Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 10
Stærstu hluthafar
ISNIC eru Jens Pétur
Jensen, Íslandspóstur,
Magnús Soffaníasson
og Bárður Hreinn
Tryggvason.
Arðgreiðslur til hluthafa í
ISNIC, sem annast íslenska
landslénið .is, nam tæpum
900 milljónum króna á tíu
árum. Mest voru greiddar
190 milljónir í arð fyrir
tveimur árum. Ekki var því
um metarðgreiðslu að ræða
nú í febrúar, eins og fram-
kvæmdastjórinn fullyrti.
gar@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Hlutafélagið ISNIC - Int-
ernet á Íslandi greiddi hluthöfum
sínum 896,5 milljónir króna í arð
á árunum 2012 til 2021. Það sam-
svarar nánast öllum 903,4 milljóna
króna hagnaði af rekstri félagsins á
þessu tíu ára tímabili.
ISNIC sér um skráningu léna
undir landsléninu .is og rekstur á
tæknilegum innviðum því tengd-
um, eins og segir á vefsíðu fyrir-
tækisins. Það hefur að undanförnu
verið gagnrýnt fyrir háa gjaldtöku
af notendum þjónustunnar í skjóli
einokunarstöðu. Jens Pétur Jensen,
framkvæmdastjóri ISNIC, svaraði
athugasemdum um reksturinn á
vefsíðu félagsins síðastliðinn mið-
vikudag eins og rakið var í Frétta-
blaðinu í gær.
Í færslu Jens sem bar yfirskriftina
Rangfærslur á Rás2 og Bylgjunni
kom fram að árgjald ISNIC væri
29 dolllarar, samanborið við 12
dollara að meðaltali á heimsvísu.
Skýrði Jens þennan mun með háu
þjónustustigi ISNIC. Benti hann á
að aðeins tæpur helmingur léna á
Íslandi bæru .is endinguna. Margir
væru til dæmis með .com.
„Rangt er að eigendur ISNIC hafi
greitt sér mörg hundruð milljónir
í arð „á ári“ eins og fram kom hjá
þáttastjórnendum Bítisins á Bylgj-
unni. Rétt er hins vegar að metarð-
greiðsla var innt af hendi í febrúar
síðastliðnum og var hún 108 milljón-
ir króna eins og sjá má í ársreikningi
ISNIC 2021,“ sagði í yfirlýsingu Jens.
Þessar upplýsingar frá Jens virð-
ast þó ekki í samræmi við það sem
fram kemur í ársskýrslum ISNIC.
Í ársreikningi fyrir árið 2021 segir
að arðurinn sem greiddur verði
út á þessu ári nemi 118 milljónum
króna. Þar að auki sýnist þar ekki
um metarðgreiðslu að ræða eins og
framkvæmdastjórinn kallar hana,
því fram kemur í ársreikningum
félagsins að 190 milljónir króna hafi
verið borgaðar út í arð á árinu 2020
vegna rekstrarársins 2019. Virðist
þessi arður hafa verið greiddur þótt
stjórn ISNIC hafi lagt til 65 millj-
ónum króna lægri arðgreiðslu í það
skipti eða 125 milljónir króna.
Þess má geta að hagnaður ISNIC
fyrir árið 2019 nam 151 milljón
króna, tæplega 40 milljónum minna
en arðgreiðslan vegna rekstrarins
það ár. Sé horft til næstliðinna tíu
reikningsára, 2012 til 2021 sést að
arðgreiðslur ISNIC hafa haldist
í hendur við hagnað félagsins. Á
þessum tíu árum nam hagnaðurinn
samtals 903,4 milljónum og arð-
greiðslurnar 896,5 milljónum.
ISNIC er í blandaðri eign einka-
aðila og opinberra aðila. Stærsti
einstaki eigandi er Jens Pétur Jensen
framkvæmdastjóri með 29,51 pró-
sents hlut. Hlutur hans samkvæmt
því, í fyrrgreindum 896,5 milljóna
króna arði á tíu ára tímabili, er 264,6
milljónir.
Aðrir stórar hluthafar í ISNIC eru
Íslandspóstur með 18,66 prósenta
hlut, Magnús Soffaníasson með
16,77 prósent og Bárður Hreinn
Tryggvason með 16,24 prósent. ■
Íslandslén skilaði
eigendum nærri
milljarði á áratug
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts til fjórtán ára fram til 2019,
er formaður stjórnar ISNIC þar sem póstfyrirtækið á 18,66 prósenta hlut.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
-
2
SÆTI
Stuðningsfólk
Kjósum kjarnakonu til forystu.
Marta Guðjónsdóttir
í 2. sæti í Reykjavík.
Uppþvottavél
SN 43HW32US
Fullt verð: 109.900 kr.
Tilboðsverð:
79.900 kr.
Kæli- og frystiskápur
KGN 36VLEC
Stál. VitaFresh. noFrost-tækni. Hæð: 186 sm.
Fullt verð: 179.900 kr.
Tilboðsverð:
139.900 kr.
Traust tæki
á tilboði í mars
bth@frettabladid.is
NOREGUR Bensínverð hefur ekki
fallið í Noregi í takt við lækkandi
heimsmarkaðsverð á olíu. Norskir
fjölmiðlar fjalla um þessa staðreynd
og er umræðan á svipuðum nótum
og þekkist innanlands.
Norskir fjölmiðlar greina frá því
að það hafi tekið örskamma stund
fyrir norskar bensínstöðvar að
stórhækka verð á dísilolíu og bens-
íni en lækkun skili sér ekki eins
hratt til baka þegar olíutunnan
hefur lækkað um 15-20 prósent frá
því sem mest var. Umræða fór fram
um málið í norska ríkissjónvarpinu
í fyrrakvöld. ■
Norðmenn ósáttir við að verð lækki
ekki á bensíni í takt við heimsmarkað
10 Fréttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