Fréttablaðið - 28.01.2022, Qupperneq 1
1 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 2
Ljósmyndir úr
safneigninni
Geðrofsplata
með ananas
Menning ➤ 15 Lífið ➤ 22
Íbúar í Skerjafirði og Land-
vernd mótmæla áformum
Reykjavíkurborgar um land-
fyllingu í fjörunni í Skerjafirði
vegna nýrrar íbúðabyggðar
sem þar á að rísa.
gar@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Reykjavíkurborg
áformar að gera 4,3 hektara land-
fyllingu í Skerjafirði vegna nýs
íbúðahverfis við enda Reykjavíkur-
flugvallar.
„Strandlengjan verður mótuð
þannig að hún líki eftir náttúru-
legri strönd og leitast verður við að
þar geti myndast leirur á ný í stað
þeirra sem raskast,“ segir í kynn-
ingu borgarinnar sem kveður land-
fyllinguna nauðsynlega svo hverfið
nái þeirri stærð að verða sjálfbært.
At huga semd a f rest u r veg na
áformanna rann út fyrr í þessum
mánuði og bárust mótmæli frá
fjölmörgum íbúum og sömuleiðis
frá Landvernd. Rauði þráðurinn er
áhyggjur af spilltri ásýnd og eyði-
leggingu búsvæða fyrir fugla og
önnur dýr með því að fjaran hverfi.
„Öllum ætti að vera ljóst að land-
fyllingin og mannvirki á henni hafa
mikil og neikvæð áhrif á landslag og
ásýnd. Eftir röskun og landfyllingu
verður útkoman manngert grjót-
mannvirki,“ segir í athugasemdum
Landverndar. „Það er erfitt að færa
sannfærandi rök fyrir samfélags-
legri nauðsyn þess að spilla leirum
sem þessum sem lítið er eftir af á
höfuðborgarsvæðinu.“
Sigurður Áss Grétarsson verk-
fræðingur, sem starfaði lengi hjá
Vegagerðinni og hafði þar meðal
annars umsjón með framkvæmdum
við Landeyjahöfn, skrifar að það sé
rangt sem borgaryfirvöld haldi fram
að fjaran sé töluvert röskuð. Sam-
kvæmt skýrslu borgaminjavarðar sé
fjaran að mestu óbreytt frá 19. öld.
Endurskapa eigi leirur fyrir utan
væntanlega landfyllingu. Neðan-
sjávargarður sem eigi að gera í því
skyni muni ekki gera neitt gagn.
„Ástæðan er sú að þeir garðar eru
það mjóir að úthafsaldan hryggjar
upp á görðunum en brotnar ekki
og fer því yfir hann,“ skrifar verk-
fræðingurinn og skorar á borgina
að koma hreint fram. „Ef ætlunin er
að eyðileggja leirurnar þá á borgin
bara að segja það hreint út en ekki
blekkja og slá ryki í augu fólks.“
Einar Pétur Jónsson hvetur
borgina til að taka tillit til faglegs
mats ýmissa stofnana sem gert hafi
athugasemdir við mögulega land-
fyllingu í Shellfjöru Skerjafjarðar.
„Í nafni náttúruverndar og mann-
gæsku biðla ég til skipulagsyfirvalda
í Reykjavík um að endurskoða
áformin,“ segir í samhljóða athuga-
semdum í bréfum nokkurra íbúa.
„Ekki láta tískuna og „sjampó
sötrandi“ villinga glepja ykkur,“
brýnir Þorbjörg Jónsdóttir fyrir
borginni. „Það er hryllingur að
ímynda sér að geta ekki notið
grænna svæða og fuglalífs á þessum
fallega og mikilvæga stað,“ skrifar
Júlía Kristjánsdóttir. n
Íbúar láta mótmælaöldu skella á landfyllingu
Auður Önnu
Magnúsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar
ENYAQ iV
RAFMAGNAÐUR
412 til 534 km drægni (WLTP)
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is/skodasalur
FÆST EINNIG FJÓRHJÓLADRIFINN
Verð frá 5.790.000 kr.
Verkamenn við Reykjanesvirkjun önnum kafnir við störf. Snemma á síðasta ári var tilkynnt um að virkjunin yrði stækkuð úr 100 megavöttum í 130 án þess að nýjar holur yrðu boraðar. Í staðinn yrði
200 gráðu heitur jarðhitavökvi sem fellur til við vinnslu fyrstu 100 megavattanna nýttur til raforkuframleiðslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK