Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 46
Embætti ríkislögmanns
auglýsir laus störf
Embætti ríkislögmanns auglýsir laus til umsóknar tvö störf
við embættið. Annars vegar starf lögmanns með réttindi
til að flytja mál fyrir héraðsdómi og hins vegar starf
lögfræðings. Um er að ræða áhugaverð og fjölbreytt störf
í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnu-
brögð, ábyrgð og sjálfstæði. Um verkefni og starfsskyldur
ríkislögmanns má finna upplýsingar í lögum nr. 51/1985 um
ríkislögmann.
Lögmaður með málflutnings-
réttindi fyrir héraðsdómi
Helstu verkefni og ábyrgð
• Málflutningur fyrir héraðsdómi og Félagsdómi.
• Taka afstöðu til og annast uppgjör bótakrafna sem
beint er að ríkissjóði.
• Aðstoð við lögmenn embættisins.
• Samskipti við stjórnvöld, stofnanir, lögmenn og
einstaklinga.
Hæfniskröfur
• Fullnaðarpróf í lögfræði (embættis- eða meistarapróf).
Önnur viðbótarmenntun er kostur.
• Góð kunnátta í stjórnsýslurétti og skaðabótarétti.
Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða á
lögmannsstofu er kostur.
• Reynsla og þekking af gerð samkomulaga er kostur.
• Sveigjanleiki, samstarfshæfni, skipulagshæfni og
sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Lögfræðingur
Helstu verkefni og ábyrgð
• Taka afstöðu til og annast uppgjör bótakrafna sem beint
er að ríkissjóði í samráði við lögmenn embættisins.
• Aðstoð við lögmenn embættisins.
• Samskipti við stjórnvöld, stofnanir, lögmenn og
einstaklinga.
Hæfniskröfur
• Fullnaðarpróf í lögfræði (embættis- eða meistarapróf).
Önnur viðbótarmenntun er kostur.
• Góð kunnátta í stjórnsýslurétti og skaðabótarétti.
Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða á
lögmannsstofu er kostur.
• Reynsla og þekking af gerð samkomulaga er kostur.
• Sveigjanleiki, samstarfshæfni, skipulagshæfni og
sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um störfin
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%. Áhugasamir einstaklingar eru
hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 7. apríl 2022.
Umsókn skal skila rafrænt á postur@rlm.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, þar sem
fram koma upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt
kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar
og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Launakjör eru miðuð við gildandi kjarasamning sem
fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í
sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur
nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari
breytingum.
Nánari upplýsingar veitir Stefanía Gissurardóttir skrifstofu-
stjóri í síma 5458490 eða í gegnum netfangið postur@rlm.is.
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Ert þú með
brennandi
áhuga á
skipum?
Í boði eru spennandi störf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Við hvetjum öll kyn
til að sækja um.
Umsóknarfrestur
er til 28. mars 2022
Hægt er að sækja
um störfin rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Krafa er að viðkomandi hafi eða hafi haft gilt atvinnuskírteini;
• STCW II/2 (skipstjóri) ótakmarkað, eða
• STCW III/2 (yfirvélstjóri) ótakmarkað, eða
• Hafi lokið prófi viðurkenndu af Samgöngustofu í skipaverkfræði,
skipatæknifræði, vélaverkfræði eða véltæknifræði og hafi unnið
á því sviði í a.m.k. 5 ár.
• Kostur telst ef viðkomandi hefur góða þekkingu á alþjóðlegum reglum
sem gilda um skip og búnað þeirra.
• Krafa er að viðkomandi hafi mjög gott vald á ensku og íslensku í rituðu
og töluðu máli þar sem starfið fer að mestu leyti fram á ensku.
• Góð almenn tölvukunnátta er krafa.
• Kostur að viðkomandi hafi reynslu af vinnu með gæðakerfi.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og að geta unnið sjálfstætt og í hóp.
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi til að sinna hafnarríkiseftirliti
(e. Port State Control) með erlendum flutninga- og farþegaskipum sem koma
til hafnar á Íslandi, á grundvelli Parísarsamkomulagsins (www.parismou.org).
Starfshlutfall er 100% og tilheyrir staðan deild skipaeftirlits, áhafna og leyfisveitinga.
Eftirlitsmaður í hafnarríkiseftirliti
Samgöngustofa leitar að öflugum sérfræðingi í skipatæknideild. Starfið felur í sér að
meta tæknigögn er varðar öryggi skipa, yfirferð og samþykkt smíðateikninga og annarra
gagna vegna nýsmíði, breytinga og innflutnings skipa. Starfið felur í sér samskipti við
skipahönnuði, útgerðir og flokkunarfélög vegna skoðana og tæknigagna. Á skipatækni-
deild er unnið með lög og reglur, gæðakerfi og staðla. Starfshlutfall er 100%.
Sérfræðingur í skipatæknideild
Menntunar- og hæfniskröfur
• Hafa lokið námi í tæknifræði eða verkfræði á skipa eða vélasviði.
Annað sambærilegt nám kemur til greina.
• Reynsla af störfum við tæknimál skipa er kostur.
• Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og að geta unnið sjálfstætt og í hóp.