Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 4

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Page 4
Margir hafa gert sér grein fyrir þessu og unnið í þágu samfélags og einingar til þess að efla getu og öryggi einstakling- anna. Hvergi er þörfin meiri en einmitt meðal þeirra, sem ekki njóta fulirar heilsu. Sem afskiptir einstaklingar gætu þeir lítið sem ekkert gert í þágu lífsins og fyndu lítinn tilgang í lífi sínu, sem er þó hverjum manni nauðsyn. Til þess að bæta úr þessu hafa verið mynduð allmörg samtök og meðal þeirra er Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. Verkefni samtakanna er fyrst og fremst að hjálpa hinum fötluðu til þess að finna verkefni og starfssvið og starfsskilyrði við sitt hæfi, er geti gefið þeim tilgang í líf- inu og gert þá virka aðila í lífi og starfi þjóðarinnar. Með baráttu sinni hafa sam- tökin komið því til leiðar, að hið opinbera veitir fé til styrktar fötluðum, svo að hægt verði að koma upp vinnustöðvum og ýmis konar iðnaði og jafnvel veita þeim nokkra fræðslu. • En hér hefur ekki náðzt neitt lokatak- mark. Tækninni hefur fleygt fram, kröfur heilbrigðra til lífsins aukizt og með hlið- sjón af því er það hugsjón Sjálfsbjargar að bæta kjör og lífsaðstöðu hinna fötluðu og gefa þeim kost á að fylgjast með og taka virkan þátt í framvindu lífs og tíma. Hver er sá, sem ekki vill Ijá slíkum sam- tökum lið? Því fleiri sem að þessum mál- um vinna og leggja því lið, því meiri ár- angurs er að vænta. Rödd gamla mannsins, sem hvetur syni sína til samstöðu og samstarfs, er í raun- inni rödd lífsins til sona sinna og dætra, er hvetur alla til að vinna saman í trúnni á mátt samtakanna. Ég vil Ijúka þessum orðum með því að árna Sjálfsbjörgu heilla og hvetja alla til samstöðu og samstarfs með þessum orð- um: Léttiö fötluðum lífsbaráttuna! Efnisyfirlit: Ávarp .......................... bls. 3 Sjötta þingið .................. — 5 „Laun heimsins“, smásaga ....... — 8 „Brotið skip“, kvæði ........... — 13 Kynning félaga ................. — 14 „Grikkurinn", smásaga .......... — 16 „Má ég kynna Ute fyrir ykkur?“ . . — 18 „Gripið um taum“ smásaga........ — 20 Heimsókn til Norðurlanda ....... — 22 „Þegar ég var 17 ára“ .......... — 26 Frá félögunum .................. — 27 Sumarferðalag..................... — 28 „Endurminning“, kvæði............. — 30 Minningarorð...................... — 31 Skipbrot ......................... — 32 Spjallað í spaugi...............34—34 Nokkrar visur úr skemmtiferð Sjálfsbjargar á Akureyri ........— 36 Húsnæðismál öryrkja............... — 38 Hjálparlyfta fyrir lamaða......... — 40 Hvað er konan? ................... — 41 „Falinn eldur“, kvæði............. — 42 4 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.