Fréttablaðið - 28.01.2022, Qupperneq 26
Signet vörufjölskyldan
auðveldar rafræna ferla hjá
fyrirtækjum, svo sem undir-
ritanir, gagnaflutning og
þinglýsingar.
Signet vörufjölskyldan saman
stendur af vörunum Signet undir
ritanir, Signet transfer, Signet
forms, Signet mandate, Signet inn
siglanir og Signet tímastimplanir.
„Flestir þekkja Signet líklega
sem undirritunarlausn en nú
þegar hafa margir aðilar úr öllum
geirum samfélagsins innleitt hjá
sér rafrænar undirritanir með
Signet. Þær eru þekktar fyrir að
vera aðgengileg lausn sem hentar
bæði stórum og smáum fyrir
tækjum, og allar undirritanir sem
framkvæmdar eru í Signet eru
fullgildar, rafrænar undirritanir og
jafngildar undirritun með penna,“
segir Helga María Jónsdóttir, vöru
stjóri hugbúnaðarlausnarinnar
Signet hjá Advania.
„Auðvelt er fyrir einstaklinga að
kaupa sér undirritanir á vefnum.
Signet undirritanir gagnast líka
mjög vel í dreifbýli og á lands
byggðinni, þær henta vel til undir
ritunar á sölu og leigusamning
um, og fyrir umboð og yfirlýsingar.
Inneignin tekur sjálfkrafa gildi og
hægt er að senda skjöl í undirritun
um leið,“ segir Helga María og
heldur áfram:
„Oftar en ekki byrja fyrirtæki
með rafrænar undirritanir í einum
tilgangi en færast svo yfir í að nota
þær fyrir fleira og að lokum verða
undirritanir á pappír nánast úr
sögunni. Í Signet er hægt að fá
mikið út úr áskriftinni þar sem
ekki er greitt fyrir fjölda notenda
eða teyma og því geta allir hjá
fyrirtækinu haft möguleika á því
að senda skjöl í undirritun, en það
er fjöldi undirritana sem telur.“
Rafrænar þinglýsingar
Mikil þróun hefur verið í Signet
undirritunum og stöðugt verið að
bæta lausnina bæði með tilliti til
virkni sem og notendaviðmóts.
„Signet styður nú undirritanir
fyrir rafrænar þinglýsingar þar sem
innsiglaðri þinglýsingarbeiðni er
komið fyrir sem viðhengi í skjalinu
sem á að þinglýsa, og nú þegar eru
aðilar byrjaðir að undirrita skjöl í
Signet sem síðan eru send í rafræna
þinglýsingu,“ nefnir Helga María
sem dæmi um nýlega virkni.
Signet transfer er önnur Signet
vara sem margir þekkja og hefur
náð töluverðri útbreiðslu á Íslandi.
„Signet transferlausnin er
öruggur, rafrænn gagnaflutningur
og hugsuð sem eins konar rafrænn
ábyrgðarpóstur, því í dag er tölvu
póstur ekki nægilega öruggur til að
senda viðkvæm gögn. Það var að
áeggjan viðskiptavina sem öryggis
sérfræðingar Advania þróuðu
Signetlausnina. Signet sparar
því sporin og lausnirnar standast
ströngustu öryggiskröfur.“
Dulkóðuð trúnaðargögn
Signet transfer byggir á notkun
rafrænna skilríkja þannig að
tryggt sé að gögnin berist réttum
móttakanda.
„Gögnin eru tryggilega dulkóð
uð og gengið þannig frá að aðeins
móttakendur, sem sendandi
skráir með kennitölu, geta sótt
gögnin með rafrænum skilríkjum.
Þegar viðtakandi hefur móttekið
gögnin er þeim eytt sjálfkrafa úr
kerfinu,“ skýrir Helga María.
„Signet transfer er mikilvægur
liður í meðhöndlun trúnaðargagna
og hefur verið notað til að senda
og taka á móti trúnaðargögnum
frá fyrirtækjum með allt frá einum
starfsmanni til stórfyrirtækja eða
stofnana. Lausnin hefur einnig
verið notuð innan fyrirtækja og
stofnana þar sem samstarfsfólk
þarf að skiptast á trúnaðarupplýs
ingum eða flytja gögn milli ólíkra
eininga innan fyrirtækja.“
Rekjanlegar sendingar
Allar sendingar með Signet
transfer eru rekjanlegar.
„Sendendur gagna geta sótt
kvittun fyrir sendingu þar sem
skráarheiti koma fram, ásamt því
hvaða móttakendur voru skráðir
og tímasetning. Þá er hægt að sýna
fram á hvenær og til hvaða ein
staklings eða einstaklinga gögnin
voru send. Á sama hátt er hægt að
sækja kvittun fyrir móttöku gagna
og staðfesta að gögn sem send voru
hafi verið móttekin, og hvenær,“
upplýsir Helga María.
Notkun Signet transfer er þegar
nokkuð útbreidd og þar hafa
myndast nokkurs konar samfélög
sem einfaldi samskipti á milli aðila.
„Það felst mikið hagræði í að
nota lausnina og sleppa við að
prenta út gögn eða setja á USB
kubb sem síðan þarf að flytja með
ábyrgðarpósti. Sem dæmi er Signet
transfer nú þegar öflug lausn í
heilbrigðisgeiranum og félags
þjónustunni, og mikið notuð af
fjármálastofnunum, lögreglunni,
dómstólum, lögfræðingum og
fleiri aðilum sem eru að sýsla með
trúnaðargögn,“ segir Helga María.
Tenging við innri kerfi fyrirtækja
Vefþjónustur Signet transfer gera
fyrirtækjum kleift að samþætta
lausnina við sín innri kerfi. Þá
er hægt að láta móttekin gögn
streyma beint inn í viðeigandi
kerfi eða senda gögn með einum
smelli úr innri kerfum fyrirtækja.
Hafa helstu framleiðendur skjala
stjórnunarhugbúnaðar útbúið
slíkar tengingar fyrir sínar lausnir.
„Rafrænn gagnaflutningur
skapar hagræðingu á svo mörgum
sviðum. Fyrirtækin þurfa ekki
lengur að prenta út skjöl, skanna
eða geyma, og ekki þarf að sendast
með pappíra, sem líka dregur úr
loftmengun og fleira. Allt sparar
þetta sporin og einfaldar lífið.“ n
Nánari upplýsingar á advania.is
Signet sparar sporin
Helga María
Jónsdóttir er
vörustjóri Sig-
net hugúnaðar-
lausnarinnar hjá
Advania.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Öruggur f lutningur gagna
Signet transfer er lausn til að senda og mó
aka trúnaðargögn með rekjanlegum hæ
i.
Örugg sending UmhverfisvæntÖrugg mó
akaRekjanleiki
8 kynningarblað 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURR AFR ÆNT ÖRYGGI