Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 29

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 29
ÞATTAKENDUR ÚR REYKJAVÍK sem svo mörgu fötluðu fólki er gefið, myndi því varla trúað nema af eigin reynd, að fólk sem kemst ekki leiðar sinnar, nema við tvær hækjur, skyldi fara hjálparlítið upp í Borgarvirki. Fannst okkur hinum þetta svo sérstæður atburður, að hann mætti ekki gleymast. Um ferðina í Borgar- virki var þetta kveðið: Þau bröltu í Borgarvirki og blöskraði eklci hót, höltruðu með hörku og hcekjum lömdu í grjót. Seigir þóttu forðum þeir Suðurnesjamenn, en táp og fjör og friskar konur finnast hér enn. Á leiðinni suður síðasta daginn var ekið um Reykholt og hópmynd tekin við minn- ismerki Snorra, einnig var ekið að Barna- fossum og Hraunfossar skoðaðir, þetta sér- stæða náttúrufyrirbrigði, sem sennilega á fáa sína líka. Komið var heim til Reykja- víkur á mánudagskvöld og voru allir ánægðir og hlakka til næsta ferðalags. Þátttakendur senda hlýjar kveðjur til ferðafélaganna og þakka innilega ánægju- lega samveru. Á slíkum samfundum styrk- ist félagsandinn, innri bönd knýtast og styrkjast og safnað er í dýrmætan minn- ingarsjóð, sem yljar og gleður á komandi tíma. Ferðafélagi. HOLL RÁÐLEGGING Klukkan var tvö eftir miðnætti. Rithöf- undurinn var orðinn dauðþreyttur. Hann hafði setið svo að segja hvíldarlaust í 24 klukkustundir við að fullgera nýju skáld- söguna sína. „Elskan", sagði kona hans, „ætlarðu ekki að fara að hátta?“ „Nei, tautaði hann, „ég er ekki búinn enn. Nú er fallega stúlkan fallin í hendur þorpara, ég þarf að bjarga úr voðanum“. „Hvað er hún gömul?“ „Tuttugu og fimm ára“. „Uss, slökktu ljósið strax og farðu að hátta. Hún er víst nógu gömul til að passa sig sjálf“. Kennarinn hafði skrifað orðið Köttur á og var að reyna að láta Dísu litlu stafa í það, en það gekk hálf stirðlega. „Veiztu ekki hvað þetta er, Dísa mín?“ sagði kenn- arinn. „Þetta er nafn á dýri, sem er með skeggkampa í kringum munninn og kemur stundum á gluggann, þegar því er kalt. „Ó, nú veit ég það“, svaraði Dísa himin- lifandi og vandræðasvipurinn hvarf af andlitinu: „Það er pábbi“. „Hefur þú nokkuð frétt af bræðrum þín- um nýlega?“ „Já, annar er giftur, en hinum líður vel“. Sjálfsbjörg 29

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.