Fréttablaðið - 28.01.2022, Qupperneq 36
Fjórða sería gamandramans
Venjulegt fólk er öll komin í
Sjónvarp Símans . Vinkonurn-
ar Vala Kristín og Júlíana Sara
eru sem fyrr í forgrunni og
leiða Fréttablaðið að tjalda-
baki við gerð þáttanna sem
Júlíana segir hafa reynst alger
lottóvinningur fyrir þær.
toti@frettabladid.is
Fjórða þáttaröð Venjulegs fólks er
komin í Sjónvarp Símans og þar
segir af áframhaldandi hremm-
ingum og hversdagslegum ævin-
týrum vinkvennanna Völu og Júlí-
önu sem bera nöfn leikkvennanna
sem skópu þær.
„Það er bíó, bókstaf lega, að
fylgjast með vinkonunum en þær
eru alltaf að reyna að finna sig og
aðlagast nýjum aðstæðum,“ segir
Júlíana. „Þegar við byrjuðum að
skrifa fyrstu þáttaröð af Venjulegu
fólki óraði okkur ekki fyrir því að
við myndum fara í fimm seríur,“
heldur hún áfram en þær eru þegar
byrjaðar að skrifa fimmtu seríuna
með sínu fólki.
„Þetta er algjör draumur og ég tala
nú ekki um að vinna með svona frá-
bæru fólki en þetta hafa alltaf verið
við Vala Kristín, Fannar Sveins og
Dóri DNA í handritaskrifunum en
við fengum annan frábæran hand-
ritshöfund með okkur í lið í fjórðu
seríu, hana Karen Björgu.
Lottóvinningur
Völu og Júlíönu
Vala, Júlíana,
Fannar leik
stjóri, Ásgrímur
og Pétur Jóhann
leggja línurnar
fyrir næstu
senu.
Vala og Júlíana á leið á Edduna þar sem eitthvað mun
sennilega ganga á. MYNDIR/ÓLAFUR HANNESSON
Þorsteinn
Bachmann og
Berglind Alda
sem leikstjóri og
leikkona bíða úr
slita á Eddunni.
Vala, leikstjórinn Fannar Sveinsson, Magnea, Harpa Finns og Siggi fylgjast með tökunum.
Oddur Júlíusson kemur nýr inn sem
Þyr, ævintýralegur nýr nágranni
Júlíönu og Tomma.
Pétur Jóhann bættist í hópinn í
þriðju seríu sem Eiríkur, bróðir
Tomma, og fer hvergi.
Vala og Júlíana
Gríndramaþættirnir Venju
legt fólk fjalla um Völu og
Júlíönu sem hafa verið vin
konur síðan í menntó. Í fjórðu
þáttaröðinni er eilífðarungl
ingurinn Vala skyndilega
komin með ungbarn upp á
arminn og hring um fingur
á meðan Júlíana þarf að að
lagast nýjum veruleika með
Tomma eftir gjaldþrot.
Venjulegt fólk fæst sem
fyrr við ósköp venjulega
hluti í daglegu lífi þannig að
áhorfendum ætti að reynast
auðvelt að finna samhljóm
með persónunum í hinum
ýmsu hremmingum þeirra.
Vinsældir þáttanna hafa
verið slíkar í Sjónvarpi Símans
að þegar er byrjað að skrifa
fimmtu seríu auk þess sem
áform eru uppi um að gera
sérstaka jólaþætti af Venju
legu fólki eins og tíðkast víða
erlendis.
Kunnugleg og ný and
lit koma við sögu í nýju
seríunni en sem fyrr eru Vala
Kristín Eiríksdóttir, Júlíana
Sara Gunnarsdóttir, Hilmar
Guðjónsson og Arnmundur
Ernst Backman í aðalhlut
verkunum.
Venjulegt líf er lotterí
Það er náttúrlega algjör lottóvinn-
ingur að skrifa efni sem hefur fengið
svona mikinn meðbyr en ég held að
ástæðan sé meðal annars sú að það
er alltaf þakklátt að fá aðeins meira
grín í skammdegið og lægðirnar á
þessu landi.“
Júlíana bætir síðan við að ekki
spilli fyrir að fólk eigi að geta tengt
við sögupersónurnar þar sem serí-
urnar fjalli um venjulegt fólk og
uppákomur sem það lendir í. „Og
áhorfendur vilja greinilega sjá meira
af ævintýrum þess,“ segir Júlíana
spennt fyrir framhaldinu. n
ingunnlara@frettabladid.is
Þeir Danir með Íslandstengingar
sem Fréttablaðið ræddi við segja
íslenska vini sína ekki hafa áreitt sig
sérstaklega eftir tapleik Dana gegn
Frökkum. Þau skilji þó ástríðuna í
handboltaunnendum.
Fjölmiðlafulltrúi danska hand-
boltasambandsins greindi frá því
í gær að leikmenn danska lands-
liðsins hefðu fengið mörg ógeðfelld
skilaboð frá Íslandi eftir leikinn gegn
Frökkum á miðvikudag og ljóst varð
að Ísland myndi ekki komast í und-
anúrslit Evrópumótsins.
