Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Blaðsíða 28
SUMARFERÐ ALAG
Eins og venja hefur verið undanfarin
ár, var efnt til hópferðar Sjálfsbjargar-
félaga í byrjun ágúst. Farið var að Reykja-
skóla í Hrútafirði og gist þar tvær nætur.
Frá Reykjavík fóru rúmlega tuttugu manns
og var það nokkru færra en búist hafði
verið við. Isfirðingar fjölmenntu með sín-
um alkunna dugnaði, þótt langt væri fyrir
þá að fara, var það mjög til fyrirmyndar
eins og fleira í þeirra félagi. Miklum von-
brigðum olli lítil þáttaka annars staðar frá.
Hrútafjörðurinn skartaði í dásamlegri
mennsku og gleði, eins og það væri sjálf-
sagt, m. a. sýndi skólastjórinn okkur sér-
lega fallegan og vel útskýrðan skugga-
myndaþátt á kvöldvöku, sem efnt var til
seinna kvöldið, sem við dvöldumst þar.
Seinni daginn ókum við kringum Vatns-
nesið, komum við að Hindisvík og hittum
þá merkisbræður, séra Sigurð Norland og
Jóhannes bróður hans. Fengum við að
hlusta á slaghörpuleik Jóhannesar og greip
hann hugi okkar í einfaldleik sínum og
djúpri innlifun. Þeir sem komu því við, sáu
i
BORGAR-
VIRKI
fegurð við komuna þangað. Viðtökur og
fyrirgreiðsla skólastjórans að Reykjum,
Ólafs H. Kristjánssonar og konu hans,
voru framúrskarandi og sýndu þau hjón
í öllu alveg sérstakan hlýhug og alúð, sem
lengi verður minnst. Var reynt af þeirra
hálfu að gera allt sem unnt var til ánægju
og allt endurgjaldslaust og með Ijúf-
Hvítserk. Er það merkilegt náttúrufyrir-
brigði og einkennilegt, að ekki skuli hafa
verið lagður vegur þar niður á bakkana,
því að alllangt þarf að ganga frá veginum
til þess að sjá þennan einkennilega klett.
Síðan var ekið að Borgarvirki og það
skoðað. Þar var tekin meðfylgjandi mynd,
sem sýnir þá ótrúlegu hörku og seiglu,
28 SJÁLFSBJÖRG