Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 28. janúar 2022
Gott og girnileg nasl er ómissandi
yfir leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY.
thordisg@frettabladid.is
Íslenska landsliðið í handbolta
keppir á móti Noregi um 5. sætið á
EM karla í handknattleik klukkan
14.25 í dag. Ólafur Stefánsson, einn
albesti handboltamaður sögunnar,
sagði fyrir leik Íslands og Svart-
fjallalands í EM-stofu RÚV, að
áhorfendur þyrftu að vera búnir að
græja snakkið fyrir leikina; til að
hafa fulla einbeitingu við að senda
góða strauma til strákanna okkar.
Það er náttúrlega ómissandi að
hafa gott nasl yfir þeirri stórkost-
legu skemmtun sem leikir íslenska
landsliðsins hafa verið á EM og
upplagt að skella í mexíkóskt
nachos fyrir leikinn í dag.
Mexíkóskt handboltasnakk
Það er leikur einn að útbúa tex
mex-partíplatta. Steikið nauta-
hakk og kryddið með mexíkósku
kryddi að smekk. Gott að setja
svartar baunir eða nýrnabaunir og
salsasósu saman við hakkið. Setjið
því næst nachos ofan á álpappír
á bökunarplötu eða í botninn á
eldföstu móti og sáldrið þar ofan
á hakki, jalapeno-pipar, maís-
baunum, smátt skornum tóm-
ötum, blaðlauk og papriku. Toppið
með enn meira nachosi, salsasósu,
ostasósu og rifnum cheddar-osti
og bakið í ofni við 200°C eða þar
til osturinn hefur bráðnað. Berið
fram með gvakamóle og sýrðum
rjóma.
Áfram, Ísland! n
Maulað yfir
handboltanum
Alan Talib, forstjóri Cromwell Rugs og teppasölumaður af fjórðu kynslóð, býður Íslendingum einstakt tækifæri til að eignast ekta persneskt teppi á góðu
verði, en teppin eru hrein og klár listaverk og endast í áratugi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Einstök listaverk fáanleg á
fordæmalausu verði
Cromwell Rugs býður upp á einstök persnesk teppi sem eru sannkölluð listaverk og ólík
öllu öðru sem fæst á Íslandi. Vegna viðskiptaþvingana gagnvart Íran er teppamarkaðurinn
þarlendis að hrynja, svo Cromwell Rugs er að losa sig við birgðir sínar á áður óséðu verði. 2
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is