Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Blaðsíða 41
HVAÐ ER KONAN?
„Konan er stúlkan, sem giftist þér „einu
sinni“. Hún elskar falleg föt og smátúr í
bæinn öðru hvoru. Henni þykir ósköp vænt
um góðar bækur og súkkulaði. En ef þú
hefur ekki efni á að veita henni þetta, þá
er hún samt sæmilega ánægð, aðeins ef
þú gleymir ekki alveg að kyssa hana“.
„Konan er þvottakona, sendill, móðir,
saumakona, barnfóstra og féiagi. Hún er
líka njósnari, sem getur fundið skrúflykil-
inn, sem þú fullyrðir að þú hafir lagt á
eldhúsborðið í vikunni sem leið, og börnin
auðvitað búin að týna“.
*
Konan þín skilur þig og getur ekki án
þín verið. Ef til vill eigið þið í mörgum
erfiðleikum, en á þeirri stund, sem þú sezt
við hlið hennar, ert þú sá grundvöllur,
sem tilvera hennar hvílir á.
Kona. (Þýtt).
„Konan er stúlkan, sem giftist þér „einu
sinni“. Ef til vill er hún orðin ofurlítið
mjórri eða ofurlítið gildari, að minnsta
kosti er hún orðin eldri. Ef til vill er ekki
eins heillandi að tala við hana eins og
„einu sinni“. En hver skyldi ástæðan vera.
Líttu á sjálfan þig í spegli. Ert þú enn
laglegur, skemmtilegur og kátur, eins og
„þá“?“
*
SJÁLFSBJÖRG 41