Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hver er
sérstaða
Viðreisnar,
Vinstri
grænna
og Pírata í
samstarf-
inu? Hún
blasir alls
ekki við.
Hér eru
mikil tæki-
færi í lofts-
lagsmálum
og sömu-
leiðis fjár-
festingum
og upp-
byggingu.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Borgarstjórinn, Dagur B. Eggerts
son, sagði á dögunum í sjónvarps
fréttum um samstarf meirihlutans
í borginni: „Þetta eru ólíkir flokkar
en það er styrkur.“
Það sem finna má að þessum orðum borg
arstjórans er helst það að borgarbúar verða
alls ekki varir við að flokkarnir sem mynda
meirihluta borgarstjórnar séu ólíkir. Sam
starfið hefur gert þá svo keimlíka að engu er
líkara en þeir hafi runnið saman í einn flokk.
Viðreisn, Vinstri græn og Píratar eru orðnir
eins og daufgerð útgáfa af Samfylkingunni.
Um leið vaknar spurningin: Hvaða ástæða er
til að kjósa þessa flokka þegar hægt er að fá
ekta útgáfu með því að kjósa Dag B. Eggerts
son og Samfylkinguna?
Tilvistarlegt vandamál Viðreisnar, Vinstri
grænna og Pírata í borginni verður vitanlega
ekki leyst á þessari síðu Fréttablaðsins, en
fróðlegt verður að sjá hvernig þessum þrem
ur f lokkum, sem eru orðnir karakterlausir
og máttlausir, muni takast að minna á sig í
komandi kosningabaráttu. Ekki verður auð
veldlega séð hvernig þeir ætla að fara að því
að skapa sér sérstöðu. En sjálfsagt munu rán
dýrir ímyndafræðingar og almannatenglar
verða ráðnir til starfa og draga sitthvað
nýtilegt upp úr hattinum. Frambjóðendur
f lokkanna munu því væntanlega reyna að
stíga út úr litleysinu, rembast við að ljóma af
karakter og þylja utan að loforðaflauminn
um allt sem þeir ætli að vinna borgarbúum
til hagsældar komist þeir aftur í Ráðhúsið.
Kannski mun þeim takast að láta kjósendur
taka eftir sér. Ekkert mun samt breyta því að
hlutskipti þessara frambjóðenda verður að
standa í skugganum af Degi B. Eggertssyni.
Aftur skal vikið að orðum hins ágæta
borgarstjóra (því ágætur er hann) um að það
sé styrkur að ólíkir f lokkar vinni saman.
Rétt er að taka undir að það hlýtur að teljast
hollt í samstarfi f lokka að ólík sjónarmið
komi fram og tekist sé á um mál. Ekki verður
þess samt vart að svo sé raunin í samstarfi
meirihluta borgarstjórnar. Þar virðast allir
ævinlega hjartanlega sammála borgarstjór
anum. Hver er sérstaða Viðreisnar, Vinstri
grænna og Pírata í samstarfinu? Hún blasir
alls ekki við.
Niðurstaðan gæti því orðið sú að þegar
gengið verður til borgarstjórnarkosninga
seinna á þessu ári muni stór hluti kjósenda
á miðjunni og á vinstri væng stjórnmála
spyrja sig þessarar eðlilegu spurningar: Er
ekki bara best að kjósa Dag B. Eggertsson? n
Ólíkir flokkar
Reykjavík hefur alla burði til þess að vera fyr ir mynd
ar borg í heiminum þegar kemur að grænum leið um.
