Þorgerðar og Þráins í brúðkaupsveislu móður hennar í anda Séð og heyrt og segja kristnitökukaflann vera „eins og sérblað frá Samtökum í sjávar- útvegi inni í miðopnu Moggans“. Allt laukrétt, og fyndið eins og það kemur út úr þeim félögunum. Textinn er almennt skemmtilega skrifaður, með sterkum spuna- einkennum sem þýðir að það slær áhorfandann ekkert út af laginu þótt stundum hljómi eins og menn reki í vörðurnar, sem gerðist öðru hverju í þessa þrjá tíma sem sýn- ingin tekur. Er hún þó hreint ekk- ert of löng, heldur flýgur stundin hratt í þessum frábæra félagsskap frá snjöllum upphafssöngnum til lokasöngsins í brúðkaupi Kára og Hildigunnar, sem er tvímælalaust einn hápunktanna. Persónusköpun og leikur er ekki í öndvegi í þessu frásagnarleikhúsi, en týpusmíðin tekst stundum mjög vel, sérstaklega í hinni „passive- agressive“ Bergþóru Eiríks og slepjulegum og dálítið varhuga- verðum bónda hennar hjá Hjörleifi. Sviðsstjórinn Chris Astridge á nokkrar innkomur og er fumleysið uppmálað. Ljósa- og myndbrellu- meistarinn Ingi Beck er líka í nánu sambandi við leikarana og fer vel á með þeim. Njála á hundavaði er mikil og góð skemmtiveisla hjá þeim Ágústu, Eiríki og Hjörleifi. Þessi mikla saga liggur vel við grínhöggi frá sjónarhóli nútímans, en hún er líka spegill fyrir okkur til að skop- ast að eigin glóruleysi. Það er erfitt að ímynda sér annað en Hundinum muni dveljast þarna nokkur miss- eri við að kæta mann og annan. Af taðskegglingum og eggjanarfíflum Ljósmynd/Grímur Bjarnason Skemmtiveisla „Njála á hundavaði er mikil og góð skemmtiveisla hjá þeim Ágústu, Eiríki og Hjörleifi.“ Borgarleikhúsið Njála á hundavaði bbbbm Höfundur: Óþekktur. Leikgerð: Hjörleif- ur Hjartarson. Leikstjórn: Ágústa Skúla- dóttir. Tónlist: Hundur í óskilum. Leik- mynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir. Lýsing og myndbönd: Ingi Bekk. Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson. Leikgervi: Þórunn María Jónsdóttir og Elín S. Gísladóttir. Leikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleik- hússins föstudaginn 5. nóvember 2021. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, hefur útbúið veglega alþjóðlega kvikmyndadagskrá með kennsluefni sem býðst öllum leik- og grunnskólanemum landsins út janúar á næsta ári og er skólunum að kostnaðarlausu, að því er fram kemur í tilkynningu. Segir þar að tilgangurinn sé að efla kvikmynda- menningu og kvikmyndalæsi barna og unglinga og sýna fram á hvernig unnt sé að nota kvikmyndamiðilinn markvisst í kennslu. Dagskráin er sniðin að börnum og unglingum á aldrinum 4-16 ára og verður hún send í alla skóla landsins. „Aðstandendur RIFF vilja hvetja kennara til að sýna stuttmyndirnar og nota í kennslu- stundum en benda jafnframt á að unnt er að horfa á myndirnar heima í stofu í gegnum riff.is gegn vægu gjaldi,“ segir í tilkynningu og að dagskráin samanstandi af alls kyns stuttmyndum og þeim fylgi kennsluefni sem kennarar geti nýtt sem umræðugrundvöll í tengslum við myndirnar. 30 stuttmyndir frá 20 löndum Alls eru þetta 30 stuttmyndir frá yfir 20 löndum og flestar evr- ópskar. Fjalla þær um málefni líð- andi stundar og eru efnistök sniðin að hverjum aldurshópi fyrir sig. Haft er eftir stjórnanda RIFF, Hrönn Marinósdóttur, að fjallað sé um samfélagsleg málefni eins og umhverfið, jafnrétti, einelti, sam- kynhneigð, ást og einmanaleika. „Markmið okkar hjá RIFF er að efla kvikmyndalæsi, að hvetja, örva, skapa umræður, vekja við- brögð og fá yngri áhorfendur til að hugsa á annan hátt um mikilvæg málefni í gegnum þennan sterka miðil sem kvikmyndin er,“ segir Hrönn. Á dagskránni eru fimm stutt- myndaflokkar sem hæfa hverjum aldursflokki fyrir sig og í hverjum flokki eru fimm til níu myndir. Dagskráin verður aðgengileg í skólastarfi til 31. janúar 2022 og fylgir hverjum stuttmyndaflokki stuðningsefni fyrir kennara sem hægt er að nýta til kennslu. Námsefnið er byggt á hópavinnu, umræðum, íhugun og gagnrýnni hugsun og segir í tilkynningu frá RIFF að margar stuttmyndanna henti vel sem viðbótarkennsluefni við námsgreinar sem þegar séu kenndar í leik- og grunnskólum. Aðlögun Úr portúgölsku stutt- myndinni Adaptação, eða Aðlögun. Vilja efla kvikmyndamenningu og -læsi barna og unglinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.