Fréttablaðið - 28.01.2022, Page 23
Þjónustufyrirtækið Þekking
veit mikilvægi þess að gæta
öryggis á öllum sviðum
upplýsingatækni. Þekking
býður upp á sérsniðnar
lausnir í rafrænum öryggis-
málum fyrir fyrirtæki og
stofnanir af öllum stærðum
og gerðum.
Þekking er þjónustufyrirtæki á
sviði upplýsingatækni. Fyrirtækið
var stofnað árið 1999 og er með
starfsstöðvar á tveimur stöðum á
landinu. Annars vegar á Akureyri
og hins vegar í Kópavogi. Sérsvið
Þekkingar er rekstrarþjónusta og
ráðgjöf á sviði upplýsingatækni.
Áslaug Dagbjört Benónýsdóttir
starfar sem upplýsingaöryggis-
stjóri hjá fyrirtækinu. „Ég veiti
einnig viðskiptavinum ráðgjöf um
málefni sem tengjast upplýsinga-
öryggi og persónuvernd. Þjónusta
okkar fer að mestu leyti fram á
netinu. Í sumum tilfellum þarf
að mæta á staðinn, en það fer allt
eftir þörf hvers fyrirtækis fyrir sig,“
segir Áslaug.
Af skrifborðinu yfir í tölvuna
Starfsumhverfi fyrirtækja hefur
í dag að stórum hluta færst af
skrif borðinu og yfir í tölvuna.
Það verður því æ mikilvægara
fyrir fyrirtæki og stofnanir að
fjárfesta í rafrænu öryggi. „Það
muna margir eftir því hvernig
skrifstofur voru hér fyrir tæp-
lega 20 árum, þegar það sást ekki
í sum skrif borð fyrir pappírum.
Þá fólst öryggið í raun í því að
læsa skrifstofunni og öryggiskerfi
urðu æ algengari. Í dag fer vinnan
að mestu leyti fram í tölvunni
og minna er um útprentuð gögn,
meðal annars þegar kemur að
afhendingu gagna á milli not-
enda. Nú skiptir því öllu máli að
huga að örygginu í tölvunni.“
Öryggi í fjarvinnu
Í faraldrinum hefur vinnu-
umhverfi margra fyrirtækja enn
fremur breyst hratt og mikið.
„Mörg störf sem áður voru unnin
á skrifstofunni hafa færst inn á
heimili fólks. Þessi breyting felur í
sér aukið mikilvægi í því að skoða
mögulegar áhættur sem tengjast
því. Í því samhengi má meðal ann-
ars nefna nettengingar, aðgengi
að tölvu og öryggisvitund starfs-
fólks. Vinnuumhverfi starfsfólks í
fjarvinnu er ekki það sama og er á
skrifstofunni. Því þarf að tryggja
að öryggi upplýsinga sé ekki
minna þegar unnið er í fjarvinnu
en þegar unnið er á skrifstofunni.
Með aukinni fjarvinnu má gera ráð
fyrir því að netglæpamenn endur-
skoði einnig sínar starfsvenjur og
umhverfi, og fari í auknum mæli
að herja á starfsfólk og þau tæki
sem það notar við fjarvinnu. Það
er því mikilvægt að bregðast við
síbreytilegum netöryggisógnum
með forvörnum og tryggja öryggi
í tíma.“
Kortlagning
Viðskiptavinir Þekkingar eru
fyrirtæki og stofnanir af ýmsum
stærðum og gerðum. Að sögn
Áslaugar er alltaf góð byrjun að
taka stöðuna á öryggismálunum
í fyrirtækinu. „Þá er hægt að meta
betur hvar þarf að gera bragarbót
á. Einnig er gagnlegt að fyrirtæki
bæti við fræðslu um upplýsinga-
öryggi sem einum lið í fræðslu-
áætlun sína. Það að veita reglulega
fræðslu um þær netógnir sem eru
í gangi hverju sinni getur komið
í veg fyrir gríðarlegt tjón ef til
netárásar kemur.
