Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 16
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
Síminn vinnur að uppbyggingu fimmtu kynslóðar farsímakerfa með búnaði frá Ericsson. MYNDIR/SÍMINN
Það er mjög auðvelt að bæta lausnum við fyrirtækja-
pakka líkt og Microsoft Teams eða Webex.
Mannfólkið er oft veikasti hlekkurinn þegar kemur að
hættum í tengslum við rafrænt öryggi.
Allt sem þitt
fyrirtæki þarf
í einum öruggum pakka
Einfaldar lausnir sem henta
fyrirtækjum af öllum stærðum
og tryggja aukið netöryggi
og uppitíma.
Kynntu þér fyrirtækjapakka Símans á siminn.is/fyrirtaeki
Öryggi
Næstu kynslóðar eldveggur
veitir aukið öryggi á netlagi
umfram hefðbundinn eldvegg.
Vöktun 24/7
Búnaður er vaktaður af kerfum
Símans allan sólarhringinn.
Tilkynnt er um allt óeðlilegt.
Uppsetning
Sérfræðingar veita ráðgjöf,
setja upp búnaðinn og
tryggja að allt virki.
Yfirsýn
Þú færð senda skýrslu um
heilsu Fyrirtækjanetsins
og skilaboð um umferð.
Mannfólk veikasti hlekkurinn
Þau eru sammála um að þegar
kemur að hættum í tengslum við
rafrænt öryggi sé mannfólkið
oftast veikasti hlekkurinn. „Auð-
veldasta leiðin fyrir óprúttna
aðila er að plata okkur í gegnum
tölvupósta og skilaboð og fá okkur
til dæmis til að smella á hlekk sem
opnar á óværu sem er hönnuð til
að komast inn fyrir varnir fyrir-
tækja,“ segir Hlynur. Aðrar þekktar
leiðir eru í gegnum veikleika,
óuppfærðan hugbúnað eða hrein-
lega hugbúnað og tæki sem eru vit-
laust uppsett. „Það sem var öruggt
í gær þarf ekki að vera öruggt í dag.
Þetta er endalaus eltingarleikur
sem þarf að sinna af alvöru. Þess
vegna er til dæmis mikilvægt að
hafa yfirsýn yfir allan hugbúnað
sem er í notkun á tölvum starfs-
fólks og uppfæra hann reglulega
því þessir óprúttnu aðilar eru
fljótir að finna veikleika og nýta
sér þá,“ segir María.
Aðeins fyrsta skref
Þau segja Fyrirtækjapakkann vera
aðeins fyrsta skref af mörgum
þegar kemur að netöryggi við-
skiptavina Símans. „Varnir fyrir
búnað notenda utan vinnustaðar
og afritun gagna er til dæmis
eitthvað sem þarf að hafa í huga.
Fyrirtæki á Íslandi munu þurfa að
setja aukna athygli á netöryggi því
í verstu tilfellum getur það orðið
svo að það kemst með illum leik
aftur á lappirnar,“ segir María.
Fréttum af netárásum á fyrirtæki
á Íslandi mun fjölga ef ekkert er að
gert, bætir Hlynur við. „Netárásir
eru ekki einkamál kerfisstjóra og
sérfræðinga í upplýsingatækni
heldur alls starfsfólks. Ein mis-
ráðin ákvörðun eða mistök gerð í
f lýti geta haft keðjuverkandi áhrif
sem gætu haft mjög alvarleg áhrif
á vinnustaðinn,“ bætir Hlynur við.
„Því þarf að bregðast við fyrr en
seinna og koma þessum málum
í betra horf hjá f lestum ef ekki
öllum fyrirtækjum og stofnunum
í landinu, uppfæra og vakta öll
þessi kerfi og halda vörnum uppi
allan sólarhringinn.“ n
Nánar á siminn.is.
undir stöðugri vöktun. Að auki
þurfa fyrirtæki að gera ráð fyrir
að það sé alltaf einhver leið fram
hjá fyrstu vörnum. Vakta þarf alla
netumferð á innra neti fyrirtækja
og geta þannig gripið inn í þegar
óværan er komin inn fyrir fyrstu
varnir en oft líður töluverður tími
frá því að glæpamenn komast inn í
fyrirtækin áður en þeir láta loks til
skarar skríða,“ segir Hlynur.
Lítil og meðalstór fyrirtæki á
Íslandi eru ekki undanskilin þess-
ari hættu frekar en einstaklingar.
„Öll erum við tengd við netið á einn
eða annan hátt og þannig erum
við öll gerð að skotmörkum,“ segir
María.
Hentug lausn
Síminn býður fyrirtækjum upp á
Fyrirtækjapakka með netöryggi og
öll fjarskipti fyrirtækisins í einum
pakka. Í því felst bæði mikið hag-
ræði og öryggi fyrir viðskiptavini
að þeirra sögn. „Hingað til hefur
verið kostnaðarsamt og flókið að
setja upp góðar rafrænar varnir og
halda þeim við. Í raun hefur það
aðeins verið á færi stærri fyrir-
tækja að reka slíkar lausnir með
réttum hætti,“ segir María. „Við
sáum tækifæri í því að bjóða fyrir-
tækjum hagkvæma lausn sem færir
þeim hágæða öryggislausnir frá
Fortinet sem er leiðandi fyrirtæki
í netöryggi í heiminum í dag og
byggja allar sínar lausnir á miðlægri
stýringu með yfirsýn yfir allt sem
er í gangi á innra neti fyrirtækja.“
Sérfræðingar Símans sjá svo
um að reka og uppfæra búnaðinn
ásamt því að vakta hann og upp-
lýsa viðskiptavininn um leið og
ástæða er til segir Hlynur. „Þann-
ig er til dæmis hægt að sjá ef vél
sýkist af óværu, útiloka hana frá
öðrum vélum og bregðast hratt og
örugglega við. Að auki er innifalið
netsamband með ótakmörkuðu
gagnamagni ásamt varaleið sem
tryggir hámarks uppitíma ef eitt-
hvað kemur upp á. Lausnin inni-
felur næstu kynslóðar eldvegg og
fyrsta flokks búnað fyrir þráðlaust
net sem tryggir hámarks upplifun
innan hvers vinnustaðar. Þannig
getum við til dæmis brugðist við
dreifðum álagsárásum og minnkað
þann skaða sem þær annars gætu
unnið á rekstri fyrirtækja.“
Hægt er að bæta við ýmsum
aukaþjónustum enda þarfir fyrir-
tækja misjafnar, að þeirra sögn.
Sem dæmi er hægt að bæta við
endalausri 5G-farsímaáskrift fyrir
3.000 krónur.
Nýju áskriftirnar eru á föstu
mánaðargjaldi sem eru á færi allra
fyrirtækja. Stærri fyrirtæki geta
fengið sérsniðnar lausnir, til dæmis
þegar tengja þarf saman nokkur
útibú og flækjustigið verður meira.
Öll erum við tengd
við netið á einn eða
annan hátt og þannig
erum við öll gerð að
skotmörkum.
María Blöndal
2 kynningarblað 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURR AFR ÆNT ÖRYGGI