Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 24

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 24
Á því fjögurra ára tímabili, sem liðið er síðan 5. þing VNI var haldið í Stokk- hólmi, hafa veigamiklar umbætur orðið á kjörum fatlaðra á Norðurlöndum. Það er og mun verða, eitt aðalverkefni VNI, að stuðla að samvinnu bandalagsfélaganna, kynna nýjungar og gjöra nýjar áætlanir, sem leiða mega til framfara. Að afloknu þingi, skildu leiðir okkar Is- lendinganna um sinn. Hélt kvenleggurinn til Svíþjóðar, en karlleggurinn til Noregs. Fráfarandi formaður VNI, Finninn, prófessor Aimo O. Aaltonen, réttir fundarhamar bandalagsins hin- um nýkjörna formanni, Norðmanninum Ivari Bruu. Þótti okkur rétt að nota tækifærið og fá að kynnast betur starfsemi þesara landa af eigin raun. Var sú för mjög fróðleg, enda var frændum vorum umhugað um, að við mættum hafa sem mest gagn af heimsókninni. Ferðinni var því næst heitið til Dan- merkur, en þar var ætlunin að sitja 2. Evrópumót fatlaðs æskufólks, sem haldið var í Kaupmannahöfn, dagana 25. júní til 1. júlí. Tóif þjóðir áttu þarna fulltrúa og voru þátttakendur rúmlega 70 að tölu, frá eftir- töldum löndum: Austurríki, Danmörku, Englandi, Finnlandi, Islandi, Italíu, Noregi, Svíþjóð, Sviss, Tékkóslóvakíu, Ungverja- landi og Þýzkalalndi. Það var landssamband fatlaðra í Dan- mörku, sem sá um mótið, undir vernd Al- þjóðasambands fatlaðra, F. I. M. I. T. I. C. Forseti samtaka þessara, Raimondo Mag- nani, og framkvæmdastjóri, Ugo Mazzon- cini, sem báðir eru ítalskir, voru við- staddir. Mótsstaður var Geelsgárd, heimavistar- skóli fyrir fötluð börn á aldrinum 7—18 ára. Skólinn er mjög stór og er rúm fyrir 300 börn. Dagskrá mótsins var fjölbreytt og vel til hennar vandað. Skiptust á þingfundir með fyrirlestrum og umræðum, nefnda- störf og heimsóknir til ýmissa stofnana danska sambandsins. Meðal annars voru skoðaðir tveir búnaðarskólar fatlaðra, Höjagergárd og Elleslettegárd, og er sá síðarnefndi hinn fyrsti sinnar tegundar í Evrópu. Nefndastörf voru talsvert umfangs- mikil og var fulltrúum skipt niður í fimm nefndir, þar sem eftirfarandi málefni voru tekin til meðferðar: 1. Endurhæfing, 2. Al- þjóðasamvinna fatlaðra, 3. og 4. Æsku- lýðsmál fatlaðra og skipulagning þeirra, 5. Dagskrá æskulýðsmóta. Skiluðu allar nefndirnar ítarlegu áliti. Ekki höfðu gestgjafar okkar gleymt að fella inn í dagskrána ýmis konar yndis- auka. Farið var í hringferð um Kaup- mannahöfn, skemmtistaðurinn Tivoli heim- sóttur, Willumsens listasafn skoðað, svo að nokkuð sé nefnt. Einnig voru haldnar kvöldvökur, þar sem þátttakendur sáu sjálfir um skemmtiatriðin. Bar þar hæst söng og hljóðfæraslátt. Mátti þar heyra tékkneskan vísnasöng, jóðl frá Sviss, ís- lenzkar rímur, ítalskt O, sole mio, að ógleymdri norskri tónlist, sem ungur Norð- maður átti mestan þátt í. Enginn vafi er á því, að slík mót sem þessi eru mjög gagnleg. Enda er tilgang- ur þeirra sá, að veita fötluðu æskufólki í Evrópu tækifæri til þess að kynnast, ræða sameiginleg áhugamál sín og vandamál, og reyna að finna lausn þeirra. Eins og að 24 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.