Fréttablaðið - 28.01.2022, Qupperneq 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
1813 Skáldsagan Hroki og
hleypidómar, eða
Pride and Prejudice,
eftir Jane Austen er
gefin út í Bretlandi.
1825 Hið Konunglega nor
ræna fornfræðafélag
er stofnað í Kaup
mannahöfn.
1855 Fyrsta járn
brautarlestin fer
frá Atlantshafi til
Kyrrahafs á Panama
járnbrautinni.
1887 Í Montanafylki í
Bandaríkjunum falla
til jarðar stærstu
snjókorn sem sést hafa á jörðinni, 38 cm breið og 20
cm þykk.
1907 Sláturfélag Suðurlands, SS, er stofnað sem sam
vinnufélag bænda. Það hét fyrst Sláturfélag
Árnesinga og Rangæinga.
1912 Tólf íþróttafélög stofna Íþróttasamband Íslands,
„bandalag íslenskra íþrótta og fimleikafélaga“, í
Bárubúð.
1935 Ísland verður fyrsta land í heimi til að lögleiða
fóstureyðingar.
1981 Bandaríski leikarinn Elijah Wood fæðist.
2008 Jafnréttindafélag Íslands er
stofnað.
2013 EFTA-dómstóllinn fellir
úrskurð sinn í máli ESA gegn
Íslandi og sýknar Ísland af
öllum liðum ákærunnar og
hafnar öllum kröfum sem
gerðar eru á hendur landinu.
Merkisatburðir
Sjötíu og þremur sekúndum eftir geimskot Challenger
geimskutlunnar frá Merritteyju í Flórída, klukkan 16.39 að
íslenskum tíma, þann 28. janúar árið 1986, urðu kaflaskil í
geimferðasögu mannkyns. Sjö geimfarar létust þegar Chal
lengerskutlan tættist í sundur í 29 kílómetra hæð.
Á bilinu 17 til 20 prósent Bandaríkjamanna sáu Challenger
slysið í beinni útsendingu. Mikill áhugi var fyrir geimskotinu,
enda hafði kennarinn Christa McAuliffe unnið hug og hjörtu
bandarísku þjóðarinnar í aðdraganda geimskotsins. McAu
liffe átti að verða fyrsti almenni borgarinn til að fara út í
geim.
Sérstök rannsóknarnefnd var sett á laggirnar til að rýna
í ástæður slyssins. Hún var kennd við formanninn, William
Rogers. Á meðal nefndarmanna voru geimfarinn Sally
Ride, fyrsta bandaríska konan sem fór út í geim, og eðlis
fræðingurinn goðsagnakenndi Richard Feynman. Eins og
honum var tamt átti Feynman eftir að setja mark sitt á störf
og niðurstöðu nefndarinnar.
Meginniðurstaða Feynmans var að svokallaðir Ohringir,
sem eru plasthringir notaðir til þéttingar, hafi laskast í
þeim óvenjulega lofthita sem var á Flórídaskaga dagana
fyrir geimskotið. Þannig hafi mikill kuldi orðið til þess að
hringirnir glötuðu þéttleika sínum og hafi á endanum gefið
sig þegar heitt gas seytlaði út úr eldflauginni. Þetta var
ástæðan fyrir því að Challenger sprakk.
Í lokaskýrslu Rogernefndarinnar er sérstakur kafli þar
sem Feynman fer hörðum orðum um öryggisferla og athug
anir starfsmanna NASA en harmleikurinn hafði víðtæk áhrif
á störf NASA. Öllum geimskotum var frestað í nær þrjú ár
meðan ástæður og tildrög Challengerslyssins voru rannsök
uð. Í dag er slysið oft á tíðum notað sem skólabókardæmi
um hvernig haga skuli öryggismálum og athugunum. n
Þetta gerðist: 28. janúar 1986
Challenger-skutlan ferst yfir Flórídaskaga
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Grétar Felix Felixson
Baugakór 1, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 25. janúar síðastliðinn
á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi. Jarðarför verður auglýst síðar.
Guðlaug Þórs Ingvadóttir
Valgeir Júlíus Grétarsson Sigrún Jóhannesdóttir
Guðmundur F. Grétarsson Sylwia Gretarss. Nowakowska
Ingi Örn Grétarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Rafn Valgarðsson
lést á dvalarheimilinu Klausturhólum
mánudaginn 24. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Halldóra Sigurrós Árnadóttir
Anna Rafnsdóttir Kjartan Sigurjónsson
Björn Ingi Rafnsson Sunna Ólafsdóttir
Sigrún Rafnsdóttir Friðgeir Bjarni Skarphéðinsson
Jón Rafnsson Hafdís Erla Bjarnadóttir
Eyjólfur Árni Rafnsson Egilína S. Guðgeirsdóttir
afabörn og langafabörn.
Forstjóri Persónuverndar ítrekar
mikilvægi þess að varkárni sé
sýnd í meðferð persónuupp-
lýsinga á tækniöld.
arnartomas@frettabladid.is
Alþjóðlegi persónuverndardagurinn er
haldinn í 16. skipti í dag en á þeim degi
standa persónuverndarstofnanir víða
um heiminn fyrir kynningu á málefni
persónuupplýsinga. Helga Þórisdóttir,
forstjóri Persónuverndar, segir ýmislegt
hafa áunnist í málaflokknum á undan-
förnum árum.
