Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Blaðsíða 27
FRÁ FÉLÚGUM
Föndurkvöld hjá Sjálfsbjörg, Reykjavík.
Félagsdeildirnar hafa unnið að málefn-
um sínum, á þeim grundvelli, sem þau eru
byggð á, og haf'a nokkrar félagsdeildir
unnið stórvirki.
Félögin eru nú 10 að tölu með um 800
meðlimi og yfir 700 styrktarfélaga.
1 Reykjavík voru haldin föndurkvöld
einu sinni í viku, spila- og skemmtikvöld
og myndarleg árshátíð.
Félagið efndi til skyndihappdrættis á
árinu og gekk það sæmilega. Aðalverkefni
félagsins nú, er undirbúningur að rekstri
vinnustofu að Marargötu 2. Pantaðar hafa
verið vélar og efni og er ráðgert að hefja
rekstur fyrir áramót.
Á ísafirði rekur félagið, ásamt Berkla-
vörn, fyrirtækið „Vinnuver", en þar eru
vinnustofur og verzlun. Hefur rekstur
„Vinnuvers" gengið sæmilega.
Féiagslífið hefur staðið með miklum
blóma.
Félagið á Siglufirði rekur vinnustofu
að Túngötu 9 og hefur rekstur hennar
gengið sæmilega. Á vinnustofunni eru
framleiddir vinnuvettlingar, sem þegar
hafa getið sér gott orð.
Félagslíf er mjög gott.
Á Akureyri er unnið að byggingu vinnu-
stofu, og er það viðbygging við félags-
heimilið „Bjarg“. Ráðgert er að fram-
kvæmdum ljúki á þessu ári og geti rekstur
vinnustofunnar hafist á næsta ári.
Á Akureyri er félagslíf mjög mikið.
Félagið á Sauðárkróki hefur komið sér
upp snotru húsi og er unnið að stækkun
þess. Það óhapp vildi til, s. 1. vor, að húsið
skemmdist af eldi, en vonandi verður við-
gerð lokið í haust.
Félagið á Sauðárkróki hefur um 200
styrktarféiaga sem er mjög athyglisvert.
Hjá hinum félagsdeildunum er unnið að
margvíslegum störfum.
SJÁLFSBJÖRG 27