Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Blaðsíða 34
SPJALLAÐ
TIL VONAR OG VARA
Tveir sjómenn mættust á götu á Siglu-
firði síðla kvölds í sumar og voru báðir
fullir. Þá sagði annar:
„Réttu mér hendina, elsku vinur. Hvað-
an ertu annars af landinu?“ „Ég á heima
í landsins stærstu borg, Reykjavík“, svar-
aði hinn. „Allt í lagi, elsku vinur“, sagði
sá fyrri. „Réttu mér hina hendina líka,
ég er nefnilega frá Akureyri, landsins feg-
urstu borg, en síðasti Reykvíkingurinn,
sem ég lenti á fylliríi með, stal af mér
bæði armbandsúrinu og sjálfblekungn-
um“.
A. : Heldurðu að Adam hafi elskað Evu?
B. : Ætli það ekki. Hann hafði nú ekki
úr svo miklu að velja.
. .. .og hættu að kalla mig pabba!
A. : „Hvað er hættulegast við bíla?“
B. : „Bílstjórarnir“.
„Hvað ertu gamall, drengur minn?“
spurði prestur lítinn dreng.
„Ég veit það ekki fyrir víst“, svaraði
strákur, „þegar mamma átti mig var hún
24 ára, en nú er hún 23ja“.
„Haldið þér, að snilligáfur séu arf-
gengar?“
„Ég veit ekki, ég á ekkert barn“.
Kennarinn: Hvaða húsdýr er nytsamast?
Drengurinn: Hænan.
Kennarinn: Hvers vegna?
Drengurinn: Vegna þess að það er hægt
að éta hana dauða og áður en hún fæðist.
34 SJÁLFSBJÖRG