Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 17
Þessi skilríki gera
það að verkum að
íslenskt fyrirtæki getur
sent skjal til undirrit-
unar hvert sem er í
Evrópu og fengið full-
gilda rafræna undir-
skrift.
Ragna Klara Magnúsdóttir
Fyrirtækið Dokobit sem
þróar lausnir fyrir rafrænar
undirskriftir og aðrar traust-
þjónustur er í miklum vexti
í Evrópu. Fyrir skömmu
studdi Dokobit rafræn skil-
ríki frá 14 löndum en hefja
nú dreifingu á nýjum rafræn-
um skilríkjum sem standa
öllum til boða í Evrópu.
„Fyrirtækið Dokobit býður
upp á rafrænar undirskriftir og
lausnir fyrir rafræna auðkenningu.
Dokobit var stofnað árið 2008 og
er því komið með góða reynslu í
stafræna geiranum, en í grunn
inn er þetta litáískt fyrirtæki sem
var stofnað af tveimur félögum,“
segir Ragna Klara Magnúsdóttir,
viðskiptastjóri Dokobit á Íslandi.
„Þetta hefur verið í eigu þeirra
þar til nú í ágúst, þegar fyrirtækið
sameinaðist norska fyrirtækinu
Signicat, sem hefur verið í gríðar
legum vexti undanfarin ár. Það
hefur keypt fimm fyrirtæki að
undanförnu, þar af þrjú bara á
síðasta ári.“
Gríðarlegur vöxtur
í rafrænum undirskriftum
„Signicat er komið með skrif
stofur um alla Evrópu og stefnir
á að verða stærst í Evrópu fyrir
rafrænar undirskriftir og auðkenn
ingar. Þau sáu Dokobit sem mjög
sterkan aðila og mikil tækifæri við
að sameina krafta fyrirtækjanna,“
segir Ragna. „Sameiningin hefur
gengið ótrúlega vel, við smullum
bara saman eins og hönd í hanska
og við vorum með ýmsar lausnir
sem þau voru komin styttra með.
Þessi sameining hefur styrkt
okkur mjög mikið og gert okkur
kleift að vaxa ennþá hraðar.
Stefnan er nú að auka starfs
manna fjöldann um 70 manns bara
á þessu ári, en til samanburðar
var Dokobit með 32 starfsmenn í
heild fyrir ári síðan en ef við teljum
Signicat með erum við í dag 440
manns,“ segir Ragna.
Ný rafræn skilríki
„Fyrirtæki í eigu Signicat gefur út
fullgild rafræn skilríki og sérhæfir
sig í að auðkenna einstaklinga með
svokölluðu „video onboarding“
ferli, en það þýðir að fólk getur
fengið ný rafræn skilríki afhent
með því að nota vefmyndavél
og vegabréf eða önnur persónu
skilríki til þess að fá ný fullgild
rafræn skilríki,“ segir Ragna. „Þetta
afhendingarferli er eIDASvottað,
sem þýðir að þessi skilríki eru í
hæsta gæðaflokki þegar kemur að
útgáfu rafrænna skilríkja.
Þessi skilríki gera það að verkum
að íslenskt fyrirtæki getur sent
skjal til undirritunar hvert sem
er í Evrópu og fengið fullgilda
rafræna undirskrift. Þetta þýðir
að við getum núna boðið þjónust
urnar okkar í allri Evrópu án þess
að fórna gæðum með að því nota
lægri stig af rafrænum undir
skriftum.
Við stefnum að því að geta boðið
stærri fjármálafyrirtækjum mjög
öruggar og áreiðanlegar lausnir,
en meðal viðskiptavina Signicat
eru stórfyrirtæki eins og Facebook,
Paypal, American Express, Master
card, Volvo og fleiri. Þetta er allt
annað en við vorum vön fyrir ári
síðan,“ segir Ragna. „Hér heima
höfum við samt einnig verið að
sinna mjög stórum fyrirtækjum.
Íslandsbanki, Vodafone, Sam
göngustofa, fasteignasölur og
stærri bílaumboð eins og BL og
Toyota eru í viðskiptum hjá okkur,
sem og önnur fyrirtæki í fjármála
starfsemi og ríkisstofnanir.
Þessi stærri fyrirtæki eru okkar
aðalkúnnahópur, en við erum líka
að þjónusta fjölmarga einyrkja og
minni fyrirtæki, enda er hugsjónin
sú að rafrænar undirskriftir séu
fyrir alla,“ segir Ragna.
Einfalt að nýta þjónustuna
„Við erum með mjög marga sterka
samstarfsaðila í rafrænum undir
skriftalausnum og viljum nefna
Origo, Arango, Sensa, Hugvit,
Spekta, Ozio, Rögg, ThinkSoft
ware, Wise og mörg fleiri,“ segir
Ragna. „Við erum því í samstarfi
við öll helstu hugbúnaðarhúsin og
þau hafa gert margar innleiðingar
á okkar þjónustum, þannig að fyrir
aðila sem kaupa lausnir frá þessum
aðilum er mjög einfalt að virkja
rafrænar undirskriftir beint úr
kerfunum.
Fyrir fyrirtæki sem eru að nota
Microsoftlausnir er þetta til
dæmis lítið og einfalt stökk, það
þarf bara að hafa samband og óska
eftir að þetta sé tengt,“ segir Ragna.
„Þar sem samtengingin er tilbúin
á Microsoft Marketplace er hægt
að byrja að nota rafrænar undir
skriftir í sömu viku.“
Sterk rafræn auðkenning
„Dokobit er einnig með lausnir
fyrir auðkenningar með rafrænum
skilríkjum eins og við þekkjum
öll úr heimabönkum, island.is og
Heilsuveru. Lausnin styður rafræn
skilríki í farsímum, kortum eða
með Auðkennisappinu sem eru
ný rafræn skilríki frá Auðkenni,“
segi Ragna. „Auðkennisappið
hefur þann kost fram yfir skilríki
á farsíma að notandinn þarf ekki
lengur að vera með íslenskt síma
númer til þess að nota skilríkin.
Þetta kemur sér til dæmis mjög vel
fyrir Íslendinga sem eru búsettir
eða í námi erlendis.
Auðkenningarlausnin er svo
kölluð „plugin“ lausn, þannig að
hvaða fyrirtæki sem er getur bara
tengt þetta inn á sína heimasíðu
og sett upp rafræna auðkenningu
á sína síðu fyrir innskráningar,
netverslun eða hvað sem er,“ segir
Ragna. „Viðskiptavinir geta einnig
aðlagað útlitið á innskráningar
glugganum þannig að það falli
fullkomlega inn í þeirra eigið
viðmót. Á sama tíma og verslun
og þjónusta er í auknum mæli að
færast yfir á netið er enn mikil
vægara að geta tryggt á öruggan
hátt hverjum maður er að veita
upplýsingar eða þjónustu.“
Gerðu nýskráningu
ökutækja rafræna
„Við vorum að klára verkefni með
Arango í samvinnu við Samgöngu
stofu sem fól í sér að gera nýskrán
ingar á ökutækjum 100% rafrænar.
Ef þú ferð að kaupa nýjan bíl núna
hjá BL, Heklu eða Öskju geturðu
fengið bílinn um fimm dögum
fyrr en áður, að meðaltali, eftir að
þetta breyttist. Þannig að nú getur
þú fengið bílinn afhentan nánast
samdægurs,“ segir Ragna.
„Áður var starfsmaður í vinnu
við að keyra með gögn á milli aðila
og safna undirskriftum úr hinni og
þessari átt áður en öllum gögn
unum var skilað til Samgöngustofu
og þar var síðan allt handslegið
inn,“ útskýrir Ragna. „Það er því
gríðarleg hagræðing í því að gera
þessa skráningu rafræna og fólk
sem starfar í bílageiranum hefur
verið rosalega ánægt með þessa
breytingu.“
Lækkuð verð
Dokobit lækkaði þjónustugjöld á
síðasta ári vegna þess að það hefur
verið svo mikil aukning í fjölda
notenda.
„Aukningin hjá okkur var yfir
400% á síðasta ári og viðskipta
vinahópurinn hefur þrefaldast
á einu ári, svo við ákváðum að
lækka verðin okkar,“ segir Ragna.
„Rafrænar undirskriftir eiga ekki
að vera dýr tækni þannig að verð
spili hlutverk í hvort fyrirtæki noti
þær heldur sjálfsögð tækni sem
fyrirtæki geta nýtt til þess að veita
viðskiptavinum bestu þjónustu
sem völ er á. Við reynum stöðugt
að lækka verðin okkar til þess
að styðja við þessa framtíðarsýn
sem við getum gert með aukinni
notkun,“ segir Ragna. „Það hefur
líka verið raunin, viðskiptavinir
hafa verið tryggir og líkað mjög
vel hversu áreiðanlegar lausnirnar
okkar eru og erum við að sjálf
sögðu mjög þakklát góðum og
traustum hópi ánægðra viðskipta
vina.“ n
Ný fullgild rafræn skilríki fyrir alla í Evrópu
Ragna Klara Magnúsdóttir, viðskiptastjóri Dokobit á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 28. janúar 2022 R AFR ÆNT ÖRYGGI