Reiði Íslendinga vegna taps Dana
gegn Frökkum hefur vakið athygli
dönsku pressunnar og telja sumir
handboltasérfræðingar að íslenskir
netverjar hafi gengið skrefinu of
langt í viðbrögðum sínum.
Muhammed Emin Kizilkaya
er frá bænum Slagelse á Sjálandi í
Danmörku og flutti til Íslands fyrir
nokkrum árum og starfar í Lauga-
lækjarskóla. Hann viðurkennir
aðspurður að hann hafi ekki horft
á leikinn. Hann var að mála vegg
heima hjá sér. „Ég er ekki mikill
handboltamaður,“ segir Muhammed
og hlær. Hann tekur fram að leikur-
inn hafi þó ekki farið algjörlega fram
hjá sér.
„Vinir mínir og samstarfsmenn
voru að grínast í mér með leikinn.“
Hann segist ekki taka ástríðufull við-
brögð Íslendinga inn á sig. Enginn
hafi áreitt hann fyrir að vera Dani.
„Íslendingar eru nú bara að grínast
en Danir eru reiðir eftir leikinn.“
Katrine Gregersen Vedel er nýflutt
til Kaupmannahafnar eftir að hafa
búið í nokkur ár á Íslandi. Líkt og
Muhammed fylgdist Katrine ekki
með leiknum.
„Ég vissi ekki einu sinni af leikn-
um,“ viðurkennir Katrine. „Það
var ekki fyrr en ég sá færslur frá
íslensku vinum mínum að Danir
ættu að hysja upp um sig buxurnar
að ég fattaði að eitthvað mikilvægt
væri í gangi,“ segir hún og hlær.
Katrine segir athugasemdir
Íslendinga á samfélagsmiðlum vera
fullkomlega eðlilegar og sýna að
Íslendingar séu ástríðufullir aðdá-
endur handbolta.
„Ég sá á þræði á Reddit þar sem
Danir voru að deyja úr hlátri yfir
bröndurum Íslendinga og þeir
eru margir sammála um að Danir
hefðu í seinni hálf leik átt að gefa
betur í.“
Aðspurð segir hún engan hafa
áreitt sig fyrir þjóðernið. „Ef það
myndi gerast myndi ég bara hlæja
því ég horfi aldrei á íþróttir.“ n
Danir ekkert sérstaklega sárir
Muhammed
Emin Kizilkaya
Katrine Greger
sen Vedel
toti@frettabladid.is
Costco í Kauptúni er ein helsta upp-
spretta loftsteikingarpottafarald-
ursins sem virðist hvergi nærri í
rénun og þaðan hefur gufustrókur-
inn legið um skeið nokkuð þéttur
yfir Facebook-hópnum Costco-
Gleði sem telur rúmlega 53.000
meðlimi.
Engilbert Arnar, stofnandi hóps-
ins og ókrýndur Costco-konungur
Íslands, hefur brugðist við Air Fryer-
æðinu í hópnum með stofnun sér-
staks hóps, Air Fryer Tips, og er
býsna ánægður með fyrstu við-
brögð.
„Air Fryer Tips Facebook-grúppan
var sett upp vegna fjölmargra fyrir-
spurna frá fólki úr Costco-Gleði
hópnum og það má með sanni
segja að þessu hafi verið vel tekið
því að á aðeins einni viku eru yfir
2.700 manns komnir í Air Fryer Tips
deili samfélagið,“ segir Engilbert.
„Og þetta stækkar daglega enda
áhuginn á Air Fryer og uppskriftum
mikill.“
Engilbert segir fyrirspurnirnar í
Costco-hópi gleðinnar helst koma
frá fólki sem hefur þegar keypt sér
loftsteikingarpott. „Þau virðast
vera forvitin um hvað aðrir eru að
gera og hvað almennt er hægt að
gera með Air Fryer-græjunni,“ segir
Engilbert um hugmyndina að baki
nýja hópnum. „Þarna er fólk duglegt
að hjálpa og deila hvert með öðru
ráðum, uppskriftum, tilraunum og
öllu þessu skemmtilega sem hægt er
að gera í Air Fryer.“
Smá eftirréttur í Air Fry-ernum
Uppskriftir að alls konar réttum
eru áberandi í hópnum og þá ekki
síst eftirréttir eins og þessi sem hún
Heiða deilir með áhugasömum
félögum í loftsuðusamfélaginu:
Mánudagsgott fyrir tvo
1 grænt epli
2 msk. brætt smjör
1 tsk. kanill
1 tsk. púðursykur
4-5 msk. súkkulaðimúslí
1 msk. hvítir súkkulaðidropar.
Hitað í pottinum við 175 gráður í 8
mínútur og svo smá þeyttur rjómi.
„Þetta er passlegt fyrir tvo á mánu-
dagskvöldi.“ n
Gufusmitandi
Costco-gleði
Engilbert
Arnar, stofnandi
hópsins Air
Fryer Tips
Gleðistraumurinn liggur í nýja Air
Fryerhópinn hans Engilberts.
20 Lífið 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2022 FÖSTUDAGUR