Fréttablaðið - 28.01.2022, Side 31
Ég valdi
rúmlega
fjörutíu
verk á
sýninguna
með tilliti
til sam-
hengis
þeirra og
stillti þeim
upp út frá
þema.
Sviðsett augnablik er sýning
í Listasafni Íslands á ljós-
myndum úr safneigninni.
Sýningarstjóri er Vigdís Rún
Jónsdóttir.
„Mörg þessara verka hafa verið sýnd
í öðru samhengi og á öðrum sýning-
um og önnur hafa ekki verið sýnd
áður en hér mætast þau í einni sýn-
ingu,“ segir Vigdís. „Ég tók eftir því
að fyrir aldamótin 2000 voru nán-
ast engar ljósmyndir í safneigninni
eftir kvenkyns ljósmyndara eða
kvenkyns listamann, en það hefur
markvisst verið unnið að því að
fjölga þeim verkum. Í safneigninni
eru tæplega tvö hundruð verk sem
flokkast sem ljósmyndir og ég valdi
rúmlega fjörutíu verk á sýninguna
með tilliti til samhengis þeirra og
stillti þeim upp út frá þema, þannig
að það er hægt að ganga í gegnum
sýninguna og upplifa hana þema-
tengt.“
Sviðsett augnablik
í Listasafni Íslands
Vigdís Rún Jónsdóttir er sýningarstjóri sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINKCul-de-sac frá 1980 eftir Ólaf Lárusson. MYND/AÐSEND
Listamennirnir
Anna Hallin, Olga Berg-
mann, Árni Ingólfsson, Bára
Kristín Kristinsdóttir, Bjargey
Ólafsdóttir, Bjarki Bragason,
Bjarni H. Þórarinsson, Daníel
Magnússon, Erla Þórarins-
dóttir, Erling Klingenberg,
Gjörningaklúbburinn, Halldór
Ásgeirsson, Hallgerður
Hallgrímsdóttir, Hildur Há-
konardóttir, Hlynur Hallsson,
Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn
Friðfinnsson, Inga Svala Þórs-
dóttir, Wu Shanzhuan, Ívar
Brynjólfsson, Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir, Katrín Bára Elvars-
dóttir, Katrín Sigurðardóttir,
Magnús Sigurðarson, Ólafur
Elíasson, Ólafur Lárusson,
Ólöf Nordal, Pétur Thomsen,
Roni Horn, Sara Björnsdóttir,
Sigurður Guðmundsson,
Sigurjón Jóhannsson, Sólveig
Aðalsteinsdóttir, Spessi,
Stefán Jónsson, Steingrímur
Eyfjörð, Svala Sigurleifsdóttir,
Tumi Magnússon, Valgerður
Guðlaugsdóttir, Þorvaldur
Þorsteinsson.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Sýningin í Listasafni Íslands er
sett upp í tengslum við Ljósmynda-
hátíð Reykjavíkur. „Þegar maður
skoðar sýningarsögu safna og gall-
ería þá hefur ljósmyndin fengið
meiri athygli undanfarin ár og sett-
ar hafa verið upp ansi margar ljós-
myndasýningar. Upp úr aldamót-
unum 2000, þegar listamenn fóru
að mennta sig meira í ljósmyndun,
er eins og orðið hafi vakning og þá
fóru söfnin um leið að kaupa inn
ljósmyndaverk,“ segir Vigdís.
Sýningin í Listasafni Íslands
stendur fram í maí. n
Þróun í tækninni
Sýningin er í tveimur sölum og
spannar hálf öld. Vigdís segir þró-
unina í ljósmyndun á þessum ára-
tugum aðallega felast í tækninni.
„Gott dæmi er Hrafnkell Sigurðsson
myndlistarmaður sem hefur alltaf
notað ljósmyndamiðilinn og þegar
horft er á elstu verk hans og þau
yngri þá sést vel hvernig þau hafa
þróast með tækninni. Það er mjög
áhugavert að skoða það.“
Myndefnið er fjölbreytt. „Þarna
eru skrásetningar á gjörningum,
einnig er mikið af landslagstengd-
um myndum og síðan ljósmyndir
þar sem unnið er út frá heimspeki-
legum hugmyndum,“ segir Vigdís.
Meiri athygli
Fjórar innsetningar eru á sýn-
ingunni. „Það er áhugavert að sjá
hvernig ljósmyndin hefur komið
inn í innsetningar í æ ríkara mæli.
Steing r ímur Ey f jörð, Halldór
Ásgeirsson og Bjarki Bragason eru
með mjög f lottar innsetningar og
Hallgerður Hallgrímsdóttir fær
heilt rými út af fyrir sig. Annars eru
verkin að megninu til ljósmyndir
og þarna eru verk eftir myndlistar-
menn sem nota ljósmyndamiðilinn
í bland við aðra miðla.“
Þarna eru skrásetn-
ingar á gjörningum,
einnig er mikið af
landslagstengdum
myndum og síðan
ljósmyndir þar sem
unnið er út frá heim-
spekilegum hugmynd-
um.
tsh@frettabladid.is
Þýsk útgáfa bókarinnar Sagna-
landið eftir Halldór Guðmundsson
rithöfund og Dag Gunnarsson ljós-
myndara hlaut nýlega hin þýsku
ITB-verðlaun 2022 í f lokki bók-
menntalegra ferðabóka. Halldór
greindi frá fréttunum á Facebook
og sagði: „Verðlaunin eru veitt af
óháðri dómnefnd á vegum stærstu
ferðakaupstefnu heims, ITB í Berlín.
Gaman fyrir okkur Dag!“
Sagnalandið kom upprunalega út
í Þýskalandi vorið 2021 og á Íslandi
síðasta sumar. Í bókinni fjallar
Halldór um sagnahefð Íslendinga í
hringferð um landið með viðkomu
á þrjátíu stöðum sem tengjast höf-
undum og bókmenntaverkum,
þjóðsögum og atburðum úr Íslands-
sögunni. Bókin er skreytt myndum
eftir ljósmyndarann Dag Gunnars-
son. n
Halldór og Dagur verðlaunaðir
í Þýskalandi fyrir bók um Ísland
Halldór Guðmundsson rithöfundur. MYND/DAGUR GUNNARSSON
kolbrunb@frettabladid.is
Þrjár bækur hafa verið tilnefndar
til Barna- og unglingabókmennta-
verðlauna Vestnorræna ráðsins.
Þetta eru bækurnar Afi og ég og afi,
eftir þær Dánial Hoydal og Anniku
Øyrabø sem er framlag Færeyja,
Dýrin halda þing um mengun jarð-
arinnar, eftir Kent Kielsen frá Græn-
landi, og Bannað að eyðileggja, eftir
Gunnar Helgason, sem er tilnefnd af
hálfu Íslands.
Barna- og unglingabókmennta-
verðlaun Vestnorræna ráðsins hafa
það að markmiði að efla barna- og
unglingabókmenntir á vestnorræna
svæðinu. Verðlaunaféð er 60.000
danskar krónur eða um 1.200.000
íslenskar krónur og opna verð-
launin tækifæri fyrir höfunda til
að koma verkum sínum á framfæri
í f leiri löndum. Verðlaunin verða
afhent í haust. n
Gunnar Helgason
tilnefndur til verðlauna
Gunnar Helgason. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÖSTUDAGUR 28. janúar 2022 Menning 15FRÉTTABLAÐIÐ