Reykjavík stefnir að kolefnishlutleysi 2040 en gæti
jafnvel náð þessu markmiði tíu árum fyrr. Þetta er
eitt mikilvægasta verkefni okkar borgarbúa fyrr og
síðar. Grundvöllur þess er stórátak í samgöngum,
borgarlínu, orkuskiptum og innleiðingu hringrásar
hagkerfis. Við þurfum róttækar aðgerðir í loftslags
málum. Bygging gas og jarðgerðarstöðvarinnar
GAJA í Álfsnesi er öflugasta aðgerð í loftslagsmálum í
Reykjavík síðan hitaveiturnar voru reistar. Með henni
verður mikill samdráttur í losun gróðurhúsaloftteg
unda og um leið skapast tækifæri. Þrátt fyrir mistök
og byrjunarörðugleika getur GAJA orðið miðpunktur
í nýjum, íslenskum endurvinnsluiðnaði, sem þörf er á
að rísi. Á næsta ári mun sérsöfnun á lífúrgangi hefjast,
þá mun GAJA starfa á réttum forsendum, fá gott hrá
efni og skila árangri í samræmi við það.
Ég vil láta skilgreina grænt atvinnusvæði í Reykja
vík, búa til hagræna hvata og skilyrði fyrir græna
starfsemi til að laða að græn fyrirtæki sem skapa
störf. Græn tækifæri með hvötum eins og lægra
orkuverði og gjöldum fyrir þá aðila sem uppfylla
skilyrði. Miðstöð fyrir öfluga endurvinnslustarfsemi.
Uppbyggingu á íslenskum endurvinnsluiðnaði sem
nýtir þá orku og efnislegu afurðir sem verða til við
meðhöndlun á 120 þúsund tonna úrgangi frá höfuð
borgarsvæðinu. Hagsmunir höfuðborgarsvæðisins
séu hafðir að leiðarljósi um bestu og hagkvæmustu
lausnirnar. Verkefnin sameinuð á ákjósanlegum
stað.
Hér eru mikil tækifæri í loftslagsmálum og sömu
leiðis fjárfestingum og uppbyggingu. Byggja upp
heildstætt endurvinnsluþorp þar sem GAJA gæti
leikið meginhlutverk. Að ári taka ný lög við þar
sem bannað verður að urða lífúrgang og samræmd
söfnun hefst á endurvinnsluefnum. Þá skapast tæki
færi til að byggja upp endurvinnsluþorp á einum
stað í samvinnu við atvinnulífið. Mestu tækifæri
21. aldarinnar liggja nefnilega í ruslinu.
Búum til eitt heilsteypt endurvinnsluþorp – stórt
skref í að innleiða hringrásarhagkerfi á Íslandi. n
Grænt atvinnusvæði
Þorkell
Heiðarsson
náttúrufræðingur
og frambjóðandi í
5. sætið í forvali xS
í Reykjavík
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
arnartomas@frettabladid.is
Rauð-hvíta martröðin
Samfélagið er enn í lamasessi
eftir handboltamartröðina í
Ungverjalandi þar sem Dönum
tókst enn eina ferðina að eyði
leggja allt. Viðbrögð Íslendinga
voru í stíl við dönsku fánalitina
þar sem fólk varð ýmist rautt af
bræði eða fölt af vonbrigðum.
Tilfinningasúpan varð þvílík
að upp úr sauð og flaut yfir
á danska fréttamiðla. Megi
þetta verða Dönum að ein
hvers konar lexíu um mikilvægi
einhvers. Þessi tilfinninga
rússíbani kyndir auðvitað
undir frændskap okkar við
Svía sem myndu svala gegndar
lausum hefndarþorsta Íslend
inga með því að fara alla leið.
Heja Sverige! Að öðrum kosti,
ef Svíarnir klikka, rifjum við
upp vinskapinn við Frakka sem
koma blásaklausir undan þessu
öllu saman.
Að borga brúsann
Ökuþórinn Ásmundur Frið
riksson hefur gengist við sögum
um að hann sé að íhuga fram
boð í sveitarstjórnarkosningum
í Rangárþingi ytra. Færi svo að
hann tæki við sem sveitarstjóri
yrði hann þó að víkja af Alþingi
og frá þeim aksturstengdu fríð
indum sem þingsætinu fylgja.
Íbúar yrðu því að treysta á
kröftugt bæjarlíf á Hellu til að
halda Ásmundi tjóðruðum og
koma í veg fyrir óþarfa rúnt. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2022 FÖSTUDAGUR