Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 4
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
FIAT 500e ER FYRSTI FALLEGI
RAFMAGNSSMÁBÍLLINN.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN
MEÐ ALLT AÐ 433 KM DRÆGNI.
Sjálfstæðisflokkurinn missir
rúmlega 10 prósent sam
kvæmt nýrri könnun. Meiri
hlutinn í borginni bætir
við sig einum manni. Mið
flokkurinn þurrkast út en
Framsókn nær tveimur.
kristinnhaukur@frettabladid.is
KOSNINGAR Meirihluti borgar
stjórnar heldur, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem Prósent gerði
fyrir Fréttablaðið. Hinir fjóru flokk
ar sem mynda meirihlutann myndu
bæta við sig einu sæti og fá saman
lagt 13 af 23.
Samfylkingin mælist nú stærsti
f lokkurinn í borginni með 22 pró
senta fylgi. Þetta er þó tæpum 4 pró
sentum minna en flokkurinn fékk
í borgarstjórnarkosningunum árið
2018, og myndi hann missa 1 af 7
borgarfulltrúum sínum.
Þegar könnunin er greind niður
eftir póstnúmerum sést að Sam
fylkingin hefur yfirburðafylgi í
Miðbænum, póstnúmeri 101, heil
45 prósent. Það er tvöfalt meira en
nokkur annar flokkur hefur í hverf
inu. Flokkurinn er einnig stærstur
í fjórum öðrum póstnúmerum.
Hann hefur þriðjungsfylgi í Vestur
bænum, póstnúmeri 107, og meira
en 20 prósent í 104, 105 og 108, það
er Hlíðunum, Laugardalnum og
Múlahverfi. Samfylkingin hefur
hins vegar aðeins 8 prósenta fylgi í
Grafarvogi, póstnúmeri 112.
Sjálfstæðisf lokkurinn missir
rúmlega 10 prósenta fylgi sam
kvæmt könnuninni og mælist með
20,7 prósent samanborið við 30,8 í
kosningunum árið 2018. Sjálfstæðis
flokkurinn mældist einnig með sitt
kjörfylgi hjá könnun Prósents í
desember síðastliðnum. Þetta þýðir
líka að flokkurinn missir 3 borgar
fulltrúa og fer úr 8 niður í 5. Sterk
astur er f lokkurinn í Grafarholti
og Úlfarársdal, númeri 113, með 34
prósent. Hann hefur einnig tæplega
þriðjungsfylgi í Grafarvogi og Árbæ,
númeri 110.
Píratar mælast með 16,4 prósenta
fylgi og fara úr 2 í 4 borgarfulltrúa.
Þeir eru stærsti f lokkurinn í póst
númerum 102 og 103, Skerjafirð
inum og Háaleitishverfinu, með 28
prósent og hafa einnig sterka stöðu
í Miðbænum, Laugardalnum og
Seljahverfinu, póstnúmeri 109.
Flokkur fólksins er langstærsti
f lokkurinn í Breiðholtshverfi og
fær þar 28 prósenta fylgi. Það er 10
prósentum meira en nokkur annar
flokkur í Breiðholtinu. Hvergi hefur
Flokkur fólksins viðlíka stöðu. Í
Hlíðahverfi mælist hann varla,
með aðeins 1 prósent. Í heildina
Samfylkingin stærst í fimm hverfum
fær f lokkurinn 7,2 og bætir við sig
einum manni sem hangir naumt
inni.
Viðreisn er skammt frá því að ná
inn sínum öðrum manni og hefur
einnig 7,2 prósent. Fylgið er á bilinu
4 til 11 prósent í öllum hverfum
nema Breiðholti og Grafarvogi þar
sem fylgið er mjög lítið. Vinstri
græn myndu hins vegar bæta við sig
manni og fá slétt 10 prósent.
Framsóknarflokkurinn er á mik
illi siglingu og fengi 9,7 prósenta
fylgi og 2 menn kjörna. Flokkurinn
náði ekki inn fulltrúa í síðustu kosn
ingum og samkvæmt könnuninni í
desember mældist fylgið aðeins
4,1 prósent. Flokkurinn hefur á
bilinu 4 til 9 prósent í eldri hverfum
borgarinnar en allt að 14 prósent í
efri byggðum.
Miðflokkurinn þurrkast út sam
kvæmt könnuninni og er mjög
langt frá því að halda sínum full
trúa. Flokkurinn hefur aðeins 1,3
prósenta fylgi sem er mun minna
en í alþingiskosningunum síðast
liðið haust, sem þótti afhroð. Sósía
listar, sem einnig guldu af hroð í
haust, halda sínum borgarfulltrúa
með 5,5 prósenta fylgi. Skiptir þar
mestu 10 prósenta fylgi f lokksins í
Breiðholtinu.
Ekki er mjög mikill munur á
svörum fólks eftir kynjum. Helst
ber að nefna að Vinstri græn hafa
13 prósenta stuðning kvenna en
aðeins 7 prósenta karla. 23 prósent
karla styðja Sjálfstæðisflokkinn en
aðeins 18 prósent kvenna.
