Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Side 31
t
MIIVNINGAROltÐ
Giuðiiiundur Jónasson.
Fæddur 2. maí 1912. Dáinn 19. júní 1964.
Guðmundur var fæddur 2. maí 1912 að
Þverá í Hrolleifsdal í Sléttuhlíð í Skaga-
fjarðarsýslu. Foreldrar hans voru hjónin
Jónas Jósafatsson frá Hvarfi í Víðidal í
Húnavatnssýslu og kona hans, Lilja Kristín
Stefánsdóttir frá Austara-Hóli í Flókadal
í Vestur-Fljótum. Guðmundur ólst upp hjá
foreldrum sínum, þar til hann var rúmlega
tvítugur. Þá ætlaði hann að stunda sjó-
róðra á vélbát frá Ólafsfirði. En þar varð
hann fyrir því slysi að handleggsbrotna
á hægri handlegg, þegar hann var að snúa
vél bátsins (til að fara í gang). Ungur
læknanemi var þá í Ólafsfirði og batt hann
um handleggsbrotið. Skömmu síðar fékk
Guðmundur illa þolandi verk í handlegg-
inn, ætlaði hann þá til læknanemans aftur,
en þá var hann farinn burt af staðnum.
Var þá strax farið með Guðmund til Siglu-
fjarðar. Þegar þangað kom, var komin
blóðeitrun í handlegginn og hendina. Var
því kennt um, að of fast hafi verið bundið
um handleggsbrotið í fyrstu. Guðmundur
átti lengi í þessu handleggsbroti og endaði
með því að hendin og handleggurinn lam-
aðist og varð honum að mestu ónýt. Hann
bugaðist þó aldrei hvað sem á gekk. Hann
sinnti sveitarstörfum og fjárhirðingu hér
og þar í Fljótum. Síðast á Hraunum. Þar
kynntist Guðmundur Unu Hallgrímsdótt-
ur, ættaðri úr Suður-Múlasýslu árið 1948.
Þau fluttu til Siglufjarðar árið 1949 og
hófu þar búskap. Þau eignuðust 4 mann-
vænleg börn, sem öll eru á lífi.
Guðmundur vann á hverju sumri í Síld-
arverksmiðjunni Rauðku frá því hann
flutti til Siglufjarðar, og fékk þar góðan
vitnisburð hjá samverkamönnum sínum
fyrir geðprýði og stundvísi á vinnustað.
Vinnuafköst voru furðumikil, miðað við
aðstæður. Hann var einn fremsti hvata-
maður að stofnun Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra á Siglufirði. Sat í stjórn þess frá
stofnun, formaður þess 1961 og oftast
varaformaður, fulltrúi á landssambands-
þingum Sjálfsbjargar félaganna 1960—’62
og 1964. Hann var í stjórn Vinnustofu
Sjálfsbjargar á Siglufirði frá byrjun.
Guðmundur andaðist hinn 19. júní 1964.
Banamein hans var heilablóðfall. Hann var
lagður til hinztu hvíldar 27. s. m.
Á skilnaðar- og kveðjustund er margs
að sakna og margs að minnast. Þar kvaddi
eiginkonan og börnin ástkæran eiginmann
og föður. Systkini hans kvöddu þar sinn
hjartkæra bróður. Vinir og samverkamenn
kvöddu þar góðan vin og traustan félaga.
Við félagar hans í Sjálfsbjörg, félagi
fatlaðra á Siglufirði, kveðjum þar okkar
trausta forystumann og félaga.
Blessuð sé minning hans.
f.h. Sjálfsbjargar á Siglufirði,
Guðl. Sigurðsson.
SJÁLFSBJÖRG 31