Fréttablaðið - 19.03.2022, Síða 20
Hann er mjög þolin-
móður og ráðagóður
þegar kemur að börn-
unum.
Á meðan á bardag-
anum stendur finn ég
fyrir valdaleysi. Stund-
um kreppi ég hnefa og
blikka augum og reyni
að senda honum kraft.
Fransiska Björk Hinriksdóttir,
unnusta Gunnars Nelson, er
ein taugahrúga í hvert skipti
sem Gunnar stígur inn í búrið.
Hún ber hins vegar mikla
virðingu fyrir þeirri syllu sem
hann hefur fundið í lífinu. Þau
hafa verið saman í rúm fimm
ár, eiga saman eina dóttur og
svo á Gunnar einn strák úr
fyrra sambandi. Fransiska
segir Gunnar hafa föðurhlut-
verkið í sér og að hann kunni
að tækla alls konar aðstæður.
Bardagakappinn Gunnar Nel-
son stígur aftur í búrið í dag eftir
langa fjarveru. Fransiska og Gunn-
ar kynntust úti á lífinu eins og svo
fjölmargir aðrir. „Við kynntumst
á gamla góða Biffanum árið 2016
en byrjuðum síðan saman sum-
arið 2017, svo við erum búin að vera
saman í næstum fimm ár,“ segir
Fransiska í samtali við Fréttablaðið.
Saman hafa þau stofnað fjöl-
skyldu og í viðtali við Fréttablaðið
á dögunum sagði Gunnar að föður-
hlutverkið hefði skerpt sýn hans
á lífinu. Hann hefði farið að setja
aðra í fyrsta sæti og nyti þess að
vera faðir. Fransiska segir hann
vera mjög skemmtilegan í föður-
hlutverkinu.
„Hann leikur mikið við börnin
og grínast. Þó að honum finnist það
ekki sjálfum, er hann mjög þolin-
móður og ráðagóður þegar kemur
Er ein taugahrúga þegar Gunnar berst
Fransiska Björk
og Gunnar Nel-
son blómstra
saman.
MYND/AÐSEND
að börnunum og virðist hafa það
bara í sér að vita hvernig eigi að
tækla alls konar aðstæður. Þar sem
hann var faðir þegar við kynntumst
hef ég einnig lært margt af honum.“
Styður hann á vegferð sinni
Gunnar er atvinnumaður í íþrótt-
um. Hann er bardagamaður og
brautryðjandi í sinni grein á meðal
Íslendinga, atvinna hans er eitt-
hvað sem við fæst getum tengt við.
Fransiska segist skilja þessa vegferð
sem Gunnar valdi sér í lífinu þó svo
að hún sé aðeins of blóði drifin fyrir
hennar smekk.
„Gunni fann sig mjög snemma
í ýmiss konar bardagalistum og
ég ber mikla virðingu fyrir því að
hann hafi fundið sína syllu. Sú sylla
er náttúrulega smá of blóði drifin
fyrir minn smekk en ég styð hann
samt sem áður í því sem hann er að
gera, á þann hátt sem ég get.“
Vinnutími Gunnars er ekki hefð-
bundinn en fjölskyldan stendur
þétt saman. „Það eru náttúrulega
kostir og gallar við að vera ekki í
8-16 vinnu. Þetta kemur í törnum
og vinnutíminn hans getur verið
ágætlega sveigjanlegur þó að hann
sé stundum mikið á kvöldin eða
um helgar. En við reynum bara að
vinna saman og láta þetta ganga
upp, sem það gerir og gengur bara
yfirleitt vel.“
Finnur fyrir valdaleysi
Hún dáist að Gunnari en viður-
kennir að ýmsar tilfinningar geri
vart við sig þegar á hólminn er
komið.
„Það er alltaf mjög gaman að
fylgjast með honum í æfingaferlinu
sem verður alltaf ákafara og ákafara
eftir því sem nær dregur bardaga.
Ég dáist alltaf að þessum mikla aga
og úthaldi Gunna þegar kemur að
vinnunni og því hversu mikið hann
helgar sig þessu sporti. Hvort sem
bardagi er á döfinni eða ekki. Þegar
svo kemur að bardaga kvíði ég því
auðvitað að hann slasist eða eitt-
hvað komi fyrir, en á sama tíma er
maður allur á iði því spennan er svo
mikil og keppnisskapið tekur yfir.“
Fransiska verður í O2-höllinni í
Lundúnum í kvöld þegar að Gunn-
ar stígur inn í búrið eftir meira en
tveggja ára fjarveru.
„Það er frekar erfitt að lýsa því
nákvæmlega hvernig mér líður á
þeirri stundu. Smá af öllu; stressuð
og jafnvel alveg skíthrædd en líka
ofurpeppuð og keppnisskap í botni.
Meðan á bardaganum stendur finn
ég fyrir valdaleysi. Stundum kreppi
ég hnefa og blikka augum og reyni
að senda honum kraft þannig, sem
hljómar mjög asnalega og fyndið en
þannig er maður þarna, ein tauga-
hrúga en á sama tíma líka að hafa
mjög gaman,“ segir Fransiska Björk
Hinriksdóttir, unnusta Gunnars
Nelson.
Gunnar Nelson mætir Takashi
Sato í veltivigt UFC í kvöld í O2-höll-
inni í Lundúnum. ■
Aron
Guðmundsson
skrifar frá London
aron
@frettabladid.is
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2022
ORKUSJÓÐUR
Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 900 m.kr.
Styrkupphæð til hvers verkefnis ræðst af getu sjóðsins og fjölda umsókna.
Styrkir geta numið 33% af áætluðum stofnkostnaði.
Verkefnastyrkir
Umsóknafrestur er til 7. maí 2022
Umsóknir skulu sendar gegnum
þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is
orkusjodur.is
2. Minnkun olíunotkunar í iðnaði: Búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu.
1. Bætt orkunýting: Búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar hitunar í
rafkyntum varmaveitum og/eða minnkar olíunotkun.
3. Raf- og lífeldsneyti og metan: Bættir innviðir (t.d. dreifing, varaafl) og/eða
framleiðsla raf- eða lífeldsneytis úr orku sem tryggð hefur verið til þess
verkefnis. Nýting líf- og rafeldsneytis og metans skal einnig vera tryggð (t.d. í
tæki), hvort heldur sem orkugjafi eða til frekari framleiðslu.
4. Hleðslustöðvar fyrir samgöngur: Uppsetning hleðslu- eða áfyllingarstöðva til
þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfið sem og gististaði, frístundasvæði
(t.d. íþróttahús, sundlaugar), verslanir og fjölsótta ferðamannastaði. Ef um
hraðhleðslustöðvar er að ræða (150 kW og stærri) getur kostnaður við
sérlausnir verið innifalinn (t.d. rafhlöður, sólarsellur, vindrellur).
5. Orkuskipti í haftengdri starfsemi: Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í
haftengdri starfsemi og siglingu til og frá höfn.
20 Íþróttir 19. mars 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 19. mars 2022 LAUGARDAGUR