Fréttablaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 13
Illt í
hálsinum?
ÞRÍÞÆTT VIRKNI
gegn særindum og bólgu í hálsi
Septabene citron og honning (benzydaminehydrochloride/cetylpyridiniumchloride) 3 mg/1 mg munnsogstöflur
Septabene (benzydaminehydrochloride/cetylpyridiniumchloride) 1,5 mg/ml + 5 mg/ml munnholsúði, lausn
Septabene citron og honning er ætlað fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára, til staðbundinnar og stuttrar bólgueyðandi, verkjastillandi
og sótthreinsandi meðferðar við ertingu í hálsi, munni og tannholdi. Septabene munnholsúði er ætlaður fullorðnum, unglingum og börnum eldri en
6 ára, til staðbundinnar og stuttrar bólgueyðandi, verkjastillandi og sótthreinsandi meðferðar við ertingu í hálsi, munni og tannholdi og fyrir og eftir
tanndrátt. Notkun Septabene citron og honning: Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti. Ekki er ráðlagt að nota
lyfið strax fyrir eða eftir tannburstun. Ekki á að borða eða drekka í a.m.k. eina klukkustund eftir töku Septabene citron og honning. Notkun Septabene
munnholsúða: Fyrir fyrstu notkun Septabene munnholsúða á að þrýsta nokkrum sinnum á úðadæluna til að ná jafnri skömmtun. Ef úðadælan hefur ekki
verið notuð í langan tíma (svo sem a.m.k. eina viku) á að þrýsta einu sinni á úðadæluna til að ná jafnri skömmtun. Fjarlægið plasthettuna fyrir notkun.
Opnið munninn vel, beinið úðastútnum að kokinu og þrýstið 1-2 sinnum á úðadæluna. Haldið niðri andanum meðan úðað er. Eftir hverja notkun á að
setja plasthettuna aftur á úðadæluna. Þegar þrýst er einu sinni á úðadæluna er losaður skammtur sem nemur 0,1 ml af munnholsúða, en hann inniheldur
0,15 mg af benzydaminehydrochloride og 0,5 mg af cetylpyridiniumchloride. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi: KRKA, d.d., Novo mesto. KRK220309 – Mars 2022