Fréttablaðið - 28.01.2022, Page 15
KYNN INGARBLAÐ
Nú er svo
komið að
enginn er
óhultur og
fjarlægð
Íslands eða
smæð
virðist
ekki fæla
menn frá
því að
sækja
hingað.
Hlynur
Guðmundsson
Kynningar: Síminn, Dokobit, Persónuvernd, Þekking, Resecurity, Advania.FÖSTUDAGUR 28. janúar 2022
Rafrænt öryggi
María Böndal, deildarstjóri viðskiptatengsla, og Hlynur Guðmundsson, forstöðumaður fyrirtækjalausna Símans. MYND/KRISTINN BERNHARD
Öruggara net með
Fyrirtækjapakka
frá Símanum
Rafrænt öryggi skipti æ meira máli í rekstri fyrirtækja og
stofnana. Síminn býður nú upp á Fyrirtækjapakka með
netöryggi og öll fjarskipti fyrirtækisins í einum pakka.
Rafrænt öryggi skiptir mjög
miklu máli í rekstri fyrirtækja og
stofnana í dag. Starfsfólk Símans
hefur séð mikinn vöxt undanfarin
ár í beinum netárásum (DDOS)
þar sem tilgangurinn er að lama
þjónustur viðkomandi rekstrarað-
ila með miklu magni fyrirspurna
og ýmiss konar svindltilraunum til
að hafa peninga út úr fyrirtækjum,
segja þau Hlynur Guðmundsson,
forstöðumaður fyrirtækjalausna,
og María Blöndal, deildarstjóri
viðskiptatengsla hjá Símanum.
„Nú er svo komið að það er enginn
óhultur og fjarlægð Íslands eða
smæð virðist ekki fæla aðila frá því
að sækja hingað eins og dæmin
sanna,“ segir Hlynur. Oft eru þetta
„drive by“ árásir þar sem netið á
Íslandi er skannað og leitað eftir
þekktum veikleikum í fyrstu
vörn fyrirtækja. „Aðferðirnar sem
menn beita eru sífellt að þróast og
tæknin hjálpar því miður í þessum
efnum en íslenskan í svindlpósti
er oft ansi góð þó að stundum
séu áberandi villur sem ættu að
vekja fólk til umhugsunar. Gagna-
gíslatökuárásir hafa einnig orðið
algengari þar sem gögn fyrirtækja
eru dulkóðuð og krafist lausnar-
gjalds til að endurheimta þau,“
bætir María við.
Einn eldveggur ekki nóg
Að þeirra sögn dugar ekki lengur að
setja upp einn eldvegg og halda að
þar með sé hægt að haka í eitthvert
box við rafrænt öryggi. „Eldveggur-
inn þarf að vera það sem kallað
er næstu kynslóðar eldveggur og
meðvitaður um miklu meira en
bara IP-tölur og gáttir og vera