Fréttablaðið - 28.01.2022, Síða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er alls konar sem
gerist í þessum litlu
sveiflum, kostir sem ég
fæ með því að vera
veikur á geði, sem ég
get nýtt í svona lagað.
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
PIZZUR
PIZZUR
PIZZUR
Ragnar Jón Ragnarsson, oftast
kallaður Humi, sendi í gær
frá sér plötuna Hlemmur. Öll
lögin á plötunni, nema eitt,
fjalla um geðhvarfasýki en
frávikið er gefið út með sam-
þykki forsetaembættisins.
ninarichter@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn Humi segir
vinnuna við plötuna Hlemmur,
sem hann gaf út í gær, hafa hafist
þegar hann byrjaði að spila tónlist
fyrir mörgum árum. „Tónlist hefur
alltaf fylgt geðhvarfasýkinni, en ég
hef notað hana til að stilla mig af,“
segir hann.
Humi hefur á síðustu árum talað
fyrir opinni umræðu um geðhvörf
og lýst eigin reynslu opinberlega, til
dæmis í átaksverkefni geðfræðslu-
félagsins Hugrúnar fyrir nokkrum
árum.
Alls konar líðan í lögum
„Síðustu mánuði hef ég verið í
frekar fínu jafnvægi,“ segir Humi
og bendir á að skemmtilegt sé að
skoða tónlistina út frá því hvar
í ferlinu hún er samin. „Þetta er
samansafn af lögum sem ég get sam-
samað ákveðnu tímabili. Ég sem
um ástandið þegar ég er manískur,
þegar ég kem upp úr lægð og líka
þegar ég er hálfur í kafi, að mara.“
Geðveikin í hversdeginum
Humi svarar því játandi að útgáfa
plötu um geðhvarfasýki sé aktív-
ismi. „Algjörlega. Ég tók ákvörðun
um að fara aðra leið en oft áður.
Við tölum oft um geðveikina sem
svo dramatíska baráttu. Við tölum
bara um hápunktana og lægstu
lægðirnar. Það er skiljanlegt að við
byrjum þar. En þessi plata fjallar
um fegurðina sem fylgir því að vera
veikur á geði í hversdeginum.“
Humi útskýrir að hann hafi lengi
langað að fjalla um geðhvörf frá
þessu sjónarhorni. „En ég er ekki rit-
höfundur, ég er tónlistarmaður. Mig
langar að sýna hvernig ég tekst á við
lífið þegar það er tiltölulega normalt
– hvað er normalt? En já, þegar við
erum í jafnvægi.“
Hann segir að geðveiki hans
birtist ekki bara í háum toppum
eða djúpum lægðum, heldur einn-
ig í litlum sveiflum og blæbrigðum.
„Það er alls konar sem gerist í þess-
um litlu sveiflum, kostir sem ég fæ
með því að vera veikur á geði, sem
ég get nýtt í svona lagað. Það er þetta
sem mig langar að fjalla um.“
Orðalaus textasmíð
Humi leikur sjálfur á öll hljóðfærin
á plötunni. „Þetta er allt samið
í litlu stúdíói heima hjá mér og
svo er eitt lagið tekið upp í Óháða
söfnuðinum. Ég tek þetta upp og
syng sjálfur.“
Þó að sum lögin á plötunni séu
sungin eru fá eða engin orð, að sögn
Huma, ekki í rökrænu samhengi.
„Það er mjög meðvitað. Ástæðan er,
að þegar ég er veikur get ég aldrei
sett hlutina í orð. Konan mín spyr
hvernig mér líði, og þá get ég bara
lýst einhverri áferð. Að það sé að
sjóða í potti og suðan ekki komin
upp. Að ég sé loðinn að innan.“
Hann ætlar plötunni að tjá þessa
áferð frekar en að tjá líðanina beint
í textasmíð.
Með leyfi forseta
Humi er tveggja barna faðir og
kennir stærðfræði á unglingastigi í
Háteigsskóla.
„Tónlistin er aukabúgrein og það
er dásamlegt að geta stillt það af, að
vera að kenna 150 krökkum og geta
líka sinnt því að semja og spila tón-
list. Það gefur lífinu lit.“
Hann segir síðasta lagið á plöt-
unni innihalda „sampl“ frá Guðna
forseta. „Ég fékk að nota röddina
hans, þar sem hann er að tala um að
hann hati ananas á pitsu. Ég á mjög
skemmtileg tölvupóstsamskipti við
forsetaembættið um hvort ég megi
gefa þetta lag út, eða ekki,“ segir
Humi. „Það er gaman að fá leyfi frá
forsetanum til að gefa út plötu.“n
Plötuútgáfa með forsetaleyfi
Platan fjallar um geðhvörf en Humi hefur hvatt til opinnar umræðu um sjúkdóminn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
svavamarin@frettabladid.is
„Það eru allir einhvern veginn að
keppast við tímann,“ segir nær-
ingarþjálfarinn Helga Margrét sem
reynir að einfalda fólki lífið með
því að deila einföldum og næringar-
ríkum uppskriftum á vefsíðunni
helgamagga.is og samfélagsmiðl-
unum TikTok og Instagram undir
notendanafninu helgamagga.
Sjálf segist hún detta úr sambandi
þegar hún sér uppskriftir með of
mörgum innihaldsefnum. „Ég reyni
að hafa allar uppskriftirnar mínar
einfaldar og með myndböndunum
sem sýna fólki einnig betur hvað
þetta er allt einfalt,“ segir Helga sem
telur sig jafnvel hafa dottið með til-
raunastarfsemi niður á heimsins
bestu beyglur.
„Ég sá uppskrift á TikTok að
beyglum með grískri jógúrt í grunn-
inn. Ég prófaði að breyta og setja
hreint skyr í staðinn, þar sem ég legg
mikla áherslu á að hafa prótein í því
sem ég borða. Hreint skyr er pró-
teinríkara og fituminna en gríska
jógúrtin. Svo virkaði þetta fáránlega
vel, bæði fislétt og mjúkt.“
Hún segir fylgjendahóp sinn
orðinn ansi breiðan. „Allt frá tví-
tugu fólki upp í sjötugt.“ Hún bætir
við að þegar uppskriftirnar komi
inn á TikTok horfi allt niður í tólf
ára krakka á þær. „Ég fæ reglulega
kveðjur frá foreldrum sem þakka
mér fyrir þau jákvæðu áhrif sem
ég er að hafa á börn þeirra með
jákvæðri umfjöllun um næringu.
Það gleður mig mikið,“ segir Helga
hrærð. n
Rambaði á heimsins bestu beyglur
Helga Margrét ásamt yngstu dóttur
sinni Rakel Söru. MYND/AÐSEND
22 Lífið 28. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