Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 5

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 5
ÞINGIÐ Dagana 29.—31. maí 1964 var 6. árs- þing Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra haldið á Húsavík. Þingið sátu 32 fulltrúar frá félögunum í Reykjavík, Akureyri, Húsavík, Keflavík, Sauðárkrók, Siglufirði, Árnessýslu og Isa- firði. Félögin í Vestmannaeyjum og Bol- ungarvik gátu ekki sent fulltrúa sökum veikinda. Þingforsetar voru kosnir Sigursveinn D. Kristinsson og Jón Þór Buch, en þingrit- arar: Friðrik A. Magnússon, Keflavík, Konráð Þorsteinsson, Reykjavík, Sigmar Ó. Maríusson, Reykjavík, og Heiðrún Steingrímsdóttir, Akureyri. I skýrslu formanns sagði m. a., að nú væru innan sambandsins 10 félög með á áttunda hundrað félaga og álíka marga styrktarfélaga. Heildartekjur sambandsins voru á árinu kr. 520 þúsund krónur, en gjöld 390 þúsund krónur. Reksturshagnað- ur tæplega 130 þúsund krónur. I farar- tækjamálum hafði það áunnizt á árinu, að eftirgjöf tolla af bifreiðum var hækk- uð úr 40 þús. í 70 þúsund krónur og fjöldi úthlutaðra bifreiða úr 50 í 150 bifreiðar. I tollskrá þeirri sem samþykkt var á Al- þingi 1963 eru hjólastólar og mótorþríhjól undanþegin aðflutningsgjöldum. Hér verða raktar helztu samþykktir þingsins: Eftirfarandi tillögur atvinnu- og félags- málanefndar voru samþykktar: a. Landssambandsstjórn ráði kennara í tómstundaiðju og ferðist hann milli fé- lagsdeildanna. Þar sem reynslan hefur sýnt, að sá háttur er ríkari til árangurs Frá 6. þingi Sjálfsbjargar. SJÁLFSBJÖRG 5

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.