Þegar kemur að því að huga að
rafrænu öryggi í fyrirtæki eða
stofnun skiptir máli að kortleggja
fyrst stöðuna með tilliti til mikil-
vægis og viðkvæmni þeirra upplýs-
inga sem fyrirtækið eða stofnunin
er að meðhöndla. Í því tilfelli að
netárás skyldi eiga sér stað, þá þarf
að spyrja sig gagnrýnna spurninga
eins og: „Hvers getur starfsemin
Mikilvægt að þekkja hætturnar
Áslaug Dag-
björt segir það
mikilvægt að
bregðast við
síbreytilegum
netöryggis-
ógnum með
forvörnum og
tryggja öryggi í
tíma.
MYND/HÁKON
DAVÍÐ BJÖRNSSON
verið án og hvers ekki?“ Þannig
er best að forgangsraða og verja
gögnin og kerfin miðað við það.“
Þekking býður upp á ýmsar
lausnir er snúa að öryggismálum.
„Það fyrsta sem við gerum er að
þarfagreina umhverfi fyrirtækja
og stofnana. Með því fáum við
betri sýn á hvaða lausnir henta
hverjum viðskiptavini fyrir sig.
Öryggislausnir Þekkingar greina
og bregðast við netógnum fyrir-
tækja og stofnana allan sólarhring-
inn allt árið um kring á öruggan
og hagkvæman hátt. Sem dæmi
má nefna að við bjóðum upp á
lausnir sem veita öryggi í skýja-
lausnum og á útstöðvum sem og
eftirlit á netumhverfi fyrirtækja
þar sem við setjum upp svokallaða
skynjara. Lausnirnar fela í sér sjálf-
virka greiningu á öryggisatvikum
á öllu neti fyrirtækis. Auk þess eru
viðeigandi aðgerðir framkvæmdar
í rauntíma bæði sjálfvirkt og af
öryggissérfræðingum á okkar
vegum. Sjálfvirkni öryggislausn-
anna gerir okkur kleift að verja öll
mikilvæg tæki og gögn í umhverfi
fyrirtækja.“
Forvarnir felast í fræðslu
Þegar kemur að rafrænu umhverfi
fyrirtækja og stofnana, þá er ýmis-
legt hægt að gera til þess að koma
í veg fyrir rafrænar ógnir. „Það má
fyrirbyggja með ýmsum hætti og
vera eins vel varinn og hægt er.
Það skiptir þá mestu máli að meta
stöðugt umhverfið sitt með tilliti
til þeirra ógna sem eru í gangi
hverju sinni og fræða notendur.
Það skiptir því lykilmáli að byrja
á réttum stað, setja reglur, fræða
starfsfólkið um meðhöndlun
gagna og innleiða réttu varnirnar.“
Þekking býður fyrirtækjum og
stofnunum upp á námskeið í net-
öryggisvitund. „Öryggisvitundar-
þjálfun verður sífellt mikilvægari
eftir því sem netógnir aukast og
ætti slík þjálfun í raun að vera hluti
af menningu flestra fyrirtækja
sem vinna með tölvur. Þekking
er í samstarfi við netöryggisfyrir-
tækið AwareGo varðandi þjálfun
í netöryggisvitund. Um er að ræða
stutt og skemmtileg myndbönd
sem notendur fá send til sín í pósti
vikulega eða mánaðarlega, allt
eftir þörfum fyrirtækisins. Við
aðstoðum fyrirtæki við að stilla
upp áætlun er varðar netöryggis-
fræðslu starfsfólks. Þá taka fyrir-
tæki til dæmis ákvörðun um að
byrja með fræðslu í þrjá til fjóra
mánuði og taka svo stöðuna og
meta þörfina, og ákveða þá hverjar
áherslurnar ættu að vera í næstu
þjálfun.“ n
Nánari upplýsingar má nálgast á
thekking.is. Sími: 460-3100.
Öryggisvitundar-
þjálfun verður
sífellt mikilvægari eftir
því sem netógnir aukast
og ætti slík þjálfun í raun
að vera hluti af menn-
ingu flestra fyrirtækja
sem vinna með tölvur.
Áslaug Dagbjört
kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 28. janúar 2022 R AFR ÆNT ÖRYGGI