Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 32
Kári Kárason er 54 ára
og gegnir krefjandi starfi
framkvæmdastjóra. Hann
hefur lengi glímt við svefn-
vandamál og almennt slen
í eftirmiðdaginn. Eftir að
hann byrjaði að taka Sofðu
rótt frá ICEHERBS hefur
hann komið jafnvægi á
svefninn og hann er mun
hressari eftir vinnu.
Kári er einn af þeim sem eru alltaf
á ferðinni. „Það er mikið að gera
hjá mér í vinnunni og lífinu og
á kvöldin er erfitt fyrir mig að
slökkva á mér. Ég er sífellt að laga
koddann og á erfitt með að festa
svefn. Þá er eins og það taki lengri
tíma en góðu hófi gegnir fyrir mig
að ná góðum og djúpum svefni,“
segir Kári.
Hress og laus við síðdegisslenið
„Það er langt síðan ég byrjaði að
finna fyrir svefnleysi og almennri
vanlíðan vegna þess. Góður svefn
er grunnurinn að heilbrigðu lífi, en
með fullri virðingu fyrir lækna-
stéttinni, þá ég vil helst ekki þurfa
að treysta á uppáskrifuð svefnlyf.
Mér finnst því mikilvægt að leita
fyrst á náðir náttúrulegra lausna til
að koma svefninum á rétt ról.
Vinkona mín, sem hefur tekið
Sofðu rótt frá ICEHERBS til lengri
tíma, benti mér á að prófa það líka.
Ég viðurkenni að ég var skeptískur
í byrjun á að þetta myndi hjálpa
mér, en ég var tilbúinn til
að láta reyna á það.
Ég var fljótur að
finna að þetta virkaði
ekki ósvipað og
melatónínið á mig og
jafnvel nokkuð betur. Í
dag tek ég eingöngu Sofðu
rótt við svefnvandamálum og
líður bara mjög vel. Mér finnst ég
ná mun dýpri svefni en áður og ég
næ djúpsvefninum líka mikið fyrr.
Sofðu rótt leysir öll mín svefn-
vandamál og ég hef ekki þurft að
leita á náðir lækna með svefnlyf.
Ég er mun hressari í dag og miklu
betri á morgnana og út allan dag-
inn. Ég finn líka að ég tækla streitu
mun betur og held mér í jafnvægi,
orkulega séð yfir daginn.
Áður en ég byrjaði að taka Sofðu
rótt fann ég að slenið var farið að
gera vart við sig strax um eftirmið-
daginn, jafnvel áður en ég fór heim
úr vinnunni. En núna er ég mun
hressari seinnipartinn. Ég finn
hreinlega að ég á miklu meira inni
orkulega séð yfir daginn, einfald-
lega þar sem ég er betur sofinn og
næ að sofa í gegnum alla nóttina.
Ef maður nær góðum svefni þá er
deginum einfaldlega reddað,“ segir
Kári.
Náttúrulega slakandi og róandi
Náttúrulegar lausnir eins og
jurtir og lækningajurtir hafa verið
notaðar langt aftur í aldir um heim
allan. Fjölmargar rannsóknir hafa
verið gerðar, ekki klínískar þó,
en þær eiga það sameiginlegt að
sýna fram á virkni lækningajurta.
Flestar lækningajurtir eru skað-
lausar og því er greiður aðgangur
að þeim. Náttúrulegar lausnir hafa
lengi virkað vel á fjölmarga enda er
sú leið oft valin ef fólk vill komast
hjá lyfjanotkun. ICEHERBS býður
upp á náttúrulega lausn við svefn-
vandamálum, en gríðarlega stór
hópur fólks velur að reyna við
náttúrulegar lausnir áður svefnlyf
eru notuð.
Sofðu rótt í alla nótt
Sofðu rótt frá ICEHERBS
inniheldur magnolíubörk og
íslensk fjallagrös. Saman
virka þessar tvær jurtir
einstaklega vel til þess
að bæta svefn á nátt-
úrulegan og heilbrigðan
hátt. Þessi öfluga blanda
hentar vel fyrir þá sem vilja
aðstoð við að ná betri, jafnari og
samfelldum svefni sem og bæta
andlega líðan.
Þessi magnaða jurt, magnolía,
hefur verið notuð um aldir við
þunglyndi, svefnvandamálum,
kvíða og streitu. Þá er hún þekkt
fyrir að virka almennt slakandi og
róandi, og á að bæta eðlilegan og
samfelldan svefn.
Rannsóknir á magnolíu hafa
sýnt fram á að hún inniheldur virk
efni, sem vitað er að hafa áhrif
á andlegt jafnvægi. Virku efnin
í magnolíuberkinum eru þann-
ig þekkt fyrir að örva boðefni
í heilanum og koma jafnvægi
á hormónið kortísón. Þau geta
virkað almennt slakandi og róandi
og bæta eðlilegan og samfelldan
svefn.