Píratar hafa fjórðungsfylgi kjós
enda undir 25 ára og eru stærsti
f lokkurinn í þeim aldurshópi.
Athygli vekur að Framsóknar
flokkurinn hefur meira fylgi ungra
kjósenda en Sjálfstæðisflokkurinn,
12 prósent á móti 9. Mest fylgi Sósía
listaflokksins kemur frá elstu kjós
endunum, 65 ára og eldri, en aðeins
2 prósent frá þeim yngstu.
Samfylkingin hefur áberandi
mest fylgi hjá háskólamenntuðum,
allt að 30 prósent, og einnig mest
fylgi hjá tekjuhæstu og tekjulægstu
hópunum. Píratar hafa hins vegar
mest fylgi þeirra sem hafa aðeins
grunnskólapróf og Sjálfstæðisflokk
urinn hjá þeim sem hafa framhalds
skólapróf eða iðnmenntun.
Könnunin var gerð dagana 4. til
18. mars. Úrtakið var 2.400 og svar
hlutfallið 52 prósent. n
adalheidur@frettabladid.is
KOSNINGAR Kosning fer fremur
hægt af stað í prófkjöri Sjálfstæðis
f lokksins í Reykjavík, sem hófst í
gær og lýkur í kvöld.
Þegar kjörstöðum lokaði í gær
höfðu 1.226 kosið en áður höfðu
539 kosið utan kjörfundar. Alls
hafa því 1.765 kosið áður en kjör
staðir opna í dag.
Til samanburðar tóku alls 7.208
þátt í próf kjöri f lokksins fyrir
alþingiskosningarnar í fyrra.
Unnur Brá Konráðsdóttir, for
maður kjörstjórnar, segir tölurnar
ekki endilega gefa til kynna að
þátttaka verði dræm enda lítil hefð
fyrir tveggja daga prófkjöri. Í gær
hafi f lestir verið í vinnu og aðal
dagurinn sé í dag.
Próf kjör Sjálfstæðisf lokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
hófstklukkan 11 í gær og stendur til
klukkan 18 í dag.
Hildur Björnsdóttir borgarfull
trúi og Ragnhildur Alda Vilhjálms
dóttir varaborgar fulltrúi gefa
báðar kost á sér til að leiða lista
f lokksins.
Mikil barátta er um 2. sæti list
ans en í það sæti gefa kost á sér
borgarfulltrúinn Marta Guðjóns
dóttir, varaþingmennirnir Friðjón
Friðjónsson, Kjartan Magnússon
og Þorkell Sigurlaugsson fram
kvæmdastjóri. Auk þeirra gefur
Birna Hafstein, formaður félags
íslenskra leikara, kost á sér í 2. til
3. sæti.
Alls gefa 26 kost á sér í próf
kjörinu, þrettán konur og þrettán
karlar. Meðal frambjóðenda eru sjö
sitjandi borgarfullrúar auk nokk
urra varaborgarfulltrúa.
Kosið verður á fimm stöðum í
Reykjavík: í Valhöll, á Fiskislóð
10 á Granda og í félagsheimilum
f lokksins í Árbæ, Grafarvogi og
Breiðholti.
Flokkurinn er með átta borgar
fulltrúa í borgarstjórn en f lokkur
inn fékk f lesta borgarfulltrúa allra
f lokka í síðustu kosningum. Sam
kvæmt nýrri könnun sem gerð var
fyrir Fréttablaðið fengi f lokkurinn
5 borgarfulltrúa. n
Þátttaka heldur
dræm í prófkjöri
Kosið er á fimm stöðum i Reykjavík.
101
102, 103
104
105
107
108
109
110
111
112
113, 116, 161, 162
n Samfylking n Sjálfstæðisflokkur n Píratar n Vinstri græn n Framsóknarflokkur n Flokkur fólksins n Viðreisn n Sósíalistar n Miðflokkurinn
45%
18%
21%
24%
31%
26%
18%
16%
15%
8%
11%
25%
15%
17%
14%
22%
19%
30%
18%
29%
34%
28%
20%
19%
8%
12%
23%
16%
12%
15%
14%
14%
11% 20% 6% 4% 4%
4%
18%
11%
14%
9%
9%
4%
4%
6%
4%
7%
9%
4%
14%
14%
11%
9%
13%
14%
5%
5%
1%
1%
1%
1%
8%
6%
10%
4%
28%
10%
11%
5%
4%
7%
8%
4%
4%
4%
4%
10%
5%
11%
7%
10%
10%
2%
2%
2%
3%
3%
9%
9%
7%
7%
4% 6%
Fylgi flokka í Reykjavík eftir póstnúmerum
25%
20%
15%
10%
5%
Hvaða lista myndirðu kjósa ef gengið yrði til borgarstjórnar-
kosninga í Reykjavík í dag?
Núverandi meirihluti
Samfylkingar, Vinstri
grænna, Viðreisnar og
Pírata myndi bæta við
sig einu sæti og fá 13 af
23.
4 Fréttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