Fréttablaðið - 28.01.2022, Side 2
Öldugangurinn heillar
Jarðhræringarnar í Geldingadölum hafa varpað auknu ljósi á Reykjanes sem áfangastað, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn. Þar er varla þver-
fótað fyrir náttúruperlum. Þessir ferðamenn stóðust ekki mátið og smelltu sjálfu við Valahnúkamöl við Reykjanesvita með brimið í bakgrunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Vinsælu Hvíldarsófarnir
komnir aftur
Alþingi pantaði á árinu 1990
afsteypu af skjaldarmerki
til þess að koma fyrir ofan á
byggingu sinni í stað dönsku
kórónunnar. Hætt var við
verkið í miðjum klíðum eftir
inngrip húsafriðunarnefndar.
Mót skjaldarmerkisins er enn
til hjá Stálsmiðjunni Héðni.
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA „Það var Friðrik
skákmaður sem kom til okkar og
samdi um að við myndum steypa
skjaldarmerki Íslands í kopar upp á
húsið þar sem núna er kóróna,“ segir
Guðmundur Sveinsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Stálsmiðjunnar
Héðins, um pöntun sem barst á
árinu 1990 frá Friðriki Ólafssyni,
þáverandi skrifstofustjóra Alþingis.
Í Héðni var skorið út mót af
skjaldarmerkinu í timbur. Fyrir-
myndin var ef til vill óvenjuleg. „Það
eina sem menn fundu í þrívídd var
túkallinn. Þannig að þetta var skor-
ið út eftir túkalli sem var stækkaður
upp,“ rifjar Guðmundur upp.
Handverkið var langt komið
þegar babb kom í bátinn. „Húsa-
friðunarnefnd komst í málið og setti
sig upp á móti þessu. Það varð mikil
orrahríð milli Alþingis og húsafrið-
unarnefndar,“ rifjar Guðmundur
upp. Mikil blaðaskrif hafi orðið
og Sigmund, skopmyndateiknari
Morgunblaðsins, gert einar fjórar
myndir um málið.
„Þetta ball allt saman endaði með
því að húsafriðunarnefnd hafði
betur og Alþingi varð að bakka.
Friðrik skákmaður kom þá og vildi
endursemja. Það varð dálítið stapp í
því sem endaði með því að við feng-
um borgað eitthvað fyrir verkið en
þó ekki nóg. Þannig að það varð úr
að við héldum mótinu eftir og það
hangir hér uppi á vegg,“ lýsir Guð-
mundur atburðarásinni. „Við erum
mjög ánægð með gripinn. Hann
sómir sér vel og er í heiðurssessi,“
tekur hann fram.
Í stigagangi við mötuneyti starfs-
manna hangir því í dag mót, hand-
skorið í timbur, sem hægt væri að
nota til að steypa skjaldarmerki
Íslands. „Sá maður sem þetta gerði
heitir Hörður Sigurjónsson og var
af burða handverksmaður,“ segir
Guðmundur nánar um smíði móts-
ins.
Sú umræða sem nú er hafin, eftir
þingsályktunartillögu Björns Levís
Gunnarsonar Pírata um að skipta út
dönsku kórónunni á þaki Alþingis-
hússins og koma þar í staðinn fyrir
íslenska skjaldarmerkinu, hefur
ekki farið fram hjá Guðmundi. Hug-
myndin hefur fengið byr undir báða
vængi vegna þróunar mála á Evr-
ópumeistaramótinu í handknatt-
leik í Búdapest þar sem Dönum er
kennt um að íslenska liðið hafi ekki
náð í undanúrslit.
„Mér finnst þetta skondin og
skemmtileg umræða. Ég myndi
halda að það væri æra og sómi
Íslendinga að hafa skjaldarmerki
Íslands á Alþingishúsinu,“ segir
Guðmundur um sína skoðun. Ef slík
ákvörðun verður tekin gæti Alþingi
snúið sér til Héðins.
„Við getum skaffað þeim afsteypu
af þessu móti en þeir fá ekki mótið
aftur. Við látum það ekki af hendi,
það kemur ekki til greina,“ undir-
strikar Guðmundur Sveinsson. ■
Skjaldarmerki sem Alþingi
pantaði 1990 var aldrei sótt
Guðmundur
Sveinsson og
skjaldarmerkis-
mótið sem
skorið var út
fyrir Alþingi fyrir
þrjátíu árum en
afpantað.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Við getum skaffað
þeim afsteypu af þessu
móti en þeir fá ekki
mótið aftur. Við látum
það ekki af hendi, það
kemur ekki til greina.
Guðmundur Sveinsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Stálsmiðjunnar Héðins
Nammipokarnir tákna framboð á
listum. MYND/JAFNRÉTTISSTOFA
Anna Lilja
Björnsdóttir,
sérfræðingur hjá
Jafnréttisstofu
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Jafnréttisstofa hefur
hrint úr vör jafnréttisátakinu
Játak. Það snýst um að stjórnmála-
f lokkarnir og framboðin hugi að
fjölbreytileika við uppstillingar
eða prófkjör fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor. Átakið er unnið
í samvinnu við Samband íslenskra
sveitarfélaga, Kvenréttindafélag
Íslands, Fjölmenningarsetur og tvö
ráðuneyti.
„Sveitarstjórnarmál snúast um
nærsamfélagið og það er mikilvægt
að sem flestar raddir fái að heyrast,“
segir Anna Lilja Björnsdóttir, sér-
fræðingur hjá Jafnréttisstofu, en
hún fór ásamt Katrínu Björgu Rík-
arðsdóttur framkvæmdastjóra og
gaf sveitarstjórnarfólki hjá Akur-
eyrarbæ og Eyjafjarðarsveit nammi-
poka til áminningar.
Einn pokinn er með einlitu sæl-
gæti og annar með marglitu. Skila-
boðin eru þau að ef allt er eins er
valkosturinn enginn.
Eftir síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingar, árið 2018, voru konur 47 pró-
sent fulltrúa. Anna segir að þessum
flotta árangri megi ekki taka sem
sjálfsögðum hlut og passa upp á að
ekki verði bakslag. Þá sé hlutfallið
ekki alls staðar á landinu það sama.
„Núna er verkefnið að viðhalda
jöfnu kynjahlutfalli og jafnframt
auka fjölbreytileika út frá öðrum
breytum,“ segir hún. Þessar breyt-
ur séu meðal annars kynhneigðir,
aldur, fatlanir og uppruni. ■
Stjórnmálamenn
fá nammipoka
adalheidur@frettabladid.is
COVID-19 Áætlun um af léttingu
sóttvarnaaðgerða vegna Covid-19
verður rædd á ríkisstjórnarfundi
nú fyrir hádegi og verður hún kynnt
fjölmiðlum að fundi loknum. Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir
hefur þegar sent heilbrigðisráðherra
minnisblað með tillögum að aflétt-
ingaráætlun og var hún rædd í sér-
stakri ráðherranefnd í gær.
Í gær fóru tölur yfir fjölda nýrra
smita hér á landi yfir 1.500, þriðja
daginn í röð.
Þórólfur hefur spáð því að far-
aldurinn kunni að vera að nálgast
endalokin og jafnvel verði séð fyrir
endann á honum innan tveggja
mánaða. ■
Afléttingaráætlun
kynnt að loknum
ríkisstjórnarfundi
2 Fréttir 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