Morgunblaðið - 24.12.2021, Page 6

Morgunblaðið - 24.12.2021, Page 6
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2021 Metfjöldi smita greindist á miðviku- dag eða 494, þar af 51 smit á landa- mærunum. Áður höfðu mest greinst 286 smit innanlands á mánudag. Um 70% smita sem nú greinast eru af Ómíkron-afbrigðinu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir voru á upplýsingafundi almannavarna í gær en síðast var slíkur upplýsinga- fundur haldinn í byrjun nóvember. „Mikil þreyta og uppgjöf“ „Það er ljóst að mikil þreyta og uppgjöf er komin í nánast alla í samfélaginu gagnvart Covid-19 en við megum ekki láta það draga úr okkur þrek og þor,“ sagði Þórólfur á fundinum og lagði áherslu á að með þriðju bólusetningunni væri hægt að hamla útbreiðslu veir- unnar. Víðir líkti baráttunni við kórónu- veiruna við átök Íslendinga við nátt- úruhamfarir. Ekki þýddi að svekkja sig á því þótt það héldi áfram að gjósa heldur bregðast við stöðunni. Hann sagði að boðið hefði verið upp á köku á Veðurstofu Íslands þegar gosinu lauk í Geldingadölum en núna, skömmu síðar, væru líkur á að gos hæfist aftur. „Það er enginn fyrirsjáanleiki,“ sagði hann. „Við erum mjög góð sem samfélag að takast á við slík verkefni.“ Staðan á spítalanum þung Þórólfur sagði Ómíkron-afbrigðið smitast mun meira og hraðar en önnur afbrigði en sjúkdóms- einkennin væru svipuð og áður. Þó væru vísbendingar uppi um að al- varleg einkenni væru fátíðari. Hann sagði að flestir sem hefðu greinst með afbrigðið í Danmörku væru ungt, fullfrískt og fullbólusett fólk. Hugsanlegt væri að staðan breyttist ef smit greindust í auknum mæli hjá viðkvæmum hópum. Í ljósi mikillar smithæfni Ómík- ron og hraðari útbreiðslu gæti álag- ið á spítalakerfið orðið mikið hér- lendis með alvarlegum einkennum. Alma sagði álagið á spítalanum hafa verið mikið um langt skeið, þar væri ekki einungis Covid-19 um að kenna. Hún nefndi þreytu starfs- fólks Landspítalans vegna glím- unnar við kórónuveiruna. Það hefði þolað álagið vel framan af en núna hefði það verið í eldlínunni í tvö ár. Hún sagði allt upp í 20% hafa hætt í öðrum löndum vegna álags og þess vegna þyrfti að fletja kúrfuna og gera starfsfólki hérlendis kleift að ráða við verkefnið. Þá nefndi Alma að allar legu- deildir nema Covid-smitsjúkdóma- deildina væru fullar, mikið væri að gera á gjörgæsludeildum og álag á bráðamóttökunni hefði verið mikið. Hún sagði að þrátt fyrir að stjórnvöld hefðu beitt sér fyrir opn- un 130 legurýma, hjúkrunarrýmum hefði fjölgað um 140 frá því að far- aldurinn hófst og dagdvalarrýmum um 53, heimaþjónusta hefði aukist og verið væri að opna hágæslurými væri staðan þung á Landspít- alanum. „Þess vegna höfum við áhyggjur af þessari stóru bylgju af Ómíkron,“ sagði hún og kvaðst ótt- ast að ef smitin yrðu mörg þyrftu mun fleiri að leggjast inn. Þýðir ekki að svekkja sig þótt haldi áfram að gjósa - Metfjöldi smita á miðvikudag - 70% smita Ómíkron júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 206 443 9 24 32 154 400 350 300 250 200 150 100 50 0 Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSHmeðCovid-19 frá 1. júlí 443 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSH með staðfest Covid-19 smit 2.622 erumeð virkt smit og í einangrun 3.159 einstaklingar eru í sóttkví 9 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Búast má við því að meira en fjórfalt fleiri eyði jólunum á farsóttarhúsi í kvöld, aðfangadagskvöld, en gerðu síðustu jól. Vel á þriðja þúsund eru nú smitaðir af kórónuveirunni. Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónar- maður farsóttarhúsa Rauða kross- ins, var önnum kafinn þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær, Þorláksmessu. „Já, það er mikið að gera. Nú eru hjá okkur 190 gestir og öll hótel að verða full,“ sagði Gylfi síðdegis í gær en alls greindust 494 smit innan- lands og á landamærum í fyrradag. „Við verðum að reyna að þreyja þorrann, allavega þar til milli jóla og nýárs, sjá hvað gerist. Það er ekki hlaupið að því að opna hótel núna, þau eru öll full af ferðamönnum yfir jólin.“ Almennt sækja um 10 prósent þeirra sem greinast smitaðir um vist á farsóttarhúsi, sú tala hafi aftur á móti hækkað örlítið í aðdraganda jóla. Því má búast við að verulega bætist í hópinn í dag líkt og í gær og ljóst að jólin verða annasöm. Tveir starfsmenn verða á hverju hóteli á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, aðfangadagskvöld, og einn á Akur- eyri. „Svo verð ég hlaupandi á milli hótelanna hér á höfuðborgarsvæð- inu,“ sagði Gylfi en í fyrra dugði að hann væri einn á vakt þar sem aðeins var um að ræða um það bil 50 gesti. Þá var lambalæri í jólamatinn en Gylfi sagðist óviss, spurður út í mat- inn í ár, þar sem Fosshótel sjá um matarmál. „Það verður eitthvað gott en þó þannig að allir geti borðað.“ Reyna að hagræða „Það er alltaf best fyrir fólk að vera heima og hérna á í rauninni bara að vera fólk sem getur alls ekki verið annars staðar.“ Ljóst sé að miklu fleiri séu á leið inn á farsótt- arhúsin en á útleið. „Því miður,“ sagði Gylfi, en um 30 manns hafa bæst í hópinn daglega síðustu þrjá daga. „Nú er staðan sú að við höfum ekkert það mörg herbergi til þess að notast við, þau eru að verða uppurin, og þá þurfum við að vera harðari á því að velja inn hverjir koma og hverjir ekki.“ Fólk sem kemur af sama heimili fer saman í herbergi og mælst er til þess að vinir séu einnig saman. „Það er vel þegið en við neyð- um enga saman í herbergi.“ Morgunblaðið/Eggert Hótel Búist er við að um fjórfalt fleiri dvelji á farsóttarhúsi þessi jólin en jólin í fyrra. Sjö starfsmenn standa vaktina auk Gylfa. Klukkan slær sex á farsóttarhúsum - Átta á vakt og um tvö hundruð gestir Miðflokkurinn sendir landsmönnum öllum hugheilar óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Söfnum í jólasjóðinn hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Jólasöfnun Guð blessi ykkur öll Öllum tónleikum og leiksýningum helstu sviðslistahúsa landsins sem áttu að vera um jólin hefur verið af- lýst. Í sameiginlegri tilkynningu frá sviðslistastofnununum segir að ómögulegt sé að halda þá viðburði sem átti að halda yfir jólin í ljósi gildandi takmarkana. Enn sé óljóst hvort leiksýningum og tónleikum verður fram haldið á fyrstu dögum nýs árs. „Það hryggir starfsfólk þessara menningarhúsa mjög að geta ekki mætt gestum sínum á fyrirhug- uðum viðburðum enda er bæði há- tíðlegt og gefandi að njóta leiksýn- inga og tónleika yfir hátíðarnar,“ segir í tilkynningunni. Tónleikum og leiksýningum aflýst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.