Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 10

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 10
verið að skemmta sér eða þá að hún var enn svo ung að ekki sást þótt hún vekti. Við settumst líka út við glugga og horfðum niður eftir hlíðinni, og þangað sem skíðaselin voru, og nú sáum við bak- hliðina á tindinum við endann á hinum fjallgarðinum og norðar sást í jökulhettu. Við þurftum ekki að tala um þetta land og ég var ekki að hafa orð á því að nú sæist til jökulsins, af því ég vissi hann hafði verið þar mörgum stundum, og að ekkert sem ég segði um snjóinn þar uppi væru fréttir í hans eyrum. — Það eru góðar brekkur hérna, sagði ég. — Þær hafa alltaf verið hér, sagði hann. — En nú kemst fólkið hingað, búið að fá bílveg og skíðalyftu. — Eins og það hafi ekki haft fætur. — Þú veizt hvernig þetta er. — Já, sport með skilyrðum, sagði hann. — Þetta eru þægindi. Þau geta stund- um virzt óþarfa umhyggjusemi. — Umhyggjusemi, sagði hann. — Það vantar ekki að nú er nóg af henni. Þeir hafa drifið upp björgunarsveit þarna neðra. Þeir vita sem er, að ekki er nóg að koma fólkinu hingað upp eftir. Það þarf lika að koma því niður. — Það er eins og þetta skíðahótel hafi verið reist í veg fyrir þig persónulega, sagði ég. — Biddu guð fyrir þér. — Þú ert fúll út í það. — Alls ekki. Það eru víðar brekkur en hér. — Svo þú ætlar ekki að nota skíðalyft- una, sagði ég. — Ég þarf ekki á henni að halda. Ég færi mig norðar í fjöllin. Þar eru líka brekkur. Ég veit ekki betur en fjöll og brekkur fari saman. — Þú villt meina að seint gangi að leggja þessi fjöll undir sportfólkið, þannig að þú eigir ekki einhvers staðar land. — Kannski drita þeir þessum skíða- lyftum um allt. — Þú mátt fara að vara þig, þegar menningin er komin svona hátt yfir sjávar- mál, sagði ég. — Þá er að vona, að hún verði ekki loftveik. — Þeir eru vísir til að senda björgunar- sveitina á eftir þér, fyrst þeir eru búnir að stofna hana. — Þeir eru þegar byrjaðir á því, sagði hann. — Ha. — Þeir fóru að leita að mér skömmu eftir að hótelið var opnað, sagði hann. — Þeir voru ansi uppveðraðir um það leyti. — Og hvar fundu þeir þig. — Hvergi. Ég slapp. — Hver narraði þá af stað. — Þetta var nú ekki svo einfalt, sagði hann. — Þú veizt um dalinn hérna hinum megin. Hérna handan við þetta fjall. Og nú gerði hann snögga hreyfingu með höfðinu í áttina að hlíðinni og skíðalyftunni. — Jæja. Þeir voru búnir að vígja þetta skíðahótel og halda upp á opnun þess með ýmsu móti. Það voru miklar hríðar um þetta leyti, og nógur snjór, og sumir notuðu jafnvel tæki- færið og fóru hingað upp í hlíðina til að renna sér, þótt skíðalyftan kæmi ekki fyrr en síðar. Ég hafði lítið hreyft mig og varla tekið skíðin mín út. En svo kom kunningi minn til mín og spurði hvort ég vildi ekki koma með sér upp að hótelinu og prófa brekkurnar. Ég sagði honum að það væri nú lítið sem ég ætti eftir að prófa í þess- um fjöllum, en af því hann var alltaf að nudda um þetta, stakk ég upp á þvi við hann að við fengjum okkur bil upp í dal- inn hérna fyrir handan og gengjum síðan á skíðum yfir fjallið og kæmum þann veg hingað í brekkurnar. Ég vissi ekki hvað hann var seigur þessi náungi, en hann var beinastór og vildi ólmur fara á skíði, og hann vildi ólmur fara hér yfir í dalinn og 10 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.