„Persónuverndarlögin sem voru
kynnt til sögunnar árið 2018 ollu
ákveðnum straumhvörfum enda tóku
þau á ýmsu sem þurfti að taka á um lög-
gjöfina sem varðar meðal annars stærstu
þátttakendur í vinnslu persónuupplýs-
inga á heimsvísu,“ segir Helga og nefnir
sem dæmi starfsumhverfi bandarískra
stórfyrirtækja þar sem engin persónu-
verndarlög gilda. „Stóri útgangspunkt-
urinn með löggjöfinni var að það á
enginn að fara af stað með vinnslu per-
sónuupplýsinga, hvar sem er í Evrópu,
nema það sé skýrt hvað sé verið að vinna
með og hvort heimild liggi fyrir.“
Helga segir þetta eiga við um öll
stjórnvöld, sveitarfélög, fyrirtæki, alla
hagsmunaaðila og alla þá sem ætli sér að
vinna með persónuupplýsingar. „Þetta
skiptir rosalega miklu máli í ljósi þess að
það er unnið með persónuupplýsingar í
öllum geirum samfélagsins.“
Sandkassinn
Í tilefni af deginum ákvað Persónuvernd,
í samstarfi við Embætti landlæknis og
Stafrænt Ísland, að kynna fyrirhugaðan
svokallaðan sandkassa fyrir fyrirtæki
sem hafa hug á að þróa lausnir byggðar á
gervigreind til að nota í heilbrigðisþjón-
ustu. Verkefninu er ætlað að aðstoða
fyrirtæki við að hanna lausnir með per-
sónuverndarsjónarmið að leiðarljósi og
munu Persónuvernd og samstarfsaðilar
hennar vera í þéttu samtali við þá aðila
sem verða valdir til þátttöku í kjölfar
umsóknarferlis.
Skuggahliðar Google og TikTok
Eitt af hlutverkum Persónuverndar er að
vekja til vitundar um hvaða reglur gildi
á hvaða sviði og segir Helga að þau hafi
forgangsraðað áherslu á hvernig eigi að
vinnla persónuupplýsingar í heilbrigðis-
geiranum og menntakerfinu.
„Persónuvernd barna á að njóta
verndar umfram allt annað,“ segir hún
og bendir á mikilvægi þess í samhengi
við tækni frá löndum þar sem persónu-
verndarlög eru önnur. „Mörg tæki og tól
eru upprunnin í löndum þar sem engrar
eða nær engrar persónuverndar gætir. Í
Bandaríkjunum hefur til dæmis við-
gengist að umgangast upplýsingar eins
og geðheilbrigðissögu og áfengisnotkun
sem viðskiptaupplýsingar.“
Þá nefnir Helga einnig að vinsæli
samfélagsmiðillinn TikTok komi frá
Kína þar sem persónuvernd er lítil sem
engin. „Nýlega voru að koma lög á fyrir-
tæki í Kína sem segja að fyrirtæki þurfi
að hlíta persónuverndarlögum, en hið
opinbera á fyrirtækin og veit þannig allt
um borgarana.“
Helga segir að Íslendingar ættu sér-
staklega að láta sig málefnið varða þar
sem samfélagsmiðla- og netnotkun hér-
lendis sé á heimsvísu. „Það er margt gott
í þessu, en það eru líka skuggahliðar.“
Varkárni á tækniöld
Sumar persónuupplýsingar eru f lokk-
aðar sem viðkvæmar, en Helga segir að
þótt sumir búi ekki yfir viðkvæmum
persónuupplýsingum geti upplýsing-
arnar samt verið viðkvæms eðlis. „Sem
dæmi má nefna upplýsingar um fjárhag
eða hvort einhver hafi brotið gegn hegn-
ingarlögum,“ segir hún. „Svo eru aðrar
upplýsingar sem við búum yfir sem við
viljum einfaldlega ekki að óviðkomandi
komist yfir.“
Að lokum vill Helga benda á að per-
sónuverndarlög séu í raun ekki að koma
í veg fyrir eitt né neitt. „Það þarf bara að
stilla sig af áður en farið er af stað, sama
hvort um er að ræða stjórnvöld eða fyrir-
tæki,“ segir hún.
„Það getur skipt sköpum að leita álits
hjá fagaðila áður en skaðinn er skeður.
Vinnsla persónuupplýsinga á tækniöld
er svo viðkvæm. Ef þú setur eitthvað á
netið, þá er það þar til að vera, sem getur
haft gríðarlega slæmar afleiðingar fyrir
einstaklinga.“ n
Alþjóðlegur dagur persónuverndar
Mörg tæki sem Íslendingar nota eru framleidd í löndum þar sem persónuverndarlög
eru allt önnur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ef þú setur eitthvað á
netið, þá er það þar til að
vera, sem getur haft
gríðarlega slæmar afleið-
ingar fyrir einstaklinga.
Helga Þórisdóttir,
forstjóri Persónu
verndar
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2022 FÖSTUDAGUR