Fréttablaðið - 28.01.2022, Side 10
Viktor Gísli, Bjarki
Már, Ómar Ingi, Sig-
valdi Björn og Ýmir
Örn voru tilnefndir
í stjörnulið Evrópu-
mótsins í gær.
KSÍ hefur unnið frá-
bært starf í greiningar-
vinnu sinni og það er
núna okkar að byggja
ofan á það.
Grétar Rafn Steinsson
10 Íþróttir 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2022 FÖSTUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Þó að Strákarnir okkar
séu ekki að leika til undanúrslita í
dag er gulrót í boði fyrir íslenska
liðið gegn Noregi í leiknum um
fimmta sætið á Evrópumótinu 2022.
Sigurvegari leiksins fær þátttöku-
rétt í lokakeppni HM á næsta ári og
sleppur því við umspil. Sigur myndi
um leið þýða að íslenska liðið hefði
jafnað þriðja besta árangur karla-
landsliðsins á EM frá upphafi.
Andstæðingar vorir, Norðmenn,
njóta góðs af því að hafa fengið
einum sólarhring meira af hvíldar-
tíma eftir tap Norðmanna gegn
Svíum á þriðjudaginn. Þeir eru líkt
og Íslendingar ekki með fullskipað
lið eftir að tveir leikmenn liðsins,
Torbjørn Bergerud og Magnus
Gulleruds, greindust með Covid-19
í vikunni. ■
Sæti á HM undir
gegn Noregi í dag
Óvíst er um framhald Guðmundar
sem er með samning út þetta mót.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
TAKK
Fyrir að vera ánægðustu
viðskiptavinirnir,
5. árið í röð!
Fyrrverandi landsliðsmaður-
inn Grétar Rafn Steinsson
var á dögunum ráðinn sem
tæknilegur ráðgjafi hjá KSÍ til
sex mánaða. Í tilkynningunni
kom fram að Grétari væri
ætlað að stórbæta greiningar-
vinnu eftir að hafa unnið um
árabil á Englandi, síðast fyrir
Everton.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Þetta er mjög svipað starf
og ég hef verið að vinna erlendis.
Það hefur verið mismunandi hver
byrjunarreiturinn er. Hjá Fleet-
wood var ég að byrja á einhverju
sem var varla til staðar en hjá
Everton var ég fenginn til að halda
starfinu áfram,“ segir Grétar Rafn,
aðspurður hvort til sé starfsheiti
yfir verkefni hans hjá KSÍ og hvort
þetta sé líkt því sem hann hafi
verið að fást við undanfarin ár.
„Fótboltinn hefur breyst gífurlega
hratt síðustu tíu til fimmtán ár og er
í stöðugri þróun. Andstæðingarnir
eru sífellt að taka framförum og þá
þarf að vera hægt að bregðast við.
Þar er mitt hlutverk og er ekkert
ósvipað því sem ég hef verið að gera
undanfarin ár.“
Grétar lék á sínum tíma 46 lands-
leiki og var atvinnumaður í níu ár.
Undanfarin ár hefur hann unnið
fyrir Fleetwood og Everton en er
nú aftur kominn til Íslands. Hann
var yfirmaður knattspyrnumála
hjá Fleetwood og fenginn til enska
úrvalsdeildarfélagsins Everton sem
yfirnjósnari félagsins. Sá starfstitill
breyttist síðar og varð Grétar yfir-
maður leikmanna- og þróunarmála
áður en leiðir skildi rétt fyrir ára-
mót.
„KSÍ hefur unnið frábært starf
í greiningarvinnu sinni og það er
núna okkar að byggja ofan á það.
Það getur verið erfitt að breyta til,
en ég vonast til að þetta starf geti
fært okkur skref fram á við til fram-
tíðar. Út frá þeim samræðum sem
ég hef átt innan KSÍ og við aðildar-
félögin, þá skynja ég mikinn áhuga
á því að taka þetta skref.
Um leið er ég ofboðslega stoltur,
rétt eins og Jóhannes og Arnar, af
að fá tækifæri að vinna fyrir Ísland.
Þetta er stórt skref í alþjóðlegum
fótbolta því þessu starfi fylgir mikil
ábyrgð.“
Grétar verður í miklu samstarfi
við félagslið á Íslandi, að aðstoða
þau við stefnumörkun.
„Öll félög geta búið til stefnu, og
öll félög þurfa að hafa stefnu. Þar sé
ég möguleika, með öf lugri stefnu
koma afrekin, sama hvar félagið er
staðsett eða hversu stórt það er. Það
er ótrúlegt hvað hægt er að gera, ef
við vinnum saman. Það eru mögu-
leikar á að ef la fræðslu og kynn-
ingu í gegnum þetta, möguleiki á
að koma þessu inn í menntakerfið,
við erum að taka stór skref fram á
við.“
Meðal þess sem Grétar kynnti á
blaðamannafundi í gær var notkun
forrita sem eiga að auka aðgengi að
gögnum og tölfræði um íslenska
knattspyrnu. Aðspurður segir Grét-
ar að það sé ekki bara á færi stærstu
félaganna að nota slíkan búnað.
„Þetta þarf ekki að vera fyrir
stærstu liðin því að okkar vinna
er fyrir félögin úti um allt land. Ef
allir eru tilbúnir að taka þátt í því
að ef la yngstu iðkendur okkar, þá
hagnast félögin á öflugra starfi.“
Í starfi hans hjá Everton gat hann
fylgst með því hvernig kvenna-
knattspyrna tók mörg skref á
stuttum tíma.
„Vinnan sem okkur tókst að
vinna hjá Everton á stuttum tíma
var ótrúleg. Það sem er að gerast í
kvennaknattspyrnu í heiminum
er gríðarlega spennandi, framförin
er gríðarleg, umgjörðin að stækka
og við erum framarlega á heims-
vísu, en það er hægt að koma þessu
ennþá lengra.
Ég hef fylgst vel með kvenna-
knattspyrnunni á Íslandi undan-
farin ár og það er ótrúlegt starf
unnið. Við erum með frábæran
efnivið til staðar, rétt eins og hjá
strákunum,“ segir Grétar sem er
stoltur af starfi sínu hjá Everton
þrátt fyrir ólgu á bak við tjöldin á
síðustu mánuðum hans í starfi.
„Ég er mjög stoltur. Þetta var
frábært tækifæri til að taka næsta
skref á ferlinum. Eins og í viðskipta-
heiminum er fótboltaheimurinn
grimmur og þú þarft að vera vak-
andi alla daga. Ég lít stoltur til baka
og lærði heilmikið þar, rétt eins og
ég mun læra mikið í þessu starfi til
framtíðar,“ segir Grétar, aðspurður
út í tíma sinn hjá Everton. ■
Færum greiningarvinnu á næsta þrep
Grétar var ráðinn sem yfirnjósnari Everton og varð síðar yfirmaður leikmanna- og þróunarmála. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR