Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 22
Vöruvernd er leiðandi á
íslenskum markaði þegar
kemur að uppsetningu á
vöruverndarhliðum og
öryggisbúnaði.
Fyrirtækið Vöruvernd hefur verið
leiðandi á íslenskum markaði
þegar kemur að uppsetningu á
vöruverndarhliðum og öryggis-
búnaði síðan árið 1997. Það er því
óhætt að segja að starfsmenn fyrir-
tækisins búi yfir mestu reynslunni
á því sviði hér á landi, segir Bjarni
Már Bjarnason, framkvæmdastjóri
Vöruverndar. „Vöruverndarhliðin
eru einfaldlega besta og sterkasta
vörnin í dag þegar kemur að því
að minnka rýrnun af völdum
þjófnaða í verslunum. Utan þeirra
bjóðum við einnig upp á ýmsar
aðrar lausnir sem veita aukna
vernd á vörum í verslunum. Þar má
nefna vörur eins og hljóðmerki,
þjófavarnarmerki, leitarskanna og
margar fleiri öryggisvörur.“
Hann segir Vöruvernd ávallt
leggja höfuðáherslu á að bjóða
upp á fjölbreytt úrval lausna á
öllu sem við kemur þjófavörnum,
vöruverndarhliðum og mynda-
vélakerfum fyrir verslanir og
fyrirtæki. „Í þann aldarfjórðung
sem við höfum starfað hefur alltaf
verið lögð stöðug áhersla á að
finna nýjar og spennandi vörur
sem þjóna hagsmunum viðskipta-
vina okkar.“
Þjófavörn og hleðsla
Margar verslanir selja dýrar vörur
sem viðskiptavinir vilja gjarnan
handleika fyrir kaup, til dæmis
síma og spjaldtölvur. Þar kemur
UNO Display lausnin frá SENS
Retail sterk inn, segir Bjarni. „Vöru-
vernd býður slíkum verslunum
upp á UNO Display en með þeim
búnaði er hægt að verja öll raftæki
gegn þjófnaði á sama tíma og þau
eru í hleðslu þannig að þau séu
alltaf tilbúin til skoðunar fyrir
viðskiptavini hverju sinni. Þetta
er frábær lausn fyrir verslanir sem
selja raftæki eins og síma, tölvur,
spjaldtölvur og fleiri dýrar vörur.“
Vöruvernd er auk þess umboðs-
aðili fyrir CENTURY sem er stærsti
framleiðandi og söluaðili á EAS
öryggisvörum í heiminum og
fyrir MW Security, Safescan, SENS
Retail og Cofem brunavörur.
Hægt er að panta ráðgjöf og fá
tilboð í vöruverndarhlið og annan
búnað. Söluráðgjafi frá Vöruvernd
kemur á staðinn og skoðar hvaða
lausnir henta þinni verslun. n
Vöruvernd er staðsett í Rjúpna-
sölum 1, 201 Kópavogi.
Hægt er að hafa samband í
síma 519-8080 eða í tölvupósti:
ismenn@ismenn.is.
Nánari upplýsingar á ismenn.is.
Fremstir í vöruvernd
Vöruverndarhlið frá CENTURY hafa reynst mjög vel hérlendis. MYND/ÍSMENN
UNO Display lausnir frá SENS Retail.
Eiríkur Ronald Jósepsson,
sérfræðingur í öryggis-
kerfum hjá Securitas, hóf
ferilinn sem lögreglumaður
árið 1986. „Eftir það starfaði
ég sem slökkviliðsmaður og
á neyðarlínu. Núna er ég hjá
Securitas og hef verið þar
síðan 2007,“ segir Eiríkur.
jme@frettabladid.is
Eiríkur segist hafa slysast inn í
bransann upphaflega, en hefur
haldið sig innan hans þar sem
störfin eru fjölbreytt. „Nú er ég
nýorðinn 57 ára og hjá Securitas er
starf mitt fjölbreytt og lifandi og
það er aldrei leiðinlegt í vinnunni.
Ég er mikið í úttektum og fræðslu
og sinni nokkrum störfum innan
fyrirtækisins. Meðal annars sinni
ég þjónustu við viðskiptavini,
ýmist sem öryggisstjóri eða eld-
varnarfulltrúi. Einnig geri ég heild-
stæðar öryggisúttektir á fyrirtækj-
um og stofnunum. Ég sé um alls
kyns fræðslumál um ýmislegt sem
Securitas býður upp á. Við erum þá
með fyrirlestra, verkleg námskeið
og rafræn námskeið. Þá erum við
að fræða um skyndihjálp, viðbrögð
við ógnandi hegðun, meðferð og
notkun handslökkvibúnaðar,
fræðslu og þjálfun rýmingarsveita
og höldum rýmingaræfingar. Þetta
er í raun allt frá fræðslu og þjálfun
upp í uppsetningu öryggiskerfa og
þetta er allt sérsniðið fyrir hvern
viðskiptavin.“
Framboðið eykst
Gríðarlegar breytingar hafa orðið
í öryggiskerfum síðustu ár og
segist Eiríkur hafa fundið fyrir því
á sínum starfsferli. „Framboðið
er orðið það mikið að í dag þarf
að sérsníða lausnir fyrir hvern og
einn viðskiptavin fyrir sig, hvort
sem um er að ræða fyrirtæki,
stofnun eða heimili.
Snjallkerfi í dag eru til dæmis
orðin mjög góð. Í heimavörninni
getur þú stýrt kerfinu í gegnum
snjallforrit í símanum. Þú færð
rauntímatilkynningu um allt
sem gerist í kerfinu; brunaboð,
vatnsboð eða annað. Þá er auð-
velt að stýra aðgengi inn í kerfið
og þú getur tekið út og bætt við
notendum. Sum eru enn fremur
með möguleika á ljósa- og hita-
stýringu, myndavélastýringu og
f leira. Það er ekkert mál að týna
sér í öllum möguleikunum og
því er mikilvægt að setjast niður
með einstaklingi og ræða hverjar
væntingar hans og þarfir eru til
öryggiskerfisins svo hann fái
búnað sem hentar.
Til að ákvarða hvaða búnaður er
réttur þarf að láta sérfræðinga yfir-
fara gerð húsnæðis og starfsemi.
Áhætta hvers húsnæðis fyrir sig er
ólík hvað varðar brunahættu, inn-
brotahættu, möguleg vatnstjón,
viðkvæman búnað sem þarf að
vakta eins og kæla eða annað. Hver
staður er einstakur á sinn hátt og
hlutir eins og það hvort um sé að
ræða einbýli á jarðhæð eða margra
hæða byggingu skipta miklu máli.
Það skiptir því lykilmáli að velja
réttan búnað og staðsetja hann
rétt svo að hann veiti sem mesta
vörn. Það er svo auðvitað jafn
mikilvægt að velja búnað sem auð-
velt er að vinna við og læra á svo
hann komi að notum.“
Öryggi fyrirtækja
Það þarf að huga að ýmsu við mat
á öryggi fyrirtækja. „Fyrirtæki geta
verið flóknari í úttekt en heima-
hús og þurfa að uppfylla strangari
regur um brunavarnir og annað.
Ólík öryggiskerfi henta mismun-
andi starfsemi. En það sem skiptir
alltaf langmestu máli er öryggi
starfsfólks. Þá erum við að horfa á
brunavarnir og þekking starfsfólks
á því hvernig eigi að bregðast við
þegar eitthvað gerist, til dæmis er
einhver sýnir ógnandi hegðun.“
Heimilin og öryggi þeirra
Það sama gildir um heimili. „Því
þarf að ræða við og fræða fjöl-
skyldumeðlimi um rétt viðbrögð
ef öryggiskerfi eða brunaboði fer
í gang. Við viljum til dæmis ekki
að börnin okkar komi heim eftir
innbrot eða bruna. Þetta er sami
hluturinn en á öðrum skala.“
Einnig er lykilatriði fyrir heim-
ilin, að hafa í huga ákveðna þætti
til að minnka líkur á innbrotum
til dæmis:
n Eru verðmæti sýnileg, til dæmis
í gegnum glugga?
n Eru hlutir úti við lóð eða við
bílskúr sem auðvelda fólki að
komast inn eða nota við inn-
brot?
n Það er gott að ræða við og
þekkja nágrannana, passa upp á
hvert annað og tilkynna um ein-
kennilegar mannaferðir.
n Passa upp á að vera ekki að
auglýsa á samfélagsmiðlum til
dæmis að maður sé á flugvell-
inum á leið til Tenerife.
Menn vakta eitt og annað og við
höfum séð ýmsar aðferðir. Ef þú
býrð í einbýli með gróðursælum
garði, er lykilatriði að vera með
lýsingu þegar dimmir, annað hvort
sem kviknar á við mannaferðir
eða er í gangi á næturnar. Í einbýli
er ekki nóg að vera með öflugan og
fínan búnað á útidyrahurðinni, ef
svaladyrnar út á pall eru svo bara
með plastlæsingu. Einnig þarf að
skoða læsingar á gluggum.
Aldrei 100% örugg
„Það er auðvitað aldrei hægt að
vera 100% öruggur þó þú sért með
öryggiskerfi, en sem slík hafa þau
fælingarmátt. Reynsla okkar er þó
sú að ef öryggiskerfið virkar ekki
sem skyldi þá er ekki ólíklegt að
innbrotsþjófur, sem prófar kerfið
og kemst að því að það virkar ekki,
nýti sér það. Þetta er ekki bara inn-
brotakerfi, þetta er öryggiskerfi á
svo margan hátt.“ n
Örugglega rétta kerfið
Eiríkur hefur
verið viðloðandi
öryggisbrans-
ann síðan 1986,
þegar hann hóf
störf sem lög-
regluþjónn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
4 kynningarblað 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURÖRYGGISKERFI