Fréttablaðið - 28.01.2022, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Alan Talib er forstjóri Cromwell
Rugs og teppasölumaður af fjórðu
kynslóð, svo hann flytur með sér
menningu, sögu og þekkingu sem
á rætur að rekja til langafa hans, en
vegna breyttra aðstæðna er hann
nú að selja öll teppin sín til að hefja
ný viðskiptaævintýri. Íslendingar
geta notið góðs af þessu og eignast
einstakt alvöru persneskt teppi á
sérlega lágu verði.
„Það er ekki lengur hægt að
halda uppi viðskiptum með pers-
nesk teppi,“ segir Alan. „Það má
ekki lengur flytja fjármagn til
Írans og því er ekki hægt að kaupa
ný teppi af birgjum. Fyrir vikið er
teppaiðnaðurinn í Íran því miður
að leggjast af, en þar með glatast
mörg þúsund ára menningararf-
leifð.“
Náttúruleg efni
og einstakt handverk
„Teppin okkar eru öll gerð úr
náttúrulegri ull og notuð eru
náttúruleg litarefni. Þau eru svo
vafin af mikilli færni, en hvert
landsvæði í Íran hefur sinn eigin
stíl og hönnun á teppunum,“ segir
Alan. „Það getur oft verið mikill
munur á handverkinu frá ólíkum
stöðum, en það er til dæmis mikill
munur á teppunum sem eru gerð
af hirðingjum og þeim sem eru
gerð í borgum.
Í borgunum er mikil sérhæfing
og verkaskipting, þannig að
ákveðnar aðilar sinna hönnun,
aðrir litun, aðrir skaffa ull og enn
aðrir vefa teppin. En hjá hirðingj-
unum sinnir sama fólkið öllum
skrefum í teppagerðinni og það
býr til sína eigin hönnun, sem
byggir oft á lagi eða vögguvísu,“
útskýrir Alan. „Hirðingjarnir nota
heldur ekki hefðbundna lóðrétta
vefstóla, heldur lárétta, svo það sé
auðvelt að pakka þeim saman og
flytja þá.“
Mikil saga á bak við munstrin
„Það er rík saga á bak við hverja
einustu hönnun í persneskum
teppum. Hefðin á um 3.000 ára
gamla sögu, en upphaflega voru
það konur sem voru að ganga í
hjónaband sem bjuggu til persónu-
leg teppi sem sýndu stöðu þeirra
til að sýna tilvonandi eiginmanni
sínum auð sinn og öðlast virð-
ingu,“ útskýrir Alan.
„Þannig var þetta í þúsundir ára
en svo fóru teppagerðarmenn í
írönsku borginni Kashan að verða
fyrir listrænum áhrifum frá ind-
verskum kryddkaupmönnum sem
fóru í gegnum borgina til að koma
kryddi sínu á markað í Mið-Aust-
urlöndum og Evrópu,“ segir Alan.
„Þá byrja blómamynstur og alls
kyns flóknari mynstur með meiri
smáatriðum að líta dagsins ljós.
Þaðan koma nú teppi sem sýna tré
lífsins að ofan og svo eru tákn fyrir
árstíðirnar fjórar í hornum og sjö
rammar sem tákna daga vikunnar.
Ein nýjasta hönnunin er um
350 ára gömul og sagan segir að
hún hafi orðið til þegar teppa-
gerðarmaður var fenginn til að
gera teppi sem táknaði skrúðgarð
konungsins í Íran,“ segir Alan.
„Það var ekkert annað í boði en
að gleðja kónginn ef hann vildi
halda höfðinu, en hann átti mjög
erfitt með verkefnið. Hann var
orðinn örvæntingarfullur en fékk
þá innblástur frá útsaumi eigin-
konu sinnar og gerði teppi með 99
ferningum þar sem hver ferningur
táknar hluta af garðinum.
Þannig hefur hver einasta
hönnun sína sögu og menningu
og mér finnst mjög mikilvægt að
segja þessar sögur og láta fólk vita
af því að þessi menningararfur sé
að glatast, því það er enginn að
tala um það,“ útskýrir Alan. „Um
helmingur allra borga hefur hætt
teppaframleiðslu alfarið en annars
Alan segir að
viðskipta-
þvinganir gegn
Íran hafi bitnað
mikið á teppa-
framleiðslu-
geiranum þar í
landi og hann sé
nú að líða undir
lok. Fyrir vikið
er ekki hægt að
viðhalda við-
skiptum með
persnesk teppi
og þess vegna er
hann nú að selja
teppin á áður
óséðu verði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Öll teppin eru
handvafin af
mikilli list, en
hvert einasta
landsvæði í Íran
hefur sína eigin
hönnun.
Teppin eru lituð
með gamaldags
aðferðum og
náttúrulegum
litum.
Eftir framleiðsluna eru teppin látin bakast í sólinni í um tvo mánuði til að
draga úr styrkleika litanna og láta þau glansa á náttúrulegan hátt.
Handverk hirðingja er allt öðruvísi en það sem er gert í borgum og bæjum og
þeir nota lárétta vefstóla. MYNDIR/AÐSENDAR
Þetta teppi er
frá Kashan og
ber einkenni
hönnunarinnar
sem er bundin
við borgina.
staðar er framleiðslan bara um
20-50% af því sem áður var.“
Í aðstöðu til að
tryggja gæði og gott verð
„Um 90% allra persneskra teppa
eru seld í Hamborg í Þýskalandi.
Það er erfitt og dýrt að fara til Írans
til að sækja teppin og flytja þau
á markað, svo heildsalar í Þýska-
landi kaupa teppi af heildsölum í
Teheran, sem sjálfir kaupa teppi
frá borgunum og heildsalarnir þar
kaupa teppi frá þorpunum,“ segir
Alan. „En þar sem ég er af fjórðu
kynslóð teppasölumanna fer ég
ekki þessa leið, heldur fer ég sjálfur
á staðinn og kaupi teppin beint af
framleiðendum.
Það er algengt að nota klór til að
draga úr lit teppanna og ammoní-
ak til að gefa ullinni meiri glans, en
þessi efni brjóta niður trefjarnar í
teppunum svo þær missa sveigjan-
leika og fyrir vikið verða teppin
ekki jafn sterk,“ útskýrir Alan.
„Við þurfum hins vegar að halda
háum gæðastaðli og gefum fimm
ára ábyrgð á teppin, svo við notum
sérstaka vél til að ganga úr skugga
um að þessi efni hafi ekki verið
notuð á teppin.
Við setjum teppin í gegnum
flókið vinnsluferli þar sem þau
eru þvegin vandlega og síðan látin
bakast í sólinni í 50-60 daga í vöru-
húsinu okkar, sem er á heitasta
stað í Íran. Sólin upplitar teppin
svo litirnir verði ekki jafn rosalega
sterkir og þegar ullin bakast leggst
fitan í henni ofan á teppið svo
það glansar,“ segir Alan. „Þetta er
mikilvægasti hlutinn af vinnslunni
eftir að teppið hefur verið búið
til og fólk borgar vel fyrir þessa
þjónustu. Það er vissulega hægt
að fá sömu niðurstöður með því
að nota þessi sterku efni, en þá
skemmist ullin um leið.
Við erum alþjóðlegt fyrirtæki
sem starfar á mjög stórum mark-
aði, við getum keypt teppin á góðu
verði beint af framleiðendum og
allt þetta vinnsluferli gerist á okkar
enda. Því erum við í aðstöðu til að
bjóða mun betra verð en íslenskir
teppasölumenn, aðstæður eru bara
ekki sambærilegar,“ segir Alan.
Á vefnum og með verslun
„Við munum halda áfram að bjóða
upp á þessi teppi á Íslandi eins
lengi og fólk hefur áhuga á þeim.
Viðbrögðin hingað til hafa verið
stórkostleg, fólk er mjög hrifið af
teppunum og ánægt með verðið.
Ísland er ólíkt öðrum stöðum því
við þurftum að byggja upp orð-
spor og traust hér á landi áður en
fólk byrjaði að versla við okkur,
en fólk er byrjað að koma og sjá að
við erum áreiðanleg,“ segir Alan.
„Það ræðst svo af vinsældunum
hve lengi við höldum áfram, því
að til þess að selja þessi teppi hér á
landi þarf ég að standa straum af
miklum kostnaði við að flytja sér-
fræðinga til Íslands.
Fólk getur keypt teppi á vef-
síðunni okkar, cromwellrugs.com,
og sótt þau svo í verslun okkar
í Víkurhvarfi 2 um helgar, eða
komið beint til okkar og skoðað
teppin,“ segir Alan. „Kaup á svona
teppi er fjárfesting, því þau endast
áratugum saman, en það er líka
ýmislegt sem þarf að hafa í huga
við kaupin og því mælum við með
því að fólk gefi sér tíma, komi
og þreifi á teppunum og fái ráð.
Íslendingar líta yfirleitt á teppi
sem húsgögn, en persnesk teppi
eru meira eins og listaverk. Það er
líka hægt að fá teppin lánuð og það
er hægt að skila keyptum teppum
án nokkurra skuldbindinga.“ n
Hægt er að skoða og kaupa
teppin á heimasíðunni, cromwell-
rugs. com, og í verslun Cromwell
Rugs í Víkurhvarfi 2.
2 kynningarblað A L LT 28. janúar 2022 FÖSTUDAGUR