Sofðu rótt blandan inniheldur
einnig íslensk fjallagrös sem eru
oft nefnd ginseng Íslands. Fjalla-
grös eru rík af steinefnum, einkum
járni og kalsíum. Fjallagrös hafa
verið þekkt fyrir vatnslosandi
áhrif sín og geta hjálpað til við
að draga úr bjúg. Þau innihalda
betaglúkantrefjar sem hafa reynst
vel við þyngdartap, geta bætt
meltingu og styrkt þarmana.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
hreina neytendavæna vöru fyrir
viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS
leggjum áherslu á að framleiða
hrein og náttúruleg bætiefni
sem byggja á sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda. Við viljum að
vörurnar okkar nýtist viðskipta-
vinum okkar, að virkni skili sér í
réttum blöndum og að eiginleikar
efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá
notum við enn fremur engin óþörf
fylliefni.“ n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og í nýrri
vefverslun á iceherbs.is.
Sofðu rótt leysti svefnvanda á náttúrulegan hátt
Kári hafði
lengi glímt við
svefnleysi en
fann lausnina í
Sofðu rótt frá
ICEHERBS.
MYND/AÐSEND
Sofðu rótt leysir öll
mín svefnvanda-
mál og ég hef ekki þurft
að leita á náðir lækna
með svefnlyf.
Kári Kárason
Meðlimir Böss taka laga-
smíðarnar ekki óþarflega
hátíðlega. Sveitin heldur
tónleika á Skuggabaldri í
Reykjavík í kvöld.
starri@frettabladid.is
Hljómsveitin Böss heldur tón-
leika á Skuggabaldri í Reykjavík í
kvöld. Sveitin er tiltölulega ný en
þó skipuð reynslumiklum hljóð-
færaleikurum, þeim Mikael Mána
Ásmundssyni sem leikur á gítar og
bassa, Hrafnkeli Erni Guðjónssyni
trommuleikara, Þórði Sigurðarsyni
sem leikur á píanó og hljómborð
og Birki Blæ Ingólfssyni sem spilar
á saxófón.
Mikael Máni segir nafn sveitar-
innar, Böss, vísa í strætó, þannig að
fólk geti tekið sér far með þessum
ágæta músíkvagni. „Svo er orðið
líka tilvísun í enska orðið buzz sem
þýðir meðal annars eitthvað nýtt
og spennandi sem okkur fannst
líka eiga vel við okkur.“
Skemmtilegur suðupottur
Meðlimir sveitarinnar koma úr
ýmsum áttum að sögn Mikaels
Mána. „Þetta byrjaði þannig að
starfandi kirkjuorgelleikari hitti
fremsta prog-þungarokkara
landsins og sá árekstur rakst á
háskólagengna djasshugsun sem
hittir fyrir „wannabe“ dægurlaga-
poppara.“
Úr þessum skemmtilega suðu-
potti hefur síðan sprottið frum-
samið prógramm sem sveitin mun
meðal annars leika í kvöld. „Ef
hægt er að setja einhvern stimpil á
þessa tónlist má segja að Böss spili
einhvers konar djass. Spilagleðin
er svo sannarlega í hávegum höfð
og við tökum lagasmíðarnar ekki
óþarflega hátíðlega. Þær eru frekar
nokkurs konar fundarstaður eða
vettvangur þar sem hljómsveitar-
meðlimir koma saman og leika
sér. Töfrarnir eru fólgnir í því að
hittast.“
Lögin flæða áfram
Heimsfaraldurinn hefur eðlilega
truflað tónleikahald sveitar-
innar en fram undan eru vonandi
bjartari tímar og frekara tónleika-
hald á næstu vikum og mánuðum.
„Það sem einkennir tónleika okkar
er að við spilum lögin okkar í belg
og biðu, án þess að stoppa á milli
laga. Fyrir tónleikana erum við
ekki búnir að ákveða röð laganna
heldur leyfum við þeim að flæða
áfram eins og lögunum þóknast.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
í kvöld. Skuggabaldur er til húsa að
Pósthússtræti 9, 101 Reykjavík.
Ekkert kostar inn og fara borða-
pantanir fyrir matargesti fram í
gegnum Facebook-síðu Skugga-
baldurs eða í síma 7740801. n
Spilagleðin í hávegum höfð
Mikael Máni Ásmundsson er gítarleikari hljómsveitarinnar Böss.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is
Ávaxtasýrumeðferð sem vinnur á andlitslínum,
slappri húð, litabreytingum, þurri líflausri húð og örum.
Einnig er hægt að bóka tíma í persónulega ráðgjöf.
Hjartanlega velkomin.
*gildir til 31. mars 2022
20% afsláttur*
af Stjörnumeðferðinni
4 kynningarblað A L LT 19. mars 2022 LAUGARDAGUR