Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 21

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Síða 21
nokkra stund. Svo hætti hann fyrirvara- laust, og án þess að gefa nokkra skýringu, rölti upp fyrir veginn, með hakann í hend- inni og settist þar á þúfu og studdist fram á hakann. Skyndilega féll hakinn úr hönd- um hans, en sjálfur valt. hann út af þúf- unni og húfan féll af honum um leið. Eftir nokkrar mínútur var hann látinn. Ég fór heim að næsta bæ, þeirra erinda að herma frá tíðindunum og fá aðstoð til að koma líkinu undir þak. Ég frétti það ekki fyrr en seinna og ekki fyrr en eftir jarðarförina, að þegar ég gekk upp túnið, hafði hann sézt koma á undan mér, gangandi álútur, með hend- ur fyrir aftan bak, vinnujakkinn frá- hnepptur flaksandi og eyrnaspeldi vetrar- húfunnar blaktandi fyrir golunni eins og vængir á fugli, sem er að reyna að hefja sig til flugs. Svo leið sumarið fram og alltaf voru að berast fregnir um að hann sæist á þeim slóðum, þar sem hann dó, ýmist gangandi með hendur fyrir aftan bak upp klifið eða sitjandi við veginn, styðjandi sig fram á hakann. Var það þó einkum, er líða tók á sumarið og nætur gerðust dimmar, og vegfarendur þóttust sjá sýnir þessar. Ekki lagði ég trúnað á þessar sögur og aldrei varð ég neins var, þótt ég færi þarna um eftir að dimma tók. Laugardagskvöldið hið næsta fyrir leitir þetta sumar fór ég norður í sveit ríðandi sem þá var títt og hafði tvo til reiðar. Leið mín lá fram hjá bæ þeim, er gamli maðurinn hafði átt heima. Sá bær stendur norðan undir lágum hálsi og sér norður til bæjarins, þegar komið er á hálsinn miðjan og norður af hallar. Þetta kvöld var norðan þræsingur og nokkur þokusuddi, en þó ekki meiri en svo, að þegar ég kom á hálsbrúnina, sá ég all- vel norður til bæjarins, enda þótt nokkuð væri tekið að bregða birtu. Sem ég leit nær mér á veginn, sá ég hvar maður gekk þar á undan mér í nokk- urri fjarlægð, á að gizka svo sem tvö hundruð metra. Er ég nálgaðist manninn, sá ég gerla að hann gekk álútur, með hendur á baki, vaggaði nokkuð í spori, þar sem hann gekk á miðjum veginum, og leit hvorki til hægri eða vinstri. Vinnujakkinn hans var fráhnepptur og flaksaðist fyrir golunni, sem stóð beint í fang mannsins. Á höfði sér bar vegfarandi þessi vetrarhúfu og speldi hennar flöksuðust einnig fyrir vind- inum. Þá gerðist það jafnsnemma, að ég lauk þessari skyndiúttekt á vegfarandanum, að ég verð alveg sannfærður um, að hann sé enginn annar en gamli maðurinn, sem varð bráðkvaddur á klifinu í vor. Mér varð að vísu allhverft við þessa óþægilegu uppgötvun, en þó eigi meir en svo, að ég tók að hugleiða með nokkurn veginn fullri skynsemi, að því er ég held, hvert ráð ég skuli á bregða. Hægði ég ferðina og lét hestana lötra lestagang, meðan ég hugleiddi málið. Fyrst kom mér í hug að snúa við, en hafnaði þeirri hug- mynd jafnharðan. Það var svo fram úr skarandi lítilmannlegt. Ég gat enga skyn- samlega skýringu gefið á slíku háttalagi. Næst kom mér til hugar, að beygja út af veginum og fara í stórum sveig fram hjá draugnum. En það var hvort tveggja, að þarna var mjög erfitt að komast út af veginum, sökum þess að stórgrýtisurð var báðum megin, og svo var hitt, að ef til mín sæist frá bænum undir hálsinum myndi fólkinu þykja ferðalag mitt eitthvað skrítið. Hvarf ég þá einnig frá því ráði. Ekki þorði ég fyrir mitt litla líf, að ríða á drauginn ofan. Það gat haft hinar alvar- legustu afleiðingar. Þarna voru þrjár reiðgötur samhliða og draugurinn gekk alltaf þá í miðið og leit hvorki til hægri né vinstri. Verður þá fangráð mitt, að ég vík hest- inum, þeim er ég reið, yfir í götuna til hægri, jafnframt þokaði ég hestinum, þeim SJÁLFSBJÖRG 21

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.