Fréttablaðið - 28.01.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
ÚTSALA
BETRA BAKS
ÚTSALAN ER Í
FULLUM GANGI
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
RÚMFÖTHEILSURÚMSLOPPAR SÆNGUR OG KODDAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN
SÓLARHRINGINN
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
M O L A R
NÝBYGGINGAR
Í HAFNARFIRÐI
FJÖLDI EIGNA AÐ KOMA Í SÖLU
Í SKARÐSHLÍÐ OG HAMRANESI
BÆJARHRAUN 10 – HAFNARFIRÐI
SÍMI: 520-7500 - FASTEIGNASALA SÍÐAN 1983
Svanborgar
Sigmarsdóttur
n Bakþankar
Er það satt? Er það búið? Syngur
þjóðin í dag. Ýmist til að sýta gengi
strákanna okkar í handbolta og að
hafa ekki fengið að halda gleðinni
áfram alla leið í úrslitin. Eða í eftir-
væntingu eftir fréttum dagsins í
dag um afléttingar sóttvarnaað-
gerða. Það skilur hvort eð er enginn
reglurnar lengur. Gildir tíu manna
reglan annars bara ef öll eru stödd
í lokaðri kompu, að minnsta kosti
tvö eru eldri en sextugt og einhver
trúir ekki á grímur?
Ef hlustað er á ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins er samkomu-
takmörkunum nánast lokið. Fái
Bjarni að ráða verður gott partí í
Ásmundarsal í kvöld. Ráðherrar
hinna flokkanna sem hafa stýrt
heilbrigðisráðuneytinu undanfarin
tvö ár virðast nokkuð hæglátari.
Þetta þurfi nú að taka sinn tíma.
Það þurfi að hugsa um Landspítal-
ann. Það þurfi að hugsa um kerfið.
Enda sjáum við að fjöldi smitaðra
breytist ekki. Það eru enn um 1.500
manns á dag. Fyrir utan þau sem
ekki greinast.
Undanfarin tvö ár hefur það
verið fasti í vinnunni að standa upp
og horfa yfir sýnatökuröðina við
Suðurlandsbraut. Sóttkvíarbreyt-
ingarnar á þriðjudag eru greinilega
farnar að hafa áhrif. Umferðin um
Ármúlann hefur dregist saman. Ég
spái því að til samræmis muni þeim
fækka sem greinast á degi hverjum.
En fjöldi smitaðra helst í stað.
Þetta er nefnilega ekki búið.
Hvorki Covid né stuðið í handbolt-
anum. Þetta er bara að breytast. Fær
að þroskast og þróast. Ef hægt er að
miða við ungu strákana sem fengu
að spreyta sig á meðan reynslu-
boltarnir voru lokaðir inni eru
gullár fram undan. Vonandi verður
Covid-þróunin jafnbjört. Þess mun
engin sakna, nema kannski kett-
irnir mínir sem fá minni þjónustu
þegar ég er minna heima. n
Gleraugu trega
eða bjartsýni