Morgunblaðið - 24.12.2021, Qupperneq 40
DURANCE
JÓLAILMUR
2021
MODULAX
HÆGINDA-
STÓLAR
RAFSTILLANLEGIR
HLEÐSLUSTÓLAR
– FALLEG HÖNNUN
OG ÞÆGINDI
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
FULLKOMIN
ÞÆGINDI
um jólin
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Björn Steinar Sól-
bergsson, organisti í
Hallgrímskirkju, kem-
ur fram á orgeltón-
leikum í kirkjunni á
öðrum degi jóla, 26.
desember, klukkan 17.
Á tónleikunum leikur
hann ýmis hátíðleg
og falleg verk eftir Jo-
hann Sebastian Bach
(1685-1750) og
frönsk tónskáld. Eftir
Bach leikur Björn
„Prelúdíu, andante og
fúgu í G-dúr BWV
541“ og „Pastorale
BWV 590“. Einnig
hljóma verk eftir Lou-
is Claude D’Aquin (1694-1772) og Alexandre Guilmant
(1837-1911). Miðar fást við inngang og á tix.is.
Björn Steinar heldur orgeltónleika
í Hallgrímskirkju á öðrum degi jóla
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Við náum að búa til ótrúlega marga góða leikmenn og
það skilur þetta enginn í heiminum. Ég fæ mjög oft
þessa spurningu: Hvernig getið þið verið meira eða
minna inni á stórmótunum?“ segir Guðmundur Þ. Guð-
mundsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik. »32
Enginn í heiminum skilur þetta
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Séra Gunnar Sigurjónsson, sóknar-
prestur í Digranes- og Hjalla-
prestakalli í Kópavogi, er 61 árs í
dag og heldur ekki upp á það sér-
staklega, ekki frekar en áður. Hann
hefur verið í sóttkví alla vikuna, á
tíma í PCR-próf fyrir hádegi, gerir
ráð fyrir að vera ósmitaður og fer þá
í kirkjuna rétt fyrir klukkan sex.
„Börnin okkar tvö koma venju-
lega syngjandi inn í svefnherbergið,
vekja mig og færa mér gjöf í rúmið,
en ég á hvorki von á gestum né
mörgum í kirkjuna vegna ástands-
ins og messan verður í styttra lagi.“
Gunnar segir að í seinni tíð hafi
eiginkonan, Þóra Margrét Þórarins-
dóttir, haft heitt kakó og smákökur
á borðum og vinir og vandamenn lit-
ið inn áður en hann fari til messu.
„Ég vinn alltaf á afmælisdegi
mínum,“ leggur hann áherslu á.
Móðir sín hafi reynt að halda upp á
afmælið á öðrum degi en það hafi
mislukkast. „Það kom ekki að sök
því ég hafði það fram yfir vinina að
ég fékk afmælisgjafirnar að morgni
og jólagjafirnar að kvöldi; ef ég fékk
mjúkan pakka í afmælisgjöf vissi ég
að ég fengi harðan pakka um kvöld-
ið.“
Blíðustu bangsar
Frítími Gunnars fer að mestu í
hlutina í dótakassanum, sem hann
kallar svo; fornbílana, vélhjólin og
lóðin, að ónefndum veiðigræjunum.
„Allt hefur sinn tíma, eins og segir í
Prédikaranum í hinni helgu bók,“
segir Gunnar og vísar til þess að
tími hjólanna og fornbílanna sé á
sumrin, skotveiðin sé á haustin, en
dytta þurfi að hlutunum á veturna.
Hann sigraði í keppninni „Sterk-
asti prestur í heimi“ 2004, lyfti sam-
tals 510 kg í réttstöðu, hnébeygju og
bekkpressu, og varði titilinn 2008
með 600 kg í samanlögðu, en síðan
hefur enginn áskorandi boðið sig
fram. „Ég er mjög áhugasamur um
kraftlyftingar og þær eru hin besta
heilsubót fyrir almenning,“ segir
prestur.
Frá því skömmu eftir aldamót
hefur Gunnar verið með sérstaka
messu á öðrum degi hvítasunnu fyr-
ir vélhjólafólk og hafa færri komist
að en vilja. Formið hefur vakið at-
hygli og kynnti hann það sérstak-
lega í Pennsylvaníu í Bandaríkj-
unum. „Í kjölfarið stofnaði vélhjóla-
fólkið sérstakan söfnuð til að þjóna
fólki sem er á götunni. Enn ein
sönnun þess að útlitið segir ekki til
um hvernig menn eru innrættir.
Stærstu og öflugustu kraftlyftinga-
mennirnir og vélhjólamenn tattóver-
aðir upp undir hvirfil og með hringa
hér og þar eru blíðustu bangsar.“
Gunnar fékk slæman sólsting í fríi
á Spáni 1989 og var ráðlagt að vera
með eitthvað á höfðinu til að verja
skallann. Því hefur hann gengið með
hatt síðan. „Ég þarf aldrei að vera
með regnhlíf því hattbörðin leiða
rigninguna fram hjá hálsmálinu.
Það kemur sér oft vel og ekki síst í
kirkjugörðum.“
Í fyrra spurði Þóra mann sinn
hvað hann vildi gera í tilefni 60 ára
afmælisins. „Mig langar til að
messa,“ svaraði Gunnar. „Gleði mín
á þessum degi felst í morgunstund-
inni með eiginkonu og börnum –
mér þykir óskaplega vænt um hana
– og að hitta söfnuðinn minn og
syngja aftansönginn, gantast aðeins
við hann í jólaræðunni og heyra
hlátur og gleði í kirkjunni. Þetta eru
mínar tvær stærstu gjafir, að finna
gleðina í aðfangadegi, sem við Jesús
höfum deilt frá fæðingu minni.“
Gleðin í aðfangadegi
- Séra Gunnar Sigurjónsson hefur í nógu að snúast
Morgunblaðið/Eggert
Afmælisbarnið Gunnar Sigurjónsson, prestur í Digraneskirkju í Kópavogi.
Í dótakassanum Gunnar á m.a. Chevrolet Silverado pickup árgerð 1978 og
að undanförnu hefur hann verið að gera vélina upp og pússa vélarrúmið. Í
baksýn er annar bandarískur fornbíll, Camaro árgerð 1967.