Fréttablaðið - 28.01.2022, Side 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654.
www.blaberg.is
ÞITT ÖRYGGISKERFI
ÁN ÁSKRIFTAR
Blaberg.is er stoltur umboðs- og þjónustuaðili
á Íslandi.
Sendum öryggispakka frítt út á land
20%
AFSLÁTTUR
36.990 -, 29.490-,kr
Fjöldi aukahluta í boði
4G/WiFi Öryggispakki
Helgi Ívarsson starfaði sem
slökkviliðsstjóri í átján ár.
Hann var slökkviliðsstjóri í
Hafnarfirði þar til slökkvi-
liðin voru sameinuð á
höfuðborgarsvæðinu. Hann
er þó ekki hættur að huga
að eldvörnum og fræðslu
tengdri þeim.
elin@frettabladid.is
Helgi starfaði í fimm ár sem
slökkvi liðsmaður á Keflavíkur
flugvelli áður en hann varð
slökkviliðsstjóri og segir að það
hafi verið góður skóli. Herinn var
með strangt eldvarnareftirlit og
lagði talsverðan pening til slökkvi
liðsins. „Þeir létu kanna eldvarnir
á öllum heimilum og fyrirtækjum
einu sinni á ári. Það var alltaf
haldin eldvarnavika á hverju ári,“
segir Helgi sem sjálfur leggur
mikið upp úr því að hafa allar eld
varnir til taks á heimili sínu. „Ég er
með slökkvitæki, eldvarnarteppi
og reykskynjara í öllum her
bergjum. Þetta er sá búnaður sem
er nauðsynlegur á hverju heimili
og ætti að vera skylda,“ segir hann.
Helgi ásamt slökkviliðsmönnum
Slökkviliðs Hafnarfjarðar hélt
nokkur námskeið um eldvarnir í
skólum í Hafnarfirði, Garðabæ og í
Bessastaðahreppi ásamt JChreyf
ingunni í Hafnarfirði. „Börnin
eru góðir hlustendur, þau eru
áhugasöm og færa síðan fræðsluna
með sér heim og gæta að því að
allt sé í góðu lagi. Reyndar hefur
staðan í eldvörnum á heimilum
og í fyrirtækjum batnað mjög
mikið á síðustu árum. Auk þess eru
heimilistæki öruggari en þau voru.
Það er samt alltaf ákveðin hætta
sem fylgir öllum rafmagnstækjum,
hvort sem það er þvottavél, sjón
varp eða hleðslutæki,“ segir hann.
„Öryggið er ofar öllu í eldvarnar
málum,“ bætir hann við.
Helgi er skipstjórnarmennt
aður og var til sjós áður en hann
hóf störf hjá slökkviliði hersins á
Keflavíkurflugvelli.
Hann setti síðan upp eigið
fyrirtæki, Aðgát, sem er eldvarna
þjónusta eftir að hann hætti sem
slökkviliðsstjóri í Hafnarfirði.
Öryggið þarf alltaf að vera í lagi
Helgi Ívarsson
heldur hér á
hurðahaldanum
sem nýtist vel
í eldsvoða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Ég er með slökkvi-
tæki, eldvarnar-
teppi og reykskynjara í
öllum herbergjum.
Þetta er sá búnaður sem
er nauðsynlegur á
hverju heimili og ætti
að vera skylda.
Fyrirtækið annast eldvarnareftirlit
og veitir ráðgjöf og fræðslu. Helgi
er meðal annars eftirlitsmaður
Kringlunnar.
Hann hefur haldið námskeið
um eldvarnir og notkun hand
slökkvitækja fyrir ýmsar stofnanir
og fyrirtæki með mengunarlausri
tölvustýrðri GASkennslugræju
frá BullEx. Þá flytur hann inn
Dorgardbúnað sem er settur á eld
varnahurðir. Dorgard er þráðlaus
eldvarnahurðarhaldari sem heldur
opnum eldvarnahurðum og gerir
þeim kleift að loka sjálfkrafa við
hljóð frá brunaviðvörun.
Helgi minnir á að fólk þarf að
huga að slökkvitækjum á heim
ilum sínum. Þau duga í ákveðinn
tíma en síðan þarf að endurhlaða
þau reglulega. Yfirleitt kemur fram
á tækjunum hvenær þurfi að láta
skoða þau. Tækin eru gagnslaus ef
þau eru úrelt. Á vinnustöðum er
skylda að skoða tækin árlega.
Helgi rifjar upp skemmtilega
sögu frá því þegar hann var nýbyrj
aður hjá slökkviliðinu í Hafnar
firði og bjó skammt frá stöðinni.
„Fjölskyldan sat við kvöldverðar
borðið og það var siginn fiskur í
matinn. Með þessu átti að vera
hamsatólg sem var á eldavélinni
þegar krakkarnir fóru að malda í
móinn yfir matnum og lyktinni af
signu ýsunni. Skyndilega heyrði
ég skviss fyrir aftan mig og þá stóð
loginn upp úr feitinni og var farinn
að teygja sig í nýju eldhúsinnrétt
inguna. Ég tók það sem var hendi
næst, hitaplatta, og skellti yfir til
að kæfa eldinn. Þá heyrðist í eigin
konunni: Ætlarðu að eyðileggja
plattann?“ segir Helgi og skelli
hlær.
„Sagan var komin út á slökkvi
stöð áður en matartíminn var
búinn. Sonur minn hljóp út á
stöð og sagði að það væri kviknað
í heima. Lærdómurinn er sá að
enginn er óhultur, ekki einu sinni
slökkviliðsstjórar.“
Helgi segir að allir þurfi að gæta
sín og hafa öryggið í lagi. „Þetta
er ekki síður mikilvægt á vinnu
stöðum og nauðsynlegt að hafa
eldvarnahurðir. Ef kemur upp
eldur er reykurinn mjög hættu
legur,“ segir Helgi Ívarsson. n
2 kynningarblað 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURÖRYGGISKERFI