Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Qupperneq 37

Sjálfsbjörg - 01.07.1964, Qupperneq 37
Skrifað í gestabók í Þorsteinsskála: Hugur bindi hraun og tind, hóp af fyndnum svörum. Lífsins yndi í ótal mynd, ylji Lindaförum. K. Friðriksson. Veröld seiðir viðmótshlý, vísar leið að tindum, undir heiðum himni í, Herðubreiðarlindum. R. G. Sn. Áður en lagt var af stað heimleiðis, tók fararstjóri upp ferðapela og vildi hella á lítið staup fyrir undirritaðan, en svo illa vildi til að nokkuð helltist niður í skaut hans. Það skal tekið fram, að utan þess vissi enginn til að vín væri með í förinni. Vegna slyss þessa var kveðið: Það er ekki neitt í neinum, nú þegar við ökum héðan. f morgun kynntist eg þó einum, ofurlítið rökum neðan. Fararstjóri sat í framsæti hjá bílstjóra og þótti fyrirferðamikill: Mun nú allur múgurinn, mega falla í skuggann, því að ferðaforinginn, fyllir útí gluggann. Og enn fékk fararstjóri þessa, þegar hann hottaði á mannskapinn í áningar- stað: Hentar ekki hangs né sis, hlýða kalli verðum. Við erum bara fánýtt fis, á fararstjórans herðum. Upptyppingar* nefnast f jöll nokkur, aust- an Herðubreiðar. Ýmsum þótti nafnið kát- legt og enda tvírætt. Þegar hljótt var í * Upptyppingar eru rétt í suður frá Herðubreiðar- lindum, en ekki í austur. bílnum og vegurinn næsta erfiður, þótti þetta lýsa ástandinu: Hraunið þvingar heilabú, herpist bringa og kviður. Upptyppingar allir nú, eru að stingast niður. Og enn var kveðið. (Skýringar óþarfar). Gleðin í bílnum nær gróflega skammt, geispandi karlarnir róa. Skarphéðinn okkar hann sýnir nú samt, sjálfsbjargarviðleitni nóga. Þegar hrauninu sleppti, var keyrt inn í geysilegt sandrok, sem fylgdi okkur yfir öll Möðrudalsöræfi*, allt niður í Axarfjörð. Keyrum við í moldarmökk, Möðrudals á fjöllum. Hópurinn sendir hjartans þökk, Herðubreiðartröllum. Bílstjórinn fór oft út til að athuga vinstra afturhjól bílsins, en yfir því sat nefnd kona: Okkur miðar ekkert hér, illur vegur dvín ei. Er nú dottið undan þér, afturhjólið Líney? Og enn: Áfram miðar ekkert hér, yrki ég raunarkvæði. Eru að detta undan mér, afturhjólin bæði. Þegar söngurinn rénaði og dauft varð yfir mönnum, var þetta sagt: Held ég fjalla- og heiðaveginn, hópurinn allur dofnaður. Nú er kallinn niðurdreginn, nú er Halli sofnaður. Rósberg G. Snœdal. * Vegurinn frá Jökulsárdal niður í Axarfjörð liggur um Hólssand, en ekki um Möðrudalsöræfi.— E.E. SJÁLFSBJÖRG 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